Hugur og hönd - 01.06.1980, Qupperneq 4
blindrafélagið - samtök blindra
og sjónskertra ó Islandi
Það eru orðin 40 ár og einu betur síðan fámennur hópur
blindra ásamt þremur sjáandi kom saman í Reykjavík
og stofnaði mcð sér Blindrafélagið, eða 19. ágúst 1939.
Var þessa afmælis minnst á ýmsan hátt í fyrra (1979),
og þó seint sé viljum við senda blindum kveðju okkar
og minna á hve „hugur og hönd“ er einmitt mikið rétt-
nefni á því starfi sem fram fer í þessum félagsskap.
Það er fróðlegt fyrir sjáandi mann að koma í Félags-
miðstöðina að Hamrahlíð 17 sem er veglegt hús í eign
félagsins og næstum ótrúlegt hvernig fámennur hópur af
blindu fólki hefur getað, — að vísu með aðstoð — komið
sér upp svo myndarlegri stofnun. Hér fer fram mikil og
fjölbreytt vinna í húsinu. Þarna eru skrifstofur og ráð-
gjafaþjónusta, blindravinnustofa, hljóðbókagerð, blindra-
letursbókasafn, heilsurækt, föndurherbergi og einkarekst-
ur blindra sem hafa húsnæði á leigu fyrir iðn sína.
Auk þess eru íbúðir, mötuneyti og gestaherbergi. Nú-
verandi formaður félagsins er Halldór Rafnar.
Hljóðbókagerð er ört vaxandi þáttur í starfseminni á
seinni árum. Þörfin er mikil og stöðugt fleiri — ekki bara
blindir, heldur veikir af ýmsum orsökum þannig að þeir
geta ekki lesið — komast upp á lag með að notfæra sér
þessa tegund bóka. Auk þess koma út hjá þeim „valdar
greinar“, nokkurs konar tímarit á spólum, sem auðveldar
blindu fólki að fylgjast með því sem gerist í samfélaginu.
Fyrir þessa bókagerð er fullkomið upptökuherbergi þar
sem vinnur einn upptökumaður í fullu starfi, en pláss
fyrir tvo lesara. Lesarar koma í sjálfboðavinnu.
I blindraleturssafninu fer fram fjölritun á blindraletri,
ss námsbókum fyrir blindraskólann. Þarna er mikið safn
bóka á íslensku og norðurlandamálunum og má Rósa Guð-
mundsdóttir umsjónarmaður safnsnis muna tímana tvenna
frá því hún byrjaði ein af fyrstu nemendum í Blindra-
skólanum á Elliheimilinu Grund 1933, þá 10 ára gömul
og fór frá Austurhlið í Laugardal vestureftir, daglega.
Lærði hún þar bæði blindralestur og reikning. Hún hefur
sjálf skrifað eftir segulbandi á blindraletur og fjölritað
geysimikið af þeim bókum sem eru á safninu.
Á vinnustofunni eru framlciddir burstar og sópar ýmiss
konar, bæði vélunnir og handídregnir og gerðar öskjur
utan um skartgripi og borðbúnað. Vinnustofan er rekin
fyrir eigin reikning, og þess má geta að þessi stofa stendur
undir sér og er það vegna vélvæðingar sem kom fyrr hér
en í öðrum löndum. Vélar voru keyptar í Þýskalandi og
þó seljendur hristu höfuðin yfir þessu fyrirtæki og efuð-
ust um að bliudir gætu unnið við þær, fóru okkar menn
samt heim með sínar vélar og stjórna þeim hér með prýði,
eins og sést á meðfylgjandi mynd, og sönnuðu með því
að þetta var hægt.
Burstagerð hefur annars öldum saman verið unnin af
blindu fólki. Ennfremur körfugerð. Nú er körfugerð stund-
uð sem einkarekstur eins og húsgagnabólstrun, píanóvið-
gerðir og stillingar, nudd og gufubaðstofa. Símavarsla er
líka stunduð af blindum og dimmstofuvinna, þ.e. fram-
köllun mynda.
Það var með því hugarfari að þarna gæti ég lýst hand-
verkinu við burstagerð og körfugerð, sem ég fór inn í
þetta merkilega hús, en þá blasti við sú staðreynd að ég
var hálfri öld á eftir tímanum. Það er svo margt sem
blindir gera núna framyfir handverkið góða. En það er
ekki úr sögunni fyrir því. Fólk stundar handavinnu hér
einsog annars staðar, td. föndur og alls konar prjónaskap
handa sér og sínum, eða safnar á basarinn sem haldinn
er árlega til styrktar félagsskapnum. Þá er oft komið sam-
an á kvöldvökum og unnið sameiginlega.
Okkur sem höfum sjón finnst þetta allt sjálfsagt þegar
sagt er frá því, en það er aðeins í andrúmslofti þessa húss
sem okkur verður ljóst hvað raunverulega þarf að leggja
á sig til að vinna þau störf sem þarna eru innt af hendi.
Það er ósegjanlega mikil ósérhlífni og þrautseigja sem
þar liggur að baki.
Mér finnst ég ekki geta komið betur orðum að því að
lýsa þeirri fyrirhöfn, en með því að láta fylgja hér á eftir
frásögn úr grein Jónasar Árnasonar um Þórð á Mófells-
stöðum. En greinin birtist í tímaritinu Syrpu 1948.
A.S.
4
HUGUR OG HÖND