Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 25

Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 25
Jóhanna Pálmadóttir Ábreiða Halldóru Bjarnadóttur Halldóruteppi er 247x 157 sm að stœrð, band- og vélsaumað úr bómullarefnum. Það er varðveitt d Heimilisiðnaðarsafninu á Blönduósi. Veturinn 1936-1937 barst Halldóru Bjarnadóttur heimilis- ráðunauti boð frá Þjóðræknisfélagi Islendinga í Vesturheimi og Kvennasambandinu um að koma í heimsókn vestur um haf og halda þar fyrirlestra og jafnframt að hafa meðferðis sýningu á því sem helst væri á döfmni í hannyrðamálum Islendinga en þar bar ullina hæst. Halldóra þáði boðið að heimsækja Islendingabyggðir og að sjá og upplifa hvernig löndum okkar þar búnaðist. Einnig mun löngun hennar til að kynnast hálfsystrum sínum þremur og fjölskyldum þeirra, sem búsettar voru í Vesturheimi, hafa haft sitt að segja. Halldóra ferðaðist fram og aftur um Bandaríkin og Kanada með töskur sínar ólæstar eins og hún segir í ævisögu sinni sem skráð var afVilhjálmi Þ. Vilhjálmssyni, án þess að þjófar hefðu áhuga á innihaldi þeirra. Þegar hún hélt fyrirlestra og sýn- ingar klæddist hún ávallt skautbúningi móður sinnar, Bjargar Jónsdóttur. Björg saumaði búninginn á árunum 1870 -'71. Sá búningur er til sýnis í Halldórustofu Heimilisiðnaðarsafnsins á Blönduósi. Varð Halldóru að orði að hvar sem hún hafi komið og sagt frá því sem væri að gerast hér heima, þá vissu Vestur-íslendingar alltaf um það og jafnvel betur en hún sjálf. Einum karlinum varð að orði: „Þú sagðir okkur ekkert sem við vissum ekki áður.” Hún var mjög ánægð með hvað Vestur-íslendingarnir fylgdust vel með því sem var að gerast hér heima. Hún heim- sótti nánast alla þéttbýliskjarna þeirra og nokkur sveitabýli, alls staðar var töluð íslenska. I tilefni af komu Halldóru til Vesturheims saumuðu konur í Kvenfélagi íslenskra kvenna í Winnipeg bútasaumsteppi til að gefa henni að skilnaði þegar hún færi. Þær völdu munstur er kallast vinahnútur, það var vel við hæfi. Mikið af teppinu er saumað í saumavél en mest er handsaumað. Teppið er 247x157 sm að stærð, úr bómullarefni með blómamunstri í gulum litum á hvítum grunni. Vandað er til verksins og vek ég sérstaka athygli á köntum teppisins sem eru listilega gerðir. Þetta er fallegt teppi sem hefur varðveist vel. Má geta sér þess til að þetta rúmteppi sé elsta „orginal” bútasaumsteppi sem hefur varðveist hér á landi. Halldóra segir sjálf að hún hafi einungis notað það á jólunum og er sú hefð enn í heiðri höfð. Elín Sigurðardóttir forstöðukona Heimilisiðnaðarsafnsins breiðir alltaf teppið yfir rúmið hennar Halldóru á Þorláksmessu og þannig er það yfir hátíðirnar. Að öðru leyti liggur það yfir rúminu til fóta svo að gestir safnsins getið skoðað það. HUGUR OG HÖND 2008 25

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.