Hugur og hönd - 01.06.1980, Page 27
grá peysa með kraga
Efni: 4—500 gr plötulopi frá Gefjun.
Hringprjónn nr. 6.
Ermaprjónn nr. 4.
Þensla: 15 1 - 17 um = 10 cm.
Prjónað er úr einum þætti af ljós-
gráum og einum þætti af dökkgráum
lopa. Fitjaðar upp 130 1 prj í hring 1
br 1 sl í 8 umf en í 4. og 5. umf er gerð
mórauð rönd og í 6. umf sauðsvört.
Sams konar rendur eru á ermabrugðn-
ingum og kraga.
Skipt yfir á sl prj og prj 44 umf. Þá
er prj skárandamunstur til skiptis 2 1
ljósgráar og 2 dökkgráar sem færast
til eftir hverjar tvær umf. Þessu er
haldið áfram í 56 umf.
Nú eru lykkjur á framstykki 62+3
+3 geymdar, en 62 1 á baki eru prjón-
aðar 1 sl 1 br fram og til baka úr ein-
um þætti ljósum og einum dökkum
í 28 umf í 18. umf sauðsvört rönd en
19. og 20. umf mórauð. Þetta stykki
myndar herðalista og kraga. Fellt af
með garðaaffellingu.
Þá er merkt fyrir handveg 29 cm
djúpum. Stungið í saumavél í lykkj-
ur beggja vegna merkiþræðingar.
Klippt á milli. í þetta iara 3 1 hvoru
mcgin. Hliðarnar á kragastykkinu eru
nú brotnar fram og saumaðar við efri
brún framstykkis, má gjarna ganga á
misvíxl að framan.
70 1 eru teknar upp við handveg og
ermi prj fram. Teknar úr 2 1 undir
hendi í annarri hverri umf 6 sinnum,
síðan í fjórðu hverri umf þar til búið
er að prjóna 78 umf. Þá er skipt yfir
á prj nr 4 og prj 1 sl 1 br í 14 umf með
1 mórauðri og einni sauðsvartri rönd.
Peysan þvegin vel, þerruð í hand-
klæði og lögð slétt til þerris.
V. P.
HUGUR OG HOND
23