Feykir - 05.04.2017, Page 4
„Fornar sagnir herma, að jötnameyjar
tvær, þær Fenja og Menja gerðu það
sér til gamans að kasta tveim
gríðarstórum hellum úr undirheimum
upp í Miðgarð. Einhver
gerði kvarnarsteina úr
hellunum og gaf þær
Fróða kóngi. Hann lét
gera úr þeim Grótta-
kvörnina. Fenja og Menja
voru teknar til fanga í
styrjöld í Svíþjóð og
seldar sem ambáttir
Fróða konungi, en hann
lét þær snúa Gróttakvörn-
inni. Þær mólu konungi
gull og öryggi en þjóð
hans frið og velvilja meðal
manna.“ En ágirndin og græðgin
náðu tökum á Fróða konungi, svo
hann rak áfram skessurnar og unni
þeim að síðustu hvorki svefns né
matar. Þá ærðust þær og mólu eld og
dauða yfir hann og létu kvörnina
ganga svo hratt að steinarnir moln-
uðu og allur búnaður hrundi í rústir.
Grótta kvörnin er enn og aftur komin í
gang. Hvarvetna má sjá að gullið hefur
ært þá sem drottna, svo þeir ágirnast
alltaf meira og meira og mala ófriðareld
og dauða yfir heimsbyggðina. Við hér á
eylandinu úti í nyrstu Atlantsálum,
förum engan varhlut af þeirri óheilla-
þróun. Okkar drottnandi yfirvald,
einkagróðahyggjan og græðgin, sést
ekki fyrir, hefur týnt öllu sambandi við
heilbrigt og eðlilegt líf og lífkeðju
náttúrunnar. Ríslar með bankakerfið
eins og kauphallaruppboðs fyrirtæki í
þágu vildarvina, en mergsýgur almenn-
ing með okurvöxtum á
lífsnauðsynleg húsnæðis-
lán og rekstrarkostnað
heimilis.
Okkar þjóðfélagsgerð er
að ganga í gegnum mestu
breytingar og umbyltingu
allra tíma. Úr rótgrónu
bænda sjálfsþurftarþjóð-
félagi, með fiskveiðar og
hlunnindanýtingu að
undirstöðu. lengi vel
strjálar skipaferðir og
ótryggt vöruframboð frá
útlöndum. Á seinni hluta síðustu aldar
breyttist ört bæði samgöngur, versl-
unarhættir og þróun í atvinnuháttum.
Bændaframleiðsluþjóðfélagið gisnaði
en kaupstaðarformið þéttist, lengi vel
með góðri samvinnu af beggja hálfu,
því hvorugt getur án annars verið. En
nú er svo komið að HÖFUÐBORGIN
þykist orðin sá stóri bróðir, sem lítur
niður á landsbyggðarfólkið og landið
með gæðum þess og gagni. Að þeirra
mati, Þessa „útkjálka, afdali og rass-
borur fortíðarhyggjunnar“ og lands-
byggðarfólks. Drottnunarvaldið dregur
til sín atvinnufyrirtækin, útgerðina,
menntastofnanir og heilbrigðisþjón-
ustuna, undirstöðuna að byggð og lífi í
landinu. Því auðvitað fer fólkið, þegar
lifibrauðið er frá því tekið, heilsuþjón-
usta og skólaganga flutt af svæðinu,
ásamt flestum öðrum samþjónustu-
stofnunum. Þó að landið sé gjöfult og
kært, ræturnar djúpar og sterkar, er
það flestum mikil eftirsjá, skaði og
sársauki að fara og sjá sína heimabyggð
auða og yfirgefna. Þurfa síðan að búa
um sig með ærnum kostnaði á þessu
malbikaða og gegnum boraða út-
kjálkahrauni á Suðurnesjum, þangað
sem flestum er stefnt. Þar er þó engin
fyrirhyggja með húsnæði né atvinnu,
okurleiga og uppsprengt verð á því litla
sem býðst og margir á vonarvöl.
Það er góðæri, segir ríka yfirstéttin,
selur sjálfum sér banka með
baktryggingu á aflandseyjum, flytur
sjóði samtryggingar úr einum vasa í
annan og síðan úr landi í eigin þágu, en
leggur kapp á að eyðileggja innanfrá
alla samfélagsþjónustu. Hundsa upp-
byggingu og endurreisn heilbrigðis-
þjónustu en greiða götu fyrir einka-
reksturs gróðasjónarmið á kostnað
bágstaddra hjálparþega. Fjársvelta
vegagerð og stefna á að endurbyggja
með staðbundnum gjöldum vegfarenda
um hvern afmarkaðan bút sem gerður
er akfær í vegakerfinu. Margsköttuð
ökutæki látin bera uppi annan kostnað
í kerfinu á öðrum sviðum, í stað þess að
nota þær tekjur í viðhald vega.
Ráðherra-VALDIÐ látið fara sínu fram
án óþægilegra afskipta þings og þjóðar
vilja. Lýðræðið sniðgengið af fremsta
megni gjörspilltra stjórnarhátta. Vax-
andi ferðamannafjöldi látinn valsa
stjórnlaust um og yfir landið án
fyrirhyggju. Það er að segja, þeir sem
sleppa úr klóm okrara út fyrir borgar-
mörkin. Nú er ferðamannaþjónustan
orðin aðalatvinnuvegur og tekjulind
þjóðarinnar, en í staðinn fyrir skipulag
og uppbyggingu þess atvinnuvegar og
ráðstöfun tekna þar af til ágóða fyrir
samfélagið, er í ráðagerð að safna þeim
tekjum í enn einn sjóðinn í útlendum
peningahólfum. Til vara fyrir hina ef
illa færi t.d. við annað hrun bankakerfis,
eða aðra óáran.
Að reisa við heilbrigðiskerfið og
greiða úr umferðavandræðum hvarflar
ekki að þessum ábyrgðarlausu gösl-
urum í samfélagsþjónustu landsmanna.
Þeirra meðferð á almannafé kallar fram
kröfu um endurskoðun á stjórnar-
háttum og framkomu við almenning í
landinu áður en lengra er gengið.
Ásælni útlendinga í samfelld vatna-
svæði laxveiðiáa til eignar, er enn ein
stórhættuleg vá, sem að stemma verður
stigu við. Í vatnsþyrstum hitnandi
heimi framtíðarinnar er það lífsspurs-
mál að hafa óheftan aðgang að vatni.
Það fjöregg og gullnámu verðum við
að varðveita eins og sjáaldur augna
vorra og öll óskert yfirráð yfir því.
Ég skora á almenning þessa lands að
sjá sóma sinn og hag í því að vaka yfir
velferð ALLRA landsmanna, bægja frá
öllum sérhagsmuna og óþurftaröflum
og standa vörð um frelsi lands og lýðs.
26. 3. 2017
Guðríður B. Helgadóttir
AÐSENT
Guðríður B. Helgadóttir skrifar
Gróttakvörnin
Skyldur og ábyrgð velferðarráðu-
neytisins um forvarnir fellur undir
ábyrgðasvið heilbrigðisráðherra og
hann sem slíkur ber ábyrgð á
forvörnum og lýðheilsu
samkvæmt forseta-
úrskurði. Með lýðheilsu er
átt við aðgerðir hins
opinbera og annarra sem
miða að því að viðhalda
og bæta heilbrigði, líðan
og aðstæður einstaklinga,
þjóðfélagshópa og
þjóðarinnar í heild. Unnið
er að þessu með heilsu-
eflingu, forvörnum og
heilbrigðisþjónustu og
markmiðið er að efla og
bæta lýðheilsu.
Nú liggur fyrir Alþingi frumvarp til
laga um að leyfa sölu áfengis (bjórs,
léttvíns og sterks víns) í venjulegum
matvöruverslunum. Þetta er forgangs-
mál Sjálfstæðisflokksins á þingi og
flutningsmaður er Teitur Björn Einars-
son, þingmaður Norðvesturkjördæmis.
Í umræðu um áfengisfrumvarpið var
ráðherra spurður beint út, hvort hann
styddi frumvarpið. Ráðherra svaraði
því til að hann óskaði eftir að
frumvarpið fengi þinglega
meðferð, fengi umsagnir
frá almenningu, heil-
brigðis- og félagsþjónustu,
aðilum í verslun og
þjónustu og að hann vildi
sjá hvernig frumvarpinu
reiddi af áður en hann
gæfi upp sína endanlega
afstöðu. Í umræðunni
vitnaði ráðherra í stjórn-
arsáttmála ríkisstjórnar-
innar, þar sem sérstök
áhersla er lögð á að draga
skuli úr beinum og óbeinum sam-
félagskostnaði með því að efla starf á
sviði forvarna og lýðheilsu. Hann bætti
við að í mótun sé heilbrigðisstefna sem
samhæfir og treystir heilbrigðisþjón-
ustuna, bætir lýðheilsu og stuðlar að
heilbrigði landsmanna. Hann drap líka
á að stóraukið aðgengi að áfengi geti
ekki samræmst stefnu um lýðheilsu.
Ráðherra tók ekki beina afstöðu
gegn frumvarpinu í umræðunni. Þar
með gengur hann gegn öllum þeim
sem starfa að lýðheilsu og forvörnum í
landinu. Með afstöðu sinni styður hann
ekki þá aðila sem berjast gegn frum-
varpinu. Þetta eru kaldar kveðjur til
fjölda fólks sem telur að með samþykkt
frumvarpsins muni áfengisneysla
aukast með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum. Verra er að ráðherra skuli ekki
geta staðið af festu í báða fæturna í
þessu máli, sem er að viðhalda og bæta
heilbrigði. Væntingar til heilbrigðis-
ráðherra eru þær að hann taki skýra
afstöðu gegn áhrifaöflum sem berjast
fyrir aukinni óheilsu og verra heilsufari
þjóðarinnar.
Það er haft á orði að ráðherra eigi
erfitt með að taka ákvarðanir. Í þessu
mikilvæga máli á að vera auðvelt að
taka af skarið og standa af einurð með
viðleitni okkar sem bæta vilja heilsu
almennings.
Guðjón S. Brjánsson
alþingismaður
Guðjón S. Brjánsson skrifar
Ráðherra veldur vonbrigðum
Rafmagn í jörð í A-Hún.
Fellslína
lögð niður
Undanfarin ár hefur Rarik
unnið markvisst að endurnýjun
raforkukerfisins þar sem
eldri loftlínur víkja fyrir jarð-
strengjum. Í sumar fyrirhugar Rarik
meðal annars að leggja niður
svokallaða Fellslínu með því að
leggja jarðstreng í jörðu á milli
Laxárvatns og Laxár í Refasveit.
Í fundargerð byggðaráðs Blöndu-
ósbæjar kemur fram að með því sé
lokið strenglagningu á 11kV dreifi-
kerfinu milli Blönduóss og Skaga-
strandar, en 33kV flutningslínan
verður þó áfram eitthvað um sinn.
Fyrir fundinum lá samkomulag
um lagningu jarðstrengja í landi
Hnjúka og Vatnahverfis.
Byggðaráð samþykkti að fela
sveitarstjóra og tæknideild að vinna
frekar að málinu og ljúka því. /PF
4 14/2017