Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 2
3
C
■ ■■
U)
fö
'Q)
fö
ro
c
E
'o>
Heimilisiðnaðarfélagið og Árbæjarsafn
Sýningar
Á vegum félagsins og Árbæjarsafns hefiir
verið efnt til tveggja sýninga í sumar um
tóvinnu og faldbúninga sem hafa verið vel
sóttar og fengið góð ummæli. Sýningin
um tóvinnu mun standa í 2 ár og líkur á
að Faldbúningasýningin geri það líka. Það
er ánægjulegt að á þessu fyrsta ári félagsins
á nýjum stað, Nethylnum, hafi tekist svo
vel til með samvinnu við safnið. Oskandi
er að sú samvinna dafni og styrki jafnt
félag sem safn.
Tóvinna
Á tóvinnusýningunni er lýst sögu
tóvinnu frá Iandmámi fram til loka
20. aldar. Sýnd eru sýnishorn af þeim
mörgu afurðum sem unnar voru úr
ullinni áður fyrr en sú vinna dalar er
líður á 20. öldina og heyrir ekki lengur
undir dagleg störf á heimilum, vélar
hafa tekið við. En ullin var hráefnið
sem fatnaður var unnin úr, hvort sem
var til dagslegs brúks eða til hátíða
auk þess sem framleiðsluvörur úr ull
öfluðu heimilunum tekna. Áhöld sem
notuð voru við vinnsluna og fjölbreyttir
munir, nýir sem gamlir, unnir úr ull eru
sýndir. Vísað er til orðtaka sem enn eru
á vörum landans.
Faldbúningurinn
Faldafeykir er starfshópur innan félagsins
sem hefur undanfarin ár unnið að
heimildaöflun um gamla faldbúninginn
en notkun hans lagðist af að mestu um
miðja 19. öld. Markmiðið hefur verið að
skýra gerð hans og skrá til framtíðarnota.
Þessi vinna hefur skilað þeim árangri að á
námskeiðum í Heimilisiðnaðarskólanum
er nú kennt að sauma faldbúninga.
Kennslan felst í röð námskeiða þar
sem hlutar búningsins eru teknir fyrir.
Kennarar á námskeiðunum hafa allir
tekið þátt í rannsóknarvinnunni.
Sameiginlega hefur hópurinn saumað
faldbúning sem er í eigu félagsins (sjá
Hug og hönd 2003).
Á sýningunni eru sýndir faldbúningar
sem Faldafeykiskonur hafa unnið, tveir
búningar eru sýndir í senn og skipt út
mánaðarlega.
Þjóðminjasafnið hefur einnig lánað á
sýninguna muni og hluta af búningum.
Tóvinnusýningin.
Sýningfaldafeykis.
Hugur og hönd hefur síðustu 6 árin veriðgefið út undir stjórn undirritaðrar og hefur verið
afar ánœgjulegt að kynnast og starfa með ritnefndarkonum og þeim mörgu sem hafa lagt
okkur lið á einn eða annan hátt. Nú tekur nýtt fólk við og óska ég þeim farsteldar í starfi.
Þökk ykkur öllum.
Heiður Vigfúsdóttir
2 HUGUR OG HÖND 2008