Hugur og hönd - 01.06.1984, Page 13
indi, en Þorvaldur var þar vinnumaður. Bauðst hann til
þess að fylgja mér að Kjalvararstöðum en á þeirri leið
eru blautar og þýfðar mýrar. Þorvaldur átti sokk á prjón-
unum, sem hann greip með sér. Lét hann nú prjóna
ganga ótt og títt alla leiðina og stiklaði fimlega á þúf-
unum kringum reksturinn. Þetta verk var honum í senn
bæði nautn og íþrótt, enda hafði hann æft það frá barn-
dómi. Lagði hann aldrei niður að ganga með prjóna sína
að og frá verki.
(Kristleifur Þorsteinss. 222)
Og að lokum er hér ein sorgarsaga um prjónandi
karlmann.
. . . Og maður einn eystra reikaði prjónandi fram af
sjávarhömrum.
(Jón Espólín 34)
Það voru fleiri en karlmenn sem gengu prjónandi í
ógöngur.
Á þessum hraunslóðum skeði sá atburður að ung kona
þar úr sveit gekk við ásauði og hóaði saman til kvía, hún
hélt á prjónunum eins og venja var á tímum vinnuhörk-
unnar og hraðaði göngunni. Þessi kona var smalavön og
kunnug hrauninu en í þetta sinn kunni hún fótum sínum
ekki forráð og féll í hraungjótu. . . Ekki slasaðist hún í
fallinu svo til baga væri en kom niður á fæturna og hélt á
leist og bandi. . . Hún reyndi af fremsta megni að róa
hugsunina og hélt áfram að prjóna. . .
(Tryggvi Emilsson 329)
Þegar líða tekur á 19. öldina verður prjónaskapurinn
meira og meira kvennaverk. Skammast karlmenn sín þá
jafnvel fyrir að læra slík verk eða yfirleitt að vinna ullar- og
innivinnu.
Sara Bertha Þorsteinsdóttir
Valgerður Kristín Sigurðardóttir
Heimildaskrá:
Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson: Ferðabók, um ferðir þeirra á fs-
landi árin 1752-1757, Reykjavík, Bókaútg. Örn og Örlygur hf. 1975.
Elínborg Lárusdóttir: Tvennir tímar, endurminningar Hólmfríðar
Hjaltason, Akureyri, Bókaútg. Norðri 1949.
Friðrik Friðriksson: Óðinn XXI árg. 1925, bls. 52.
Gils Guðmundsson: Þjóðlífsmyndir, Reykjavík, Iðunn 1949.
„í Eyjafirðifyrir50-60 árurn" (án höf.) Hlín, 19. árg. Akureyri, 1935.
Jón Espólín og Einar Bjarnason: Saga frá Skagfirðingum (III) 1685-
1847. Reykjavík, Iðunn 1978.
Jónas Jónasson frá Hrafnagili: íslenskir þjóðhœttir, Reykjavík, Jónas
og Halldór Rafnar, 1945.
Kristleifur Þorsteinsson: Úr byggðum Borgarfjarðar (I og II) Reykja-
vík, Prentsm. Leiftur hf. 1971 og 1972.
„Litið inn á Laufásveg" (án höf.) Hugur og hönd 3^1. Ársrit Heimilis-
iðnaðarfcl. ísl. 1966.
Lýður Björnsson: Frá siðaskiptum til sjálfstæðisbaráttu, íslandssaga
1550-1830, Reykjavík. Bókaverzl. Sigfúsar Eymundssonar 1973.
Magnús Hólm Árnason: Ljúfa vor, Ak. 1961.
Snorri Sigfússon: Ferðinfrá Brekku, Reykjavík, Iðunn 1968.
Tryggvi Emilsson: Fátœktfólk I, Reykjavík, Mál og menning 1976.
Vilhjálmur S. Vilhjálmsson: Halldóra Bjarnadóttir, Ævisaga, Reykja-
vík, Setberg 1960.
Þorkell Bjarnason: Sögn ogsaga. Reykjavík, Iðunn 1949.
Þorkell Jóhannesson: Ullariðnaður, Iðnsaga ísl. II, Iðnaðarmannafé-
lagið í Reykjavík 1943.
HUGUR OG HÖND
13