Hugur og hönd - 01.06.1974, Side 43
Rábunautur
Heimilisiðnaðarfélag Islands fékk á
s.l. ári ráðunaut í sína þjónustu og
varð fyrir valinu í þetta starf Sigríður
Halldórsdóttir, vefnaðarkennari.
Starfið verður í byrjun aðeins hálfs-
dags starf, en væntanlega vex t'élag-
inu svo fiskur um hrygg að hægt verði
að ráða lciðbeinanda í heila stöðu, því
mörgu er að sinna og verkefnin bíða.
Starf heimilisiðnaðarráðunauts get-
ur verið margþætt og mikilvægt til
eflingar heimilisiðnaðinum, og er þá
æskilegt að einstaklingar og félaga-
Ný
prjónabók
HUGUR OG HÖND
samtök notfæri þessa þjónustu, sem
ráðunauturinn hefur að bjóða.
Helztu verkefni ráðunautarins eru
að kenna og leiðbeina, útvega efni og
fyrirmyndir og leiðbeina um verkefna-
val og tæki. Sigríður Halldórsdóttir
verður til húsa í verzlun félagsins í
Hafnarstræti 3, Reykjavík, viðtals-
tími mánudaga, miðvikudaga og
laugardaga, einnig mun hún eftir ósk
og í samvinnu við kvenfélög og önnur
samtök ferðast um landið, halda sjálf
cða gangast fyrir fjölbreyttum nám-
skeiðum og sýningum og veita margs
konar leiðbeiningar.
Þegar er búið að útbúa hjálpartæki
eða handhæga ferðasýningu með
mörgum fyrirmyndum. Þetta tæki eru
ferðatöskur með nokkrum trébökk-
um í. Bökkunum er stafíað í töskurn-
ar og er mjög auðvelt að raða þeim
upp til sýninga og einnig er alltaf
auðvelt að skipta um muni í þeim.
Eins og flestir vita, sem sinna
Okkur het'ur borist í hendur nýút-
komin bók eftir Ase Lund Jensen sem
nefnist „STRIKNING“, gefin út af
forlaginu Borgen. Þetta er greinargóð
og nákvæm handbók fyrir alla er
hafa áhuga á prjónaskap, prýdd fjölda
mynda og teikninga eftir höfundinn.
I bókinni er nákvæm kennsla á öll-
um meginatriðum prjóns, eða eins og
höfundur segir:
„Samantekt reynslu minnar af fjöl-
mörgum námskeiðum í prjóni og það
er von mín að nota megi bókina sem
kennslugagn og sem uppsláttarbók, cf
vafaatriði koma fyrir.“
Eins og íslenskum hannyrðakonum
er kunnugt kom Ase Lund Jensen
hingað á vegurn H.í. og Norræna
hússins árið 1971 og hélt námskeið í
prjóni, og sýningu á verkum sínum.
handavinnu, þá hefur verið örðugt að
fá íslenzkar uppskriftir, og hefur það
hanilað mörgum, sem hafa viljað
prjóna, hekla eða vinna á annan hátt
úr íslenzkri ull.
Nú er það einn þáttur í starfi leið-
beinandans að gera uppskriftir og
fyrirmyndir og hafa þegar verið fjöl-
ritaðar nokkrar uppskriftir, bæði fyrir
þá sem vilja hagnýta sér þær til eigin
nota og/eða til framleiðslu í stærri
stíl. Allar uppskriftirnar eru gerðar
fyrir band eða lopa úr íslenzkri ull og
eru þær til sölu hjá ráðunautnum og
í verzlunum H.I.
Ráðunautarstarfið er í mótun, en
Heimilisiðnaðarfélagið væntir mikils
af því í framtíðinni.
Félagð hvetur einstaklinga og fé-
lagssamtök að hagnýta sér þessa leið-
beiningastarfsemi, og stuðla með því
að bættri verkmenningu á sviði ís-
lenzks heimilisiðnaðar.
Vakti hvort tveggja mikla athygli og
aðdáun. Verslunin Isl. heimilisiðnað-
ur hefur haft á boðstólum uppskriftir
eftir Áse Lund Jensen og auk þess
garn sem er sérstaklega spunnið og
litað á hennar vegum.
Frúin hefur unnið ötullega að því
að kynna íslenska ull í Danmörku,
m. a. haft tískusýningu á prjónuðum
fatnaði hjá Den Permanente í Kaup-
mannahöfn, þar sem fisléttir sam-
kvæmiskjólar úr einspinni vöktu
svo mikla eftirtekt, að allt íslenskt
band i Höfn seldist upp á örfáum
dögum.
Við viljum benda lesendum á þessa
mjög svo aðgengilegu bók sem veitir
óvenju uákvæmar upplýsingar um
aðferðir og útreikning við formun
prjónafatnaðar. A.S.
43