Hugur og hönd - 01.06.1974, Síða 35

Hugur og hönd - 01.06.1974, Síða 35
„Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi“, mætti e. t. v. heimfæra á tölur og hnappa. Osjaldan eru það þessar litlu þúfur, sem ráða úrslitum um það, hvort flík er falleg eður ei. Að vísu cr úr mörgu að moða á þessari miklu „plastöld“, svo að oftast finnst það, sem leitað er að í einhverri verslun- inni. Samt sem áður væri ekki úr vegi að spreyta sig á hnappagerð. Óneitan- lega gefa handunnir hnappar hand- unnu fati meira gildi, fari þeir vel og tilbreyting er í þeim. Þeir hnappar, sem hér birtast sam- an á mynd, eru unnir með ýmsu móti. Tveir eru gerðir þannig, að efni er strengt á gluggatjaldahring, aftur- stingur saumaður gegnum tvöfalt efn- ið meðfram hringnum og smáspor í miðju. Einn hnappurinn er heklaður með fastahekli utanum smákúlu eða hnapp, annar saumaður með tungu- spori, hinir hnýttir ýmist utan á Z. 7. m 14 nd. hnapp eða án. Efnið í þeim er kamb- garn, bleiktur og óbleiktur hör og Grettisgarn. Að neðan er lýsing á hnöppum, hnýttum úr Grettisgarni (4 eins á myndinni). Stærð þeirra er um 1,5 cm í þvermál: Raktir eru 6 þræðir, 30 cm langir, ekki er nauðsynlegt að klippa upp úr endum. Snúið er fast uppá þá alla saman um miðju og lagt tvöfalt utan um bandprjón, ekki mjög grófan. Vaf- ið er með samlitum tvinna og hnýtt örugglega utanum þræðina. Þar er kominn fótur hnappsins. Hnýtt er í tveim umferðum. Þráðunum er nú skipt í 6 tvöfalda enda, sem raðað er út frá miðju. Áður en farið er að hnýta, getur verið gott að skorða fót- inn (prjóninn) með títuprjónum á mjúka plötu, er þá einnig hægt að setja títuprjón í lykkjuna sem fyrst er gerð, 1. mynd. Hver endi er hnýtt- ur með hálfu skutulsbragði um næsta enda til vinstri, sem þá þegar er búið að hnýta, 2. mynd. Þegar síðasti end- inn hefur verið hnýttur, er hann dreg- inn í gegnum fyrstu lykkjuna og er auðveldast að gera það með grófri jafanál. Nú er hert jafnt að öllum endum. Þá er seinni umferð hnýtt, hver endi hnýttur um þann næsta til vinstri, sem haldið er strekktum á meðan, 3. mynd. Sá síðasti er dreginn með nál í þann fyrsta. Hert jafnt að, þó ekki mjög fast. Nú liggja allir end- arnir uppúr hnappnum, einn við livert „lauf“. Þeir eru nú dregnir með nál niður um næsta lauf, látnir fylgja þráðum, sem þegar liggja á ská milli laufa, 4. mynd. Síðast eru þeir aftur dregnir upp í miðju hnappsins, 5. mynd. Til styrktar er límdropi kreistur inn í hnappinn áður en klippt er á endana. Þessir hnappar fara vel á lopapeysum og eru skemmtileg til- breytni frá tinhnöppunum. S. II. U 3. rrxíjnoi HUGUR OG HÖND 35

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.