Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 10
Lilja Árnadóttir
Yfir hafið og heim
íslenskir munir frá Svíþjóð
Sýning í Bogasal Þjóðminjasafnsins
5. júní 2008 -31. janúar 2009
I ársbyrjun 2008 veitti Þjóðminjasafn
Islands viðtöku til ævarandi varðveislu
tæplega átta hundruð íslenskum gripum
frá Nordiska museet í Stokkhólmi.
Afhendingin var bæði sjálfsagt og kær-
komið tilefni til þess að efna til mynd-
arlegrar sýningar, sem opnuð var þann
5. júní 2008 og heitir Yfir hafið og heim.
Islenskir munir frá Svíþjóð. Þar eru sýndir
flestir þeir gripir sem fluttir voru yfir
hafið á síðari hluta 19. aldar og aftur
heim í ár. Markmiðið með sýningunni
er að gefa safngestum kost á því að virða
fyrir sér hið mikla magn gripa sem kom
til baka eftir langan tíma og veita jafn-
framt innsýn í það hvernig hlutir eru
varðveittir á safni. Sjálfur samningurinn
um afhendinguna markar tímamót í
samstarfi safna.
Mjög margir útskornir gripir úr tré, s.s.
kistlar og rúmfjalir, eru meðal gripanna,
fjöldi muna sem tengjast reiðverum,
söðuláklæði, búningar og búningahlut-
ar, búningaskart, rúmábreiður og margs
konar áhöld og verkfæri.
Gefið var út rit undir sama nafni Yfir
hafið og heim og er í því að finna ýmislegt
um gripina og söfnun þeirra. Ritið er
prýðilega myndskreytt og þar er listi yfir
alla gripina.
Ljósm. Birgir Guðjónsson
Rúmábreiður, útskornir kistlar og reiðtygjabúnaður.
10 HUGUR 0G HÖND 2008