Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 21

Hugur og hönd - 01.06.2008, Side 21
Krosssaumur. Arið 2003. Stœrð 47x51 cm. klukkustundum í að rekja hana upp og byrjar upp á nýtt. Guðrún er mikill listunnandi. Hún nýtur þess að fara í leik- hús, er í leiklistarklúbbnum Perlufestinni og finnst gaman að dansa og syngja. En hún þekkir ekki mikið til myndlistar, hefur aldrei lært formfræði, litafræði, listasögu og hún veit ekki hver Kaffee Fassett er. Verkin hennar koma innan frá, kvikna úr ein- hverju sem enginn veit hvað er, síst af öllum hún sjálf. Guðrún saumar eins og aðrir listamenn mála, syngja eða dansa. En ekki til að svara eftirspurn eða auka hróður sinn, heldur af því að í henni býr hreinskipt og óskilgreind þörf til að tjá og skapa og í krosssaumnum finnur Guðrún tjáningunni farveg. Sýningar Guðrún Bergsdóttir hefur haldið nokkrar sýningar á verkum sínum. Arið 2003 sýndi hún krosssaumsmyndir í bókasafninu í Gerðubergi og bókasafni Hafnarfjarðar. Hún hélt einkasýningu ákrosssaumsmyndum og tússmyndum í Gerðubergi 2006- 7 og tók þátt í sýningunni List án landamæra með Gjörningaklúbbnum árið 2007. í lok árs 2007 var Guðrún með tússmyndir á sýningu Mary Ellen Mark, Undrabörn, í Þjóðminjasafninu. í apríl/maí 2008 sýndi Guðrún valdar krosssaumsmyndir á Mokka, sem var hluti af List án landamæra. Frá sýningu Guðrúnar í Gerðubergi árin 2006-2007. HUGUR 0G HÖND 2008 21

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.