Hugur og hönd - 01.06.1977, Blaðsíða 9
Hvítur setur allar töflur sínar á fyrsta reit hægra megin
á þeirri hlið sem frá honum veit. Svartur fer eins að.
(Að sjálfsögðu mætti alveg eins snúa þessu við, spila frá
sér en ekki að, og hafa margir vanist því).
Fyrsta teningskastið ræður hver á fyrsta leik, þá kasta
báðir taflmenn í einu hvor sínum tening og samkvæmt ís-
lenskum leikmáta byrjar sá sem fær lægri tölu. Eftir það
kasta taflmenn báðum teningunum á víxl hvor á sínu
borði og flytja töflur sínar samkvæmt þeim tölum er upp
koma. Augnatala sú sem upp kemur er kölluð ds, daus
eða dis, treia, kotra, fimm og sex eftir því hvort 1, 2, 3, 4,
5 eða 6 kemur upp. Ef sama talan kemur upp á báðum
teningunum í einu kasti er það kallað samvörp og heita
þau ásar allir, treiur allar o. s. frv. eftir því hver talan er.
Sexin öll eru líka kölluð tólfin.
Leikurinn er fólginn í því að koma sínum töflum af
upphafsreit hringinn og útaf. Ekki má færa töflur afturá-
bak og það verður að flytja ef hægt er. Flytja má töflurnar
á marga vegu: Færa má eina töflu fram um jafnmarga
reiti og upp koma á báðum teningunum, en aðeins ef
reitirnir eru auðir eða á þeim bara ein af töflum mótstöðu-
mannsins og er hún þá dauð. Flytja má tvær töflur, og hvor
þeirra má færast samkvæmt þeirri tölu er upp kom á hvor-
um teningi.
Komi upp samvörp má flytja tvisvar. T.d. 3-3: Þá má
flytja eina töflu 3-3-3-3. Eða: flytja má tvær töflur 3-3.
Eða: flytja má eina töflu urn 3 en hina um 3-3-3. Líka má
flytja fjórar töflur og hverja þeirra um 3 reiti.
Ekki má flytja töflu á reit sem setinn er tveim eða
fleiri af töflum mótleikarans. Lendi maður aftur á móti
á reit þar sem er ein tafla mótstöðumannsins er hún drep-
in. Ef annar taflmaðurinn á dauðan mann utangarðs,
getur hann ekki haldið leiknum áfram fyrr en hann kemur
töflunni eða töflunum aftur inn á!
Ekkert er á móti því að taflmaður leiki á reiti þá sem
liann á töflu fyrir á, en ekki má hann láta tvær eða fleiri
töflur standa á reit eða reita, fyrr en á ysta reit til vinstri
á þeirri hliðinni sem frá honum snýr. Þó er honum það
því aðeins heimilt að hann sé kominn með 5 töflur út af
uppsetningarreitnum. Aftur er honum heimilt að reita
hvar sem er hinum megin á taflinu með sama skilmála.
Hafi taflmaður misst mann útaf kemur hann honum
ekki aftur inn nema að upp komi hagstæð tala á tening-
unum. T.d.: Hvítur á mann utangarðs. Hjá Svarti eru
reitir 4 og 5 eða á þeim ein tafla. Hvítur verður þá að fá
4 eða 5 til að kornast aftur inná heimaborð. Takist ekki
að komast inn er Hvítur leiklaus, þ.e. má ekki hreyfa
aðrar töflur sínar.
Þegar tekist hefur að koma öllum töflunum á þá hlið
sem að manni snýr, úttektarborðið, er farið að taka út.
Úttektin er fólgin í því að leika töflum sínum út af borð-
inu, og eru þær þá úr sögunni. Þegar leikið er útaf er
talið eins og þegar töflum er komið inn. Sá vinnur leikinn
sem fyrr kemur öllum sínum töflum út.
Jan eða úttekt eru aðalvinningarnir í Kotru, en auk
þess eru til aukavinningar og eru þeir: meistari, stutti
múkur, langi múkur og langihryggur eða rasslangur.
Meistari er fólginn í því að geta sett aflar töflur upp á
hinum ysta reit sem þær geta verið á. Ef Hvítur hefur
fimm töflur á hverjum hinna þriggja síðustu reita þá
hefur hann fengið stutta múk. Ef hann hefur þrjár töflur
á fimrn síðustu reitunum þá hefur hann fengið langa múk.
Rasslangur eru þrjár töflur á hverjum reitanna 7-8-9-10
og 11. Hann kemur varla fyrir nema mótstöðumaðurinn
eigi töflu á reit 12.
Jan er mestur vinningur í Kotru, en þá er annar Jan
þegar hann á fleiri töflur dauðar en honum er mögulegt
að koma inn. Við Jan endar taflið sem eðlilegt er og eins
við úttekt, sem er venjulegasti vinningurinn.
Vinningarnir reiknast í tölum: Einföld úttekt 2, langi
hryggur 3, langi múkur 5, stutti múkur 7, meistari 13,
jan 15. Fyrir mor bætast 2 við hvern vinning. Sumir leyfa
þeim sem seinna lék í taflinu að leika einu kasti eftir að
liinn hefur tekið út, og láta verða jafntefli ef þá verður
jafnt. Þessi regla kemur einkum til greina við úttekt. Það
eykur hvern vinning ef mótteflandinn á dauða töflu þegar
vinningur fæst, er þá kallað að mótteflarinn verði mor í
úttekt, múkum o. s. frv.
Nú hefur annar taflmaðurinn unnið úttekt, leyfa þá
sumir mótherjanum aukaköst: fimmtán til að koma sér
upp meistara, 10 fyrir stutta múk, 5 fyrir langa múk og
eitt fyrir rasslang. Nú vantar taflmanninn t. d. 5 til þess
að fá meistara, múk eða rasslang. Leyfa þá sumir að kastað
sé einum teningi í senn. Komi þá í fyrra kastinu upp 5
fæst hálfur vinningur, en fáist samanlagt 5 í báðum köst-
um, t. d. 2 og 3, fæst heill vinningur.
HUGUR OG HÖND
9