Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 29
kynntist þar fj ölbreyttri handavinnu. Hún
nam síðar í Húsmæðraskóla Reykjavíkur
og við Handavinnukennaradeild
Kennaraskólans. Námskeið hefur hún
stundað af kappi heima sem heiman.
Leiðir hennar og Heimilisiðnaðarfélagsins
hafa legið saman lengi. A fyrstu árum
Heimilisiðnaðarskólans hóf hún að
kenna þar gerð sauðskinnskóa og hefur
hún ávallt verið félaginu hollur liðsmað-
ur, óspör á góð ráð og að lána gripi sína
Hedebosaumur er unninn í opinn grunn,
þ.e. efniS hefur verið klippt í burtu og
munstur er saumaS (brugðið) með nál og
þrœði í gatið.
á kynningar og sýningar á þess vegum.
Helga hefur einnig starfað mikið innan
Þjóðdansafélags Reykjavíkur allt frá upp-
hafi, tekið þátt í að sauma þjóðbúninga,
haft umsjón með búningum félagsins og
séð um útleigu á búningum í eigu þess.
Helga hefur lengi rekið þátt í far-
fuglahreyfmgunni heima sem heiman
og ferðast víða. I ferðum sínum hefur
hún safnað ótrúlega íjölbreyttu hand-
verki. Helga var handavinnukennari í
Kvennaskólanum, Hagaskóla og í 25 ár í
Öldurúnsskóla í Hafnarfirði.
I tilefni þess að hún varð áttræð á liðnu
sumri (2007) færir ritnefnd henni þakkir
fyrir störf í þágu blaðs og félags og flytur
henni innilegar árnaðaróskir.
Heimild:
Weldon's Encyclopedia of Needlework
[1940?] Waverly Books, s. 153 og 480.
I hvítsaumsgrunnum eru dregnir þrœðir
úr efhinu en aðrir látnir standa eftir og
er brugðið um þá þrœði með nálinni á
margvíslegan hátt.
Grunnar eru unnir með heklugarni nr. 40-50.
Franskur saumur sem umlykur grunnana er líka í leggjum og blöðum og er saumaður með bródergarni með snúð nr. 25.
Húllsaumur (raksaumur). Það tók Helgu klukkutima að gera hverja munstureiningu.
Húllfaldurinn var saumaður með heklugarni nr. 40.
HUGUR 0G HÖND 2008 2 9