Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 8
Elsa E. Guðjónsson
(slenskur faldbúningur og
danskur Amagerbúningur
Fyrir tíu árum, nánar til tekið 17. janúar 1998, birti Lesbók
Morgunblaðsins, bls. 1 og 8-9, greinina „Nýlega fundnar
Islandsmyndir frá 18. öld,“ eftirÆsu Sigurjónsdóttur og Giséle
Jónsson.
Myndir þessar eru eftir franskan listamann, Pierre Ozanne
(1737-1813) sem starfaði hjá franska sjóhernum og var með
í för til Islands sumarið 1772 á freigátunni „La Flore“ undir
forystu Jean René Antoine Marquis de Verdun de la Crenne
(1741-1805), en Islandsferðin var hluti af víðtækum leiðangri
sem gerður var út af Loðvík XV Frakkakonungi. Kom skipið til
Vatneyrar, Patreksfirði 1. júlí og hafði þar viðdvöl til 20. sama
mánaðar. (Framanskráð er lausleg samantekt á upplýsingum í
ofannefndri grein bls. 8-9).
Samkvæmt riti leiðangursstjórans, Verdun de la Crenne,
Voyagefaitparordredu Roi en 1771 etl772... (Paris, 1778), sem
1. mynd. Kona í faldbúningi. Mynd eftir Pierre Ozanne. „Islensk
kona. Patreksfjörður. 5. júlí 1772.“ Mynd teiknuð með tveimur
litum. Stœrð frummyndar um 20x25 cm. I einkaeign.
2. mynd. Stúlka/kona, að líkindum í Amagerbúningi. Mynd eftir
Pierre Ozanne 1772. „Patreksfjörður, ísland. “ Mynd teiknuð í
tveimur litum. Stœrð frummyndar um 20x25 cm. I einkaeign.
vitnað er til í nefndri grein, höfðu leiðangursmenn samskipti
við danskan einokunarkaupmann á staðnum, Dines Jespersen,
og einnig við séra Björn Halldórsson í Sauðlauksdal.
Lesbókargreininni fylgja m.a. tvær myndir af konum, og
segir þar að þær séu báðar klæddar íslenskum búningum. A það
örugglega við um konumyndina á bls. 1; hár hvítur, lítillega
frambeygður krókfaldur á höfði hennar og stinnur kraginn
skera úr um það, auk þess sem myndin er sögð bera áletrun í
efra hægra horni: „Islensk kona“ (sjá 1. mynd). Hinsvegar er
öllu ólíklegra að klæðnaður konunnar á hinni myndinni, á bls.
9, sé íslenskur búningur, þótt dlraun sé gerð, í meginmáli á
sömu blaðsíðu, til að lýsa honum sem slíkum (sjá 2. mynd).
Höfundur þessa greinarkorns telur vafalítið að stúlkan/
konan á myndinni sé dönsk, klædd búningi af þeirri gerð sem
tíðkaðist um þetta leyti með íbúum af hollenskum uppruna
á Amager suður af Kaupmannahöfn, bæði hvað varðar höf-
8 HUGUR 0G HÖND 2008