Hugur og hönd - 01.06.1980, Page 41
leifsdóttir þann þátt fyrir íslends hönd. Eftir nokkrar um-
ræður um þessi málefni var þingi slitið.
Hátíðlegt lokahóf með skemmtiatriðum og góðum mat
var haldið um kvöldið. I hófinu voru þau Kaj Nuorivaara
frá Finnlandi og Signe Rutlin frá Noregi sæmd æðsta heið-
ursmerki norsku heimilisiðnaðarsamtakanna. Þau hafa
bæði árum saman verið virkir þátttakendur og miklir
áhugamenn um norrænt samstarf í heimilisiðnaðarmálum
og driffjaðrir hvort í sínu landi og því vel að heiðrinum
komin. Viðstaddir samfögnuðu þeim innilega.
Þingið fór vel fram og samkvæmt áðurnefndri dagskrá,
og þar var margt að sjá og heyra. Eftir á vakna þó þær
spurningar, hvort ekki myndi æskilegra að taka fyrir
færri og betur afmörkuð málefni. Hvort umræður og nið-
urstöður þeirra yrðu ekki áþreifanlegri, heldur en þegar
fjallað er um s ovmörg og yfirgripsmikil mál sem hér
var gert. Þetta teljum við að þyrfti að taka til athugunar
á næsta formannafundi Norræna heimilisiðnaðarsam-
bandsins, sem haldinn verður í Svíþjóð á næsta ári. Næsta
heimilisiðnaðarþing verður í Danmörku árið 1983.
S.H.
hugur og hönd
37