Hugur og hönd - 01.06.2008, Blaðsíða 42
Ásta Kristín Siggadóttir
Glaðlegir krakkasokkar
Ljósm. Binni
Efni: Léttlopi frá ístex, tvær 50 gr. hnotur í sitt hvorum lit.
Sokkaprjónar nr. 4 Vi.
Prjónfesta: 9 L í sl prj gera 5 cm.
Stærðir: 2, 4 og 6 ára.
Skammstafanir:
cm sentimetrar
prj prjóna óprj óprjónuð (lykkja)
umf umferð(ir) L lykkja(ur)
sl slétt prjón br brugðið prjón
Stroff: Fitjið upp á sokkaprjóna nr. 4 Vi með lit A, 28-30-32
L og deilið jafnt niður á 4 prjóna (fyrir 4 ára verða 7 og 8 L til
skiptis á prjónunum). Prj í hring 10-11-12 cm stroff (1 L sl og
1 L br). Slítið frá, prj svo 4 umf sl með lit B og slítið frá.
Hæll: Færið L á 1. prjóni yfir á 4. prjón, þá eru 14-15-16 L
á hælprjóninum. Byrjið á 4. prjón og prj frá réttu með lit A á
hælprjóninn, sl á réttu og br á röngu 11-13-15 umf.
Hælártaka: Prj frá röngu 8-9-9 L br, prj 2 L br saman. 'Snúið
við, takið 1. L óprj, prj frá réttu 2-3-2 L sl takið 1 L óprj, prj
1 L og steypið óprj L yfir. Snúið við og takið 1. L óprj, prj 2-
3-2 L br, prj 2 L br saman*. Endurtakið frá * - * þar til 4-5-4
L eru eftir á prj. Slítið frá.
Framleistur: Umf byrjar á miðri il, prj er sl í hring frá réttu.
Færið 2-3-2 L á hælprjóninum óprj yfir á prjóninn sem prj skal
með og prj síðan með lit B frá réttu 2 L á hæl, prj upp 7-7-8 L
á fyrri hælstalli (1. prjónn). Prj L sl á næstu tveimur prjónum
(ristarprjónum, 2. og 3. prjónn). Prj upp 7-7-8 L á seinni hæl-
stalli og næstu 2-3-2 L sem teknar voru óprj á hælprjóni (4.
prjónn). Prj eina umf.
Urtaka við ökkla: Takið úr á 1. og 4. prjóni þannig:
l.prjónn: prj þar til 3 L eru eftir á prjóninum, prj 2 L saman,
prj 1 L. 2. og 3. prjónn: prj sl. 4. prjónn: Prj 1 L, takið 1 L
óprj, prj 1 L og steypið óprj L yfir, prj afganginn af L. Prj 1
umf og takið síðan aftur úr eins og getið var um. Nú eru 28-
30-32 L á prjónunum. Prj þar til framleistur mælist 8-9-10
cm. Slítið frá.
Tá: Prj með lit A 1. umferð án þess að taka úr.
Urtaka á tá:
1. og 2. prjónn: Prj 1 L, takið 1 L óprj, prj 1 L og steypið
óprj L yfir, prj afganginn af L. 3. og 4. prjónn: Prj þar til 3 L
eru eftir á prjóninum, prj tvær L saman, prj 1 L. Prj 2 umf án
úrtöku, takið úr í næstu umf eins og áður er lýst. Prj 1 umf án
úrtöku, takið úr í næstu umf þar til 8-10-8 L eru eftir á prjón-
unum. Slítið frá og dragið endann í gegn.
Frágangur: Gangið vel frá öllum endum á röngu og þvoið
sokkana úr volgu sápuvatni og leggið þá slétta til þerris.
42 HUGUROG HÖND 2008