Hugur og hönd - 01.06.1977, Side 31
heklaður kjóll
Stærð: 40-42.
Mál: Brjóstvídd 88 cm. Mitti 78 cm.
Mjöðm 96 cm. Pilsvídd við neðstu
brún 172 cm. Pilssídd frá mitti 82
cm. Öll sídd frá hálsmáli 122 cm.
Ermavídd um handlegg 30 cm.
Ermalengd frá handveg 40—42 cm.
Ráðlegt er að lesa uppskriftina yfir
áður en byrjað er að vinna.
Kjóllinn heklaður úr ljósmórauðu tví-
bandi með heklunál nr. 3. Heklað
er með stuðlahekli og víxluðum stuðl-
um. (Víxlaðir stuðlar: x sleppið 1 1.
heklið 1 st. í þar næstu 1. og lieklið
1 st. í þá 1. sem sleppt var x. Endur-
takið frá x til x). Athugið að herða
ekki víxlst. umf. svo að hún verði
ekki lægri en st. umf.
Byrjað er við hálsmál kjólsins og
heklað að og frá klauf á miðju baki
(klaufarl. 22—28 cm. Þegar klauf lýkur
er stk. lagt á víxl um 2 1.). Jafnhliða
frá byrjun er aukið út fyrir ermum
á ská niður í handveg. Þyki æskilegt
að víkka ermina má gjarnan auka út
á miðri ermi líka nokkrar 1. með 2ja
umf. millibili. Síðan er hekl. áfram
í hring niður blússuna og pilsið og
samskeyti höfð fyrir miðju að aftan.
Mynsturbekkir kjólsins eru hafðir með
óreglulegri breidd er mælast frá háls-
máli að framan þannig: 1 umf.
stuðlah. og 1 umf. víxl. st. sem heklað
er til skiptis 29 cm, þá 5 cm víxl st.,
10 cm st. (mitti), 7 cm. víxl st., 4 cm.
st., 7 cm. víxl st., 4 cm. st. 7 sm.
víxl. st., 4 cm. st., 8 cm. víxl. st., 4
cm. st., 9 cm. víxl. st„ 4 cm. st. og
18 cm. víxl. st. eða áfram sama mynst-
ur niður þá sídd er hæfir.
Ermi: Mynstur ermarinnar kemur af
sjálfu sér sem sama mynstur og á
herðastykki kjólsins, að handvegi. Þá
eru hekl. 8 cm. til viðbótar með sama
mynstri og síðan 6 cm. víxl. st„ 4
cm. st„ 7 cm. víxl. st„ 4 cm. st„ 6 cm.
víxl. st. og 5 cm. st. eða áfram þá lengd
er hentar.
Aukið er út á hliðum kjólsins í stuðla-
heklsbekkjunum svo lítið beri á og
víxl. st. ruglist ekki.
Fitjið upp 80 loftl. í hálsmál og heklið
áðurnefnt mynstur frá klauf á miðju
baki. 1. umf.: Hekl. 14 st„ (i/2 bakstk.)
aukið þá út með því að hekla 2 st. í
næstu 1. og hafa 2 loftl. á milli þeirra,
þá 10 st. sem ermi, 2 st. í sömu 1. með
2 st. á milli á sama hátt og áður, þá
14 st. að miðju framstk. sem er haft
heilt eins og sést á myndinni. Síðan
er umf. hekl. á sama hátt frá miðju
og lýst var að miðju.
Heklið áfram niður herðastykkið og
aukið út fyrir skáermum á sama hátt
og áður var lýst. Ath. að aukn. færist
ekki til, merkið og teljið 1. öðru
hverju.
Þegar stk. mælist 24 cm. frá miðju
hálsmáli að framan eða hefur náð
eðlilegri lengd að handveg eru erm-
arnar afmarkaðar með því að fitja
upp 6 loftl. fyrir undirermi báðum
megin. Síðan er heklað áfram niður
blússuna eins og áður að viðbættum
6 loftl. í handvegi. Taka má úr ef vill
3—4 1. á hvorri hlið frá handvegi að
mitti.
Heklað er án aukn. niður á mjaðm-
ir eða þar til í 1. stuðlabekk eftir 10
umf. í mitti. Aukn. eru gerðar í hv.
umf. stuðlaheklsbekkjanna og að
mestu á hliðunum þannig að pilsið
líkist venjul. útsniðnu pilsi:
1. bekkur 7 1. í hv. umf.; 2. bekkur
6 1. í liv. umf.; 3. bekkur 6 1. í hv.
umf.; 4. bekkur 7 1. í hv. umf. og síð-
asti bekkur 6 1. í hv. umf.
Ermar: Heklið ermina í hring áfram
með áðurnefndu mynstri og bætast
6 uppfitj. 1. við hana í handveg. Tekið
er úr á undirerminni eins og henta
þykir fyrir vídd ermarinnar frá oln-
boga og fram þá ermalengd sem ósk-
að er. HeklMraman á ermarnar 1 umf.
fastah. frá vinstri til liægri svo litlir
oddar mynclist.
Hálslíning: Hekl. frá réttu st. í háls-
málið frá klauf að miðri ermi. Hekl.
þá 1 fastal., 3 keðjul. og snúið við.
Hekl. 1 keðjul., 1 fastal. og stuðla
liekl. að klaufinni. Endurtakið einu
sinni til viðbótar eða þar til líningin
nær æskilegri hæð að aftan. Heklið
hinn hluta líningarinnar á sama hátt
en gagnstætt. Hekl. á líninguna 1
umf. fastah. frá vinstri til hægri og
ermarnar. Hekl. 1 umf. keðjuh. í
klaufina og lokið henni með nokkr-
um smellum eða hneppslum og
hnöppum. Þorbjörg Agnarsd.
HUGUR OG HÖND
31