Fréttablaðið - 30.03.2020, Qupperneq 15
KYNNINGARBLAÐ
Framhald á síðu 2 ➛
Lífsstíll
M
Á
N
U
D
A
G
U
R
3
0.
M
A
R
S
20
20
Gunnhildur Fríða er metnaðarfullur námsmaður og aðgerðasinni í loftslagsmálum. Hún hlakkar mikið til að byrja í Harvard í haust. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Jörðin er svo yndisleg
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir verður ekki fullorðin fyrr en í maí. Þó sest
hún á skólabekk í Harvard háskóla í haust, einum besta háskóla heims. ➛2
Mér þykir vænt um fjölskylduna mína og vini heima á Íslandi og mun
sakna þeirra mikið. Samt veit ég
að það gefst varla tími til að sakna,
það verður svo mikið að gera í
skólanum að áður en ég veit af
verður komið jólafrí og ég komin
aftur heim,“ segir Gunnhildur
Fríða Hallgrímsdóttir sem þrátt
fyrir að vera enn barn að aldri
hefur nám við einn besta háskóla
veraldar í haust. Því má bæta
við að Gunnhildur fékk einnig
inngöngu í hinn virta Yale háskóla.
Hún setti stefnuna á nám við
Harvard þegar hún var fimmtán
ára.
„Þá fórum við fjölskyldan í frí til
Boston og ég dýrkaði umhverfið
í botn. Við litla systir mín fórum
með leiðsögumanni í gegnum Har-
vard háskóla og ég heillaðist upp
úr skónum. Mér fannst staðurinn
geisla frá sér forvitni og þekkingu.
Ég keypti mér auðvitað Harvard-
peysu en hefði þá aldrei dottið í
hug að ég myndi nokkurn tímann
komast inn í Harvard,“ segir Gunn-
hildur sem fór aftur vestur um haf í
fyrrasumar.
„Þá dvaldi ég við Purdue háskóla
og tók þátt í prógramminu
Benjamin Franklin Transatlantic
Fellowship á vegum bandaríska
sendiráðsins. Ég fékk að læra í
amerískum háskóla og líkaði
það mjög vel. Hinir krakkarnir í
prógramminu hvöttu mig því til að
sækja um í Harvard og aðstoðuðu
mig við inntökupróf, ritgerðir og
viðtöl, en þessi umsóknaheimur
er allt annað en við þekkjum á
Íslandi,“ segir Gunnhildur.
Hún reiknar með að námið
við Harvard verði krefjandi en
skemmtilegt.
„Þetta verður erfitt en ég held
að ég muni njóta þess því ég fer
út til að læra nákvæmlega það
sem ég vil. Þótt ég sé bara sautján
og hafi útskrifast hálfu öðru ári
á undan jafnöldrum mínum
hér heima, eru skólafélagarnir í
Harvard flestir jafngamlir og ég
vegna mismunandi skólakerfa í
Bandaríkjunum og hér heima.“
Hefur alltaf sett markið hátt
Gunnhildur flutti til Hvera-
gerðis á fjórða árinu og byrjaði
ári á undan jafnöldrum sínum í
grunnskóla.
„Hveragerði er mjög þægilegur
staður til að alast upp á og ég nýtti
oft næðið og róna til að lesa bækur.
Ég á alls ekki auðvelt með að læra
öll fög og þekki mikið af vinum
sem mér finnst vera mun klárari
en ég. Ég hef hins vegar mikinn
áhuga á náminu og reyni að leggja
mig fram í öllum verkefnum,“ segir
Gunnhildur.
Hún lýsir sjálfri sér sem
metnaðarfullum námsmanni og
loftslagsaðgerðasinna.
„Ég hef mikla ástríðu fyrir
loftslagsmálum og því að vinna
að þeim í samstarfi við aðra. Í
framtíðinni hugsa ég að ég hefði
gaman af að fara í stjórnmál eða
stofna sprotafyrirtæki sem finnur
upp lausnir í loftslagsmálum,“
svarar Gunnhildur spurð hvað
hún ætli að gera þegar hún verði
orðin stór.
FRÉTTIR, FÓLK &
MENNING á Hringbraut
og hringbraut.is
Fylgstu með!