Feykir - 05.04.2017, Qupperneq 1
14
TBL
5. apríl 2017
37. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
„
BLS. 6–7
BLS. 8
Ólafur og Kristín á Hvamms-
tanga eru matgæðingarnir
Hakk, kjúlli og
lava bomba
BLS. 11
Þórunn Eyjólfsdóttir á
Starrastöðum í opnuviðtali
Verður óþolandi
af því að sitja
aðgerðalaus
Ingimar Oddsson
svarar Tón-lystinni
Vill heyra
fuglasöng og
öldugjálfur á
sunnudagsmorgni
CrossFit leikar Þrekmótaraðarinnar fór
fram 1. apríl sl. í íþróttahúsi HK í
Digranesi í Kópavogi. Meðal keppenda
var Ægir Björn Gunnsteinsson á
Sauðárkróki og náði hann glæsilegum
árangri, varð 14. í opnum flokki karla.
Ægi, sem einungis hefur æft Crossfit
í eitt ár, sagði að það hefði verið mjög
erfitt en jafnframt mjög gaman að taka
þátt í mótinu. „Þetta var mjög góð og
skemmtileg reynsla en þarna var ég að
keppa við þá bestu á landinu. Einhverjir
þeirra eru á heimslistanum á Open
Crossfit,“ segir Ægir.
Þrátt fyrir að hann sé tiltölulega nýr í
sportinu hefur honum gengið vel og er
hann m.a. crossfitþjálfari hjá Crossfit
550 á Sauðárkróki. Hann segir að áhugi
almennings á íþróttinni hafi vaxið mikið
enda hafi verið metþátttaka á mótinu.
Á heimasíðunni threkmot.is segir að
mótaröðin samanstandi af ólíkum
íþróttakeppnum sem eiga það sammerkt
að reyna á ystu mörk þreks, styrks og
þols keppenda. Fyrsta keppni Þrekmóta-
raðarinnar fór fram 2009 og var komið á
laggirnar af sex einstaklingum frá
fjórum mismunandi líkamsræktar-
stöðvum. /PF
Ægir Björn Gunnsteinsson er þrekskrokkur mikill enda æfir hann stíft í Crossfit550. MYND: ORRI KRISTINN JÓHANNSSON
Skagfirðingur á CrossFit leikum
Erfitt, gaman og skemmtileg reynsla
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Velkomin til Pacta lögmanna
& 440 7900 pacta@pacta.is
BORGARTEIGI 5 550 SAUÐÁRKRÓKUR & 571 5455 / 899 5227 / 691 6227
Smurþjónusta – Dekkjaþjónusta – Bremsuviðgerðir
Pústviðgerðir – Almenn bifreiðaþjónusta
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
www.lyfja.is
Úthlutað hefur verið úr fornminjasjóði fyrir árið 2017. Alls bárust
50 umsóknir en veittir verða styrkir til 24 verkefna að þessu
sinni. Fornleifadeild Byggðasafns Skagfirðinga fékk úthlutað
tveimur styrkjum samtals 5,5 milljónum. Þá fékk Antikva ehf.
1.200.000 krónum til rannsókna á bátasaumi frá Kolkuósi.
Antikva er sjálfstætt starfandi rannsóknar- og þjón-
ustufyrirtæki en þar innanbúðar er Ragnheiður Trausta-
dóttir, stjórnandi Hólarannsóknarinnar, einhverrar um-
fangsmestu fornleifarannsóknar sem ráðist hefur verið í á
Íslandi
Styrkir fornleifadeildar Byggðasafns Skagfirðinga hljóð-
uðu annars vegar upp á fjórar miljónir króna til Skagfirsku
kirkjurannsóknarinnar þar sem rannsakaður er hinn
nýfundni kirkjugarður í Keflavík í Hegranesi. Hins vegar
fær byggðasögurannsóknin, Eyðibyggð og afdalir Skaga-
fjarðar, eina og hálfa milljón króna. /PF
Úthlutun úr fornminjasjóði
Tæpar 7 milljónir í skagfirsk fornminjaverkefni
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.