Hugur og hönd - 01.06.1974, Page 37
Karhnarmspeysa
Meðal karlmannsstœrð:
Sídd frá öxl: 74 cni.
Brjóstvídd: 102 cm.
Ermal. upp að handv.: 52 cm.
Efni:
Hespulopi frá Gefjuni,
7 hespur hvítar,
1% hespa sauðsvört.
Prjónar:
Hringprjónn nr. 4 og 4%.
Sokkaprjónar nr. 4 og 4V2.
l'ensla:
16 lykkjur eru 10 cm á breidd,
25 umf eru 10 cm á lcngd.
Bolur
Fitjið upp 148 1 fremur laust á
hringpr nr. 4 og prj 2 sl 2 br 10 cm.
Prj áfram slétt prjón á hringprjón
nr. 4% og aukið út í fyrstu umf 14 ]
með jöfnu bili (162 I alls). Þegar búið
er að prj 30 cm með sléttu prjóni, er
byrjað á mynstrinu. Prj eitt mynstur
(20 umf). Fellið af 9 1 í byrjun 1 umf
næsta mynsturs og aftur, þegar 72 1
hafa verið prj frá affellingu. Haldið
áfram að prj á hringprjóninn og prj
eina 1 með báðum böndunum þar,
sem klippa þarf fyrir handveginum.
Takið úr eina 1 hvorum megin við
affellinguna við báða handvegi í
næstu fjórum umf (4 1 alls í umf).
Prj eina 1 með báðum böndunum,
eins og áður er sagt, uns mynstrið
hefur verið prj þrisvar alls. Fellið 23
1 af á framhluta peysunnar, dragið 18
næstu lykkjur upp á band og fellið
af þær, sem eftir eru á framhlutanum.
Prj bak peysunnar fram og aftur með
hvíta lopanum (slétt prjón) þannig:
Fellið af 6 1 í byrjun hvers pr, uns 18
1 eru eftir. Dragið þær upp á band.
Ermar
Fitjið upp 36 1 á sokkapr nr. 4 og
prj 2 sl 2 br 10 cm. Prj áfram slétt
á sokkapr nr. M/o og aukið út 6 1
með jöfnu bili í 1. umf. Aukið síðan
út í áttundu hverri umf 1 1 í bvrjun
fyrsta pr og annarri í lok þess fjórða,
uns 64 1 eru alls á prjónunum. (Öll
ermin upp að handvegi á að vera 52
cm á lengd). Fellið nú af 5 síðustu 1
á 4. pr og 5 þær fyrstu á 1. pr. Prj
svo fram og aftur og fellið 1 1 af í
byrjun hverrar umf, uns 16 1 eru eftir.
Prj þær áfram 12 cm og dragið þær
síðan upp á band.
Ermarnar saumaðar í
Saumið spor í saumavél báðum
megin við lykkjurnar, sem prjónaðar
voru með báðum böndunum. Klippið
síðan milli saumanna. Saumið ermina
þannig í, að lykkjur á bol og ermi
mætist, úrtaka á ermi leggist að hand-
vegi peysunnar, en axlastykkið, 12
cm, saumist við bol að aftan og
framan.
Hálslíning
Takið allar lykkjur við hálsmál
upp á sokkaprjóna nr. 4. Prjónið 8
umf 2 sl 2 br. Prjónið 2 1 saman
í fyrstu umf á samskeytum axla-
stykkja og bols. Þá eru 64 I á prjón-
unum. Prjónið allar lykkjur í 9. umf
brugðnar. Prjónið nú 7 umf 2 sl 2
br, þannig, að þær lykkjur, sem voru
sléttar í 8 fyrstu umf, verði nú
brugðnar og öfugt. Fellið af. Brjótið
líninguna um brugðnu lykkjurnar í
9. umf og saumið niður að innanverðu.
M. J. L.
HUGUR OG HÖND
37