Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1977, Page 4

Hugur og hönd - 01.06.1977, Page 4
sjö tannspænir Hungurvaka nefnist saga fimm fyrstu biskupanna í Skálholti. Hana hefur saman sett einhver vitur og ljúfur ágætismaður þar á staðnum rétt eftir aldamótin 1200. í formála fyrir ritinu segir þessi nafnlausi hógværi maður svo um þetta verk sitt: „En mig varir að vitrum mönnum mun þykja bæklingur þessi jafnlíkur sem hornspónar efni, af því að það er ófimlegast meðan vangert er, þó að all- fagurt sé þegar tilgert er“. Þetta er merkileg hugsun sem víða kemur fram í ein- hverri mynd. „Oft smíðast líkneskja af ljótu efni“, segir gamall íslenskur málsháttur. Þó að góður efniviður geti verið stirðlega vaxinn megnar skyggn og skapandi hugur að sjá listaverkið sem býr í leynum hans. En sýnin ein dugir lítt, það þarf meira til. Það þarf haga hönd sem er fær um að leysa hana úr fjötrum efnisins. Hugur og hönd verða að vera samstillt og jafnvíg. Því aðeins breytir lista- 4 HUGUR OG HÖND

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.