Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 12

Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 12
(Geir Waage, 1990:38-39). Er því mjög sennilegt að þær hafi lært hannyrðir á sínum yngri árum. Hafi konan sem lauk við frágang á verki sínu árið 1719 verið búsett á prestsetrinu í Reykholti, er Helga líklegri því að Hólmfríður var þá komin á áttræðisaldur. Þar sem ekk- ert fangamark er á gamla klæðinu verður líklega aldrei hægt að færa sönnur á hver vann verkið. Samt sem áður er það veg- legur minnisvarði um iðjusemi formæðra okkar á 18. öld. Heimildir. Geir Waage (1990). Reykholt: Sögustaður jyrr og nú. Reykjavík: Reykholtskirkja, Snorra- stofa. Elsa E. Guðjónsson (2003). Islenskur útsaumur. Kópavogi: Elsa E. Guðjónsson, 2. útg. Gamla klœðið bœtt og lagfzrt á Þjóðminjasafni Islands. Ljósm. Asdís spor eða klofinn varpleggur, en kallast á íslensku einfaldlega blómstursaumsspor. I fyrstu var blómstursaumurinn unninn með ýmsum sporum, svo sem varplegg, mislöngum sporum og fræhnútum" (Elsa E. Guðjónsson, 2003:44-45). Bekkurinn neðst og til hliðar á klæðinu líkist mjög þeim bekkjum sem prýddu samfellur (pils) faldbúninga kvenna á öldum áður. I fyrstu eða í byrjun 18. aldar virðast faldbúningar hafa verið skreyttir með borðum neðst á samfellum en um miðja 18. öld fara útsaumsbekkirnir að sjást. Munstur mjög líkt því sem er á alt- arisklæðinu er til á gamalli samfellu. Það er því ekki fjarri lagi að álykta að konur hafi tekið upp munstur af kirkjusaumi og öðru sem til féll þegar þær fóru að skreyta samfellur með útsaumi. Þess má geta að vinnan við endurgerð altarisklæðisins tók u.þ.b. fjóra mánuði miðað við fjörutíu stunda vinnuviku. Enn lengri tíma hefur það tekið að gera gamla klæðið því að á þeim tíma þurfti fyrst að rýja féð, þvo ullina, taka ofan af, kemba og spinna allt band bæði í klæði og útsaum og síðan að vefa dúkinn. Fyrir litun á bæði dúk og bandi varð að afla sér indígólitar og safna jurtum. Þá loks var hægt að hefjast handa við útsauminn. En hver skyldi hún hafa verið þessi kona sem árið 1719 lagði síðustu hönd á margra mánaða, ef ekki margra ára verk? Arið 1692 vígðist Hannes Halldórsson (f. 1668, d. 1731) sem aðstoðarprestur föður síns Halldórs Jónssonar (f. 1626, d. 1705). Síra Hannes varð prófastur í Reykholti árið 1705 þegar faðir hans dó. Móðir hans Hólmfríður Hannesdóttir (f. 1641, d. 1731) bjó áfram í Reykholti eftir að hún varð ekkja. Seinni kona Hannesar og prestsfrú í Reykholti frá árinu 1708 til 1730 var Helga Jónsdóttir (f. 1678, d. 1730). Þessar tvær konur bjuggu í Reykholti á þeim tíma er klæðið var saumað. Hólmfríður var dóttir lög- réttumanns en Helga dóttir sýslumanns Nýja klœðið og það gamla, sama rósin. 12 HUGUR0G HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.