Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 22

Hugur og hönd - 01.06.2008, Page 22
Sigríður Sigurðardóttir Bryndís Zoega Fornverkaskólinn Allir sem kynnst hafa varðveislu gamalla bygginga hafa orðið þess áskynja að án manna með þekkingu og reynslu á þeim handverksaðferðum sem byggingarnar eru sprottnar af, glatast þær á skömmum tíma. Uti í Evrópu þar sem markverðustu byggingarminjar eru oftar en ekki úr steini, sem endist öldum og jafnvel árþúsundum saman, lúta störf að varðveislu að vissu leyti öðrum lögmálum en við okkar aðstæður, sem einkennast af eins forgengilegum efnum og torfi og timbri. Þegar um er að ræða slík byggingarefni þarf jafnvel að endurbyggja hús og önnur mannvirki á nokkurra áratuga fresti. Þá skiptir máli að handverksþekking sú, sem upphaflega mannvirkið spratt afi sé fyrir hendi. Ef svo er ekki er hætt við að húsið eyðileggist eða verði endurbyggt í annarri mynd en það hafði og glati þar með menningarsögulegu gildi sínu. Forsenda góðrar varðveislu byggingararfs erþekking ogþjálfun íþeirri handverksmenningu sem skóp viðkomandi byggingar. Því skammlífari sem byggingarefiin eru þeim mun mikilvagara er handverkið í varðveisluferlinu. Timbur, grjót og torf voru meginbyggingarefni fyrr á öldum. Timbur heldur enn gildi sínu í nútíma byggingariðnaði þótt vinnuaðferðir hafi breyst. Góður smiður þarf aðeins varfærni og góða viðbótarþjálfun til þess að geta unnið að viðhaldi gam- alla timburhúsa. Torf er hins vegar ekki lengur notað sem bygg- ingarefni. Það tilheyrir handverksmenningu sem lifir aðeins vegna þess að ákveðið hefur verið að halda við nokkrum fjölda torfbæja sem taldir eru hafa menningarsögulegt gildi. Raunar er íslenskur torfbær aldrei fullbyggður, eða í endanlegri mynd, því að hann er nánast samfellt byggingarferli frá því að horn- Fyrsta húsið sem varð fyrir valinu til endurreisnar á Tyrfingsstöðum voru svokölluð Hólhús, tveggja króa fárhús á miðju túni. Allt var mœlt, myndað, skráð og hreinsað varlega áður en endurhleðsla hófst. Veggir voru hlaðnir í sömu mynd ogfyrr, úr samskonar efni. Grjót og strengjahleðsla í eins metra hað hélt sér en efri hluta veggjanna, sem voru úr klömbruhnaus og streng, þurfii að endurnýja. Ljósm: Bryndís Zoéga Afyrra námskeiðinu voru veggir hlaðnir ifulla hœð ogá því seinna voru húsin tyrfð. steinn var lagður. Á hverju ári þarf að dytta að honum og sum ár þarf að endurbyggja einhvern hluta hans. Þekking á handverki, einkum því sem tengist meðferð og vinnslu torfs og timburs til varðveislu á byggingararfi okkar, er á hverfanda hveli. Eina leiðin til að verjast því að þekkingin hverfi er að bregðast við. Allt bar að sama brunni að svo yrði gert í Skagafirði. Byggðir Skagafjarðar eru enn auðugar af minj- um um íslenska byggingarsögu og búsetulandslag landbúnaðar og á undanförnum árum hefur Byggðasafn Skagfirðinga safnað heimildum um torf- og grjóthleðslu og staðið fyrir húsakönn- unum, sem koma sér vel fyrir öflun upplýsinga um handverkið og vinnslu efnisins og vel má læra af. Þá búum við svo vel að eiga aðgang að afbragðs handverksmönnum sem vilja gjarna taka þátt í að halda við gömlu byggingarhandverki. Þetta eru smíðakennarar Smíðadeildar Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki og Helgi Sigurðsson frá Stóru-Ökrum. Auk þess fer áhugi vaxandi á að efla kennslu um verkþekkingu og verktækni á öllum skólastigum. Þessi staða varð til þess að Byggðasafn Skagfirðinga, Fjöl- brautaskóli Norðurlands vestra og Hólaskóli-Háskólinn á Hólum stofnuðu til samstarfs um Fornverkaskólann vorið 2007. Fornverkaskólinn gengur út á að bjóða námskeið þar sem kennt er handverk sem tengist byggingararfi okkar. Námskeiðin fylgja sérstakri námsskrá og taka mið af skipulagi minjavörslu og varðveislu íslensks byggingararfs á grundvelli opinberra reglna um minjavernd. Kennslan getur einnig tekið til fleiri fornverka. Meginmarkmið Fornverkaskólans eru að bjóða kennslu í vinnubrögðum og verklagi í hefðbundnu íslensku bygging- arhandverki: 22 HUGUROG HÖND 2008

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.