Hugur og hönd - 01.06.1974, Side 29
T /
ISSipl
M
n
•V/AV;
P§$$^'íí í
$$$!$ S
mi
BorhrenrLLngur
Verzlun Heimilisiðnaðarfélagsins,
íslenzkur heimilisiðnaður, hefur löng-
um lagt á það áherzlu að hafa á boð-
stólum úrval af efni til hvers konar
heimilisiðnaðar. Fyrir þá, sem stunda
vefnað er úr ýmsu að velja. Auk ís-
lenzks bands fæst m. a. sænskur og
finnskur hör, tvistur, „cottolin“ og
það, sem notað er í þennan vef, „al-
bolin“. Albolin er spunnið úr blöndu
af baðmull og hör, 60% baðmull og
40% hör. Það fæst í mörgum litum.
er á 250 g rúllum og í hverri rúllu eru
um 840 m.
Vend: Oddavaðmál á 4 sköft.
U'ppistaða: Albolin nel 12/2, í fjór-
um litum, grænt nr. 837, dökkbrúnt
nr. 846, ljósbrúnt nr. 842, rauðgult
nr. 840.
ívaf: Albolin nel 12/2, dökkbrúnt
nr. 846.
Skeið: 45/10, 1 þr. í hafaldi, 2 þr. í
tönn.
Breidd í skeið: 45 cm.
Þráðafjöldi: 404.
Veftur: 6 fyrirdrög á cm.
Efnismagn: í 6 m langa slöngu þarf
rúmlega 200 g af grænu, um 150 g af
dökkbrúnu, jafnmikið af Ijósbrúnu og
tæpa rúllu af rauðgulu. Af ívafi þarf
rúmlega 400 g í 5 m langa voð.
Nauðsynlegt er að spana vefinn vel.
Jaðrarnir verða betri, ef ívafinu er
haldið fremur stríðu, en þess ber þó
að gæta, að með því móti vefst tals-
vert inn, þ. e. voðin verður mjórri.
Þegar bundið er upp eins og hér er
sýnt, snýr rétthverfan upp. Það
mætti allt eins binda öfugt við þessa
uppbindingu, þ.e. lækka 3 sköft með
hverju skammeli, skyttan sést þá bet-
ur og smýgur síður niður á milli þráð-
anna. Hér er stigið beint, því mætti
einnig breyta með góðum árangri, t.
d. mætti stíga eftir sama munstri og
dregið er í höföld eða fram og tilbaka.
Með því fást tvö svolítið mismunandi
hringjavaðmál. Þegar uppsetningu er
lokið, er rétt að vefa smásýnishorn
með mismunandi stigi til að velja á
milli. S.H.
Rakningslisli:
miðja
Grænt 58 58 X 2 = 116 þr.
Dökk brúnt 20 6 2 10 2 40 X 2 80 „
Ljós brúnt 10 2 20 6 2 40 X 2 80 „
Rauðgult 10 2 20 6 52 64 X 2 = 1 28 „
Samtals 404 þr.
◄
HUGXJR OG HÖND
29