Feykir


Feykir - 05.04.2017, Blaðsíða 4

Feykir - 05.04.2017, Blaðsíða 4
„Fornar sagnir herma, að jötnameyjar tvær, þær Fenja og Menja gerðu það sér til gamans að kasta tveim gríðarstórum hellum úr undirheimum upp í Miðgarð. Einhver gerði kvarnarsteina úr hellunum og gaf þær Fróða kóngi. Hann lét gera úr þeim Grótta- kvörnina. Fenja og Menja voru teknar til fanga í styrjöld í Svíþjóð og seldar sem ambáttir Fróða konungi, en hann lét þær snúa Gróttakvörn- inni. Þær mólu konungi gull og öryggi en þjóð hans frið og velvilja meðal manna.“ En ágirndin og græðgin náðu tökum á Fróða konungi, svo hann rak áfram skessurnar og unni þeim að síðustu hvorki svefns né matar. Þá ærðust þær og mólu eld og dauða yfir hann og létu kvörnina ganga svo hratt að steinarnir moln- uðu og allur búnaður hrundi í rústir. Grótta kvörnin er enn og aftur komin í gang. Hvarvetna má sjá að gullið hefur ært þá sem drottna, svo þeir ágirnast alltaf meira og meira og mala ófriðareld og dauða yfir heimsbyggðina. Við hér á eylandinu úti í nyrstu Atlantsálum, förum engan varhlut af þeirri óheilla- þróun. Okkar drottnandi yfirvald, einkagróðahyggjan og græðgin, sést ekki fyrir, hefur týnt öllu sambandi við heilbrigt og eðlilegt líf og lífkeðju náttúrunnar. Ríslar með bankakerfið eins og kauphallaruppboðs fyrirtæki í þágu vildarvina, en mergsýgur almenn- ing með okurvöxtum á lífsnauðsynleg húsnæðis- lán og rekstrarkostnað heimilis. Okkar þjóðfélagsgerð er að ganga í gegnum mestu breytingar og umbyltingu allra tíma. Úr rótgrónu bænda sjálfsþurftarþjóð- félagi, með fiskveiðar og hlunnindanýtingu að undirstöðu. lengi vel strjálar skipaferðir og ótryggt vöruframboð frá útlöndum. Á seinni hluta síðustu aldar breyttist ört bæði samgöngur, versl- unarhættir og þróun í atvinnuháttum. Bændaframleiðsluþjóðfélagið gisnaði en kaupstaðarformið þéttist, lengi vel með góðri samvinnu af beggja hálfu, því hvorugt getur án annars verið. En nú er svo komið að HÖFUÐBORGIN þykist orðin sá stóri bróðir, sem lítur niður á landsbyggðarfólkið og landið með gæðum þess og gagni. Að þeirra mati, Þessa „útkjálka, afdali og rass- borur fortíðarhyggjunnar“ og lands- byggðarfólks. Drottnunarvaldið dregur til sín atvinnufyrirtækin, útgerðina, menntastofnanir og heilbrigðisþjón- ustuna, undirstöðuna að byggð og lífi í landinu. Því auðvitað fer fólkið, þegar lifibrauðið er frá því tekið, heilsuþjón- usta og skólaganga flutt af svæðinu, ásamt flestum öðrum samþjónustu- stofnunum. Þó að landið sé gjöfult og kært, ræturnar djúpar og sterkar, er það flestum mikil eftirsjá, skaði og sársauki að fara og sjá sína heimabyggð auða og yfirgefna. Þurfa síðan að búa um sig með ærnum kostnaði á þessu malbikaða og gegnum boraða út- kjálkahrauni á Suðurnesjum, þangað sem flestum er stefnt. Þar er þó engin fyrirhyggja með húsnæði né atvinnu, okurleiga og uppsprengt verð á því litla sem býðst og margir á vonarvöl. Það er góðæri, segir ríka yfirstéttin, selur sjálfum sér banka með baktryggingu á aflandseyjum, flytur sjóði samtryggingar úr einum vasa í annan og síðan úr landi í eigin þágu, en leggur kapp á að eyðileggja innanfrá alla samfélagsþjónustu. Hundsa upp- byggingu og endurreisn heilbrigðis- þjónustu en greiða götu fyrir einka- reksturs gróðasjónarmið á kostnað bágstaddra hjálparþega. Fjársvelta vegagerð og stefna á að endurbyggja með staðbundnum gjöldum vegfarenda um hvern afmarkaðan bút sem gerður er akfær í vegakerfinu. Margsköttuð ökutæki látin bera uppi annan kostnað í kerfinu á öðrum sviðum, í stað þess að nota þær tekjur í viðhald vega. Ráðherra-VALDIÐ látið fara sínu fram án óþægilegra afskipta þings og þjóðar vilja. Lýðræðið sniðgengið af fremsta megni gjörspilltra stjórnarhátta. Vax- andi ferðamannafjöldi látinn valsa stjórnlaust um og yfir landið án fyrirhyggju. Það er að segja, þeir sem sleppa úr klóm okrara út fyrir borgar- mörkin. Nú er ferðamannaþjónustan orðin aðalatvinnuvegur og tekjulind þjóðarinnar, en í staðinn fyrir skipulag og uppbyggingu þess atvinnuvegar og ráðstöfun tekna þar af til ágóða fyrir samfélagið, er í ráðagerð að safna þeim tekjum í enn einn sjóðinn í útlendum peningahólfum. Til vara fyrir hina ef illa færi t.d. við annað hrun bankakerfis, eða aðra óáran. Að reisa við heilbrigðiskerfið og greiða úr umferðavandræðum hvarflar ekki að þessum ábyrgðarlausu gösl- urum í samfélagsþjónustu landsmanna. Þeirra meðferð á almannafé kallar fram kröfu um endurskoðun á stjórnar- háttum og framkomu við almenning í landinu áður en lengra er gengið. Ásælni útlendinga í samfelld vatna- svæði laxveiðiáa til eignar, er enn ein stórhættuleg vá, sem að stemma verður stigu við. Í vatnsþyrstum hitnandi heimi framtíðarinnar er það lífsspurs- mál að hafa óheftan aðgang að vatni. Það fjöregg og gullnámu verðum við að varðveita eins og sjáaldur augna vorra og öll óskert yfirráð yfir því. Ég skora á almenning þessa lands að sjá sóma sinn og hag í því að vaka yfir velferð ALLRA landsmanna, bægja frá öllum sérhagsmuna og óþurftaröflum og standa vörð um frelsi lands og lýðs. 26. 3. 2017 Guðríður B. Helgadóttir AÐSENT Guðríður B. Helgadóttir skrifar Gróttakvörnin Skyldur og ábyrgð velferðarráðu- neytisins um forvarnir fellur undir ábyrgðasvið heilbrigðisráðherra og hann sem slíkur ber ábyrgð á forvörnum og lýðheilsu samkvæmt forseta- úrskurði. Með lýðheilsu er átt við aðgerðir hins opinbera og annarra sem miða að því að viðhalda og bæta heilbrigði, líðan og aðstæður einstaklinga, þjóðfélagshópa og þjóðarinnar í heild. Unnið er að þessu með heilsu- eflingu, forvörnum og heilbrigðisþjónustu og markmiðið er að efla og bæta lýðheilsu. Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til laga um að leyfa sölu áfengis (bjórs, léttvíns og sterks víns) í venjulegum matvöruverslunum. Þetta er forgangs- mál Sjálfstæðisflokksins á þingi og flutningsmaður er Teitur Björn Einars- son, þingmaður Norðvesturkjördæmis. Í umræðu um áfengisfrumvarpið var ráðherra spurður beint út, hvort hann styddi frumvarpið. Ráðherra svaraði því til að hann óskaði eftir að frumvarpið fengi þinglega meðferð, fengi umsagnir frá almenningu, heil- brigðis- og félagsþjónustu, aðilum í verslun og þjónustu og að hann vildi sjá hvernig frumvarpinu reiddi af áður en hann gæfi upp sína endanlega afstöðu. Í umræðunni vitnaði ráðherra í stjórn- arsáttmála ríkisstjórnar- innar, þar sem sérstök áhersla er lögð á að draga skuli úr beinum og óbeinum sam- félagskostnaði með því að efla starf á sviði forvarna og lýðheilsu. Hann bætti við að í mótun sé heilbrigðisstefna sem samhæfir og treystir heilbrigðisþjón- ustuna, bætir lýðheilsu og stuðlar að heilbrigði landsmanna. Hann drap líka á að stóraukið aðgengi að áfengi geti ekki samræmst stefnu um lýðheilsu. Ráðherra tók ekki beina afstöðu gegn frumvarpinu í umræðunni. Þar með gengur hann gegn öllum þeim sem starfa að lýðheilsu og forvörnum í landinu. Með afstöðu sinni styður hann ekki þá aðila sem berjast gegn frum- varpinu. Þetta eru kaldar kveðjur til fjölda fólks sem telur að með samþykkt frumvarpsins muni áfengisneysla aukast með ófyrirsjáanlegum afleið- ingum. Verra er að ráðherra skuli ekki geta staðið af festu í báða fæturna í þessu máli, sem er að viðhalda og bæta heilbrigði. Væntingar til heilbrigðis- ráðherra eru þær að hann taki skýra afstöðu gegn áhrifaöflum sem berjast fyrir aukinni óheilsu og verra heilsufari þjóðarinnar. Það er haft á orði að ráðherra eigi erfitt með að taka ákvarðanir. Í þessu mikilvæga máli á að vera auðvelt að taka af skarið og standa af einurð með viðleitni okkar sem bæta vilja heilsu almennings. Guðjón S. Brjánsson alþingismaður Guðjón S. Brjánsson skrifar Ráðherra veldur vonbrigðum Rafmagn í jörð í A-Hún. Fellslína lögð niður Undanfarin ár hefur Rarik unnið markvisst að endurnýjun raforkukerfisins þar sem eldri loftlínur víkja fyrir jarð- strengjum. Í sumar fyrirhugar Rarik meðal annars að leggja niður svokallaða Fellslínu með því að leggja jarðstreng í jörðu á milli Laxárvatns og Laxár í Refasveit. Í fundargerð byggðaráðs Blöndu- ósbæjar kemur fram að með því sé lokið strenglagningu á 11kV dreifi- kerfinu milli Blönduóss og Skaga- strandar, en 33kV flutningslínan verður þó áfram eitthvað um sinn. Fyrir fundinum lá samkomulag um lagningu jarðstrengja í landi Hnjúka og Vatnahverfis. Byggðaráð samþykkti að fela sveitarstjóra og tæknideild að vinna frekar að málinu og ljúka því. /PF 4 14/2017

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.