Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 30

Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 30
Hyrna Efni: Eingirni í sauðarlitum, um 100 g Prjónar nr. 3V2. Fitjaðar eru upp 430 1 með hús- gangsfit. Nauðsynlegt er, að fitin sé afar laus og því ráðlegast að fitja upp á þrjá prjóna samanlagða nr. 3% eða tvo grófari, t. d. nr. 4%. Þegar svona margar lykkjur eru fitjaðar, er rétt að setja merki inn í fitina eftir 25 eða 50 lykkjur, til að auðvelda talninguna. Einnig er rétt að merkja miðjuna með mislitum spotta. Prjónað er eftir meðfylgjandi munstri. Onnur hver umf, 2., 4., 6. o.s.frv., er prjónuð brugðin frá röngu nema ystu lykkjurnar 3 hvoru megin og 24., 26., 36. og 38. umf, sem prjón- aðar eru sléttar. Eftir 146. umf eru lykkjaðar saman 11 síðustu lykkj- urnar. Þá er hyrnan þvegin gætilega og strekkt með títuprjónum á mjúka plötu og látin þorna. Til gamans má geta þess, að hyrna sú, sem rnyndin er af er prjónuð úr handspunnu, tvinnuðu þelbandi eftir gamalli hyrnu. Sú, sem spann og prjónaði sótti fyrir nokkru spunanám- skeið hjá Heimilisiðnaðarfélagi Is- lands, hefur spunnið talsvert síðan og náð mjög góðum árangri. S.H. 30 HUGUR OG HOND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.