Feykir


Feykir - 05.04.2017, Blaðsíða 11

Feykir - 05.04.2017, Blaðsíða 11
½ l vatn (rúmlega) kjúklingakraftur. Aðferð: Brytjið niður áleggssneið- arnar og steikið í olíu á pönnu ásamt fínt skornum rauðlauk, hvítlauk, timian, salti, pipar og sólþurrkuðum tómötum. Bætið síðan við einni dós af cannellini baunum, látið renna af þeim áður. Saltið og piprið kjúklinginn að innan áður en fyllingin er sett í hann og lokið með sítrónu eða mandarínu. Smyrjið olíu á kjúklinginn og nuddið salti, pipar og paprikudufti vel inn í húðina, setjið í eldfast mót ásamt rúmlega hálfum lítra af vatni og kjúklingakrafti. Ef ekki er pláss fyrir alla fyllinguna inni í kjúkl- ingnum set ég hana í minna eldfast mót (t.d soufflé skálar) og set við hlið kjúklingsins. Lokið með álpappír eða loki eldfasta mótsins. Bakið í klukkutíma við 180°, takið lokið/ álpappírinn af og bakið í hálftíma í viðbót. Er úr ofni er komið, takið kjúkl- inginn úr fatinu og leyfið honum að hvílast á meðan þið kreistið manda- rínuna/sítrónuna saman við vökv- ann í fatinu, hrærið og sigtið. Fjarlægið fyllinguna og setjið í skál og bleytið aðeins í henni með vökvanum, setjið restina af honum í sósuskál. Oftast höfum við hrísgrjón og hvítlauksbrauð með þessum rétti. RÉTTUR 3 Súkkulaði lava bomba Við erum ekki mikið fyrir eftir- rétti, en það kemur fyrir að við gerum franska súkkulaðisprengju. 2 dl sykur 4 egg 1 dl hveiti 200 g smjör 200 g suðusúkkulaði salt og vanilludropar. Þeytið eggjum og sykri mjög vel saman, bætið síðan hveitinu varlega saman við. Smjör og súkkulaði brætt saman yfir vatnsbaði. Blandið svo öllu saman ásamt nokkrum vanillu- dropum og ögn af salti Setjð í litlar, vel smurðar eldfastar skálar og bakið við 170° í nokkrar mínútur (5–9 mín eftir stærð mótanna), passið að fylla ekki mótin nema að 3/4. Berið fram með ískúlu og sterku kaffi. Sömu uppskrift má nota til þess að baka eina stóra köku, smyrjið þá springform og bakið í 30 mínútur. Látið kólna. Bræðið síðan 150 g suðusúkkulaði, 70 g smjör, 2 msk sýróp og matskeið af instant kaffi má fljóta með ef fólk vill. Hellið yfir kökuna. Við skorum á Jennýju Þórkötlu Magnúsdóttur og Arnar Svansson sem næstu matgæðinga. KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Hrafn, Karl, Bogi og Reimar. Sudoku FEYKIFÍN AFÞREYING Krossgáta Vísnagátur Sigurðar Varðar Kroppar augu úr kindum sá. Kominn er til ára sinna. Hjá fiðlaranum finna má. Festing skónna þinna. Feykir spyr... Léstu gabbast 1. apríl eða gabbaðir þú einhvern? Spurt á Facebook UMSJÓN palli@feykir.is „Nei, ég passa mig alltaf á 1. apríl því það er svo auðvelt að gabba mig.“ Erna Nielsen Finna skal karlmannsnafn úr hverri línu. Svör neðst á síðunni. Ótrúlegt en kannski satt... Það er einfalt að búa til rjómaís: 4 egg, ½ l rjómi, 8 msk flórsykur, 1-2 tsk vanilla og nokkur saltkorn. Eggin og flórsykurinn er þeytt saman þangað til blandan verður ljós og létt í sér. Vanillu bætt í ásamt örlitlu salti. Þá er rjóminn þeyttur sér og öllu blandað varlega saman í lokin og fryst í vel lokuðu íláti. Ótrúlegt, en kannski satt, þá má ekki ganga um með rjómaís í vasanum á sunnudögum í New York. Hakk, kjúlli og lava bomba MATGÆÐINGAR VIKUNNAR UMSJÓN frida@feykir.is „Við fluttum í Húnaþing vestra fyrir nokkrum árum og erum bæði starfandi tónlistarskóla- kennarar og tónlistarmenn. Það var mikið gæfuspor að flytja hingað því hér er gott að vera,“ segir Ólafur en þau hjónin búa á Hvammstanga. „Ekki ætlum við að koma með uppskrift að þriggja rétta máltíð þar sem svoleiðis gerist sjaldan hjá okkur. Frekar ætlum við að deila með ykkur réttum sem vinsælir eru á okkar heimili. Matgæðingar vikunnar eru Ólafur Rúnarsson og Kristín Kristjánsdóttir á Hvammstanga Tilvitnun vikunnar Þér er aðeins gefinn smá skammtur af brjálæði. Ekki glata honum! – Robin Williams RÉTTUR 1 Eins potts hakk og pastaréttur Þessi er gerður í miklu magni, því gott er að eiga hann í skápnum og hita upp í flýti þegar fjölskyldu- meðlimir eru á ferð og flugi. 1 kg hakk 2 rauðlaukar 2 paprikur 1 bakki sveppir 1 dós saxaðir tómatar 2 dósir (litlar) tómatpúrra 1 l sjóðandi vatn kjöt- og grænmetiskraftur eftir smekk 400-500 g orzo pasta (í laginu eins og hrísgrjón og fæst aðeins í Istanbul market í Ármúla. Það er í lagi að nota annað pasta, t.d. makkarónur eða bara hrísgrjón.) u.þ.b. 350 ml rjómi. Aðferð: Kryddið hakkið að vild og steikið í stórum potti, bætið síðan söxuðum rauðlauk, papriku og sveppum út í. Blandið vel saman og setjið saxaðan tómat og tómatpúrru saman við, látið malla í svolitla stund. Bætið síðan við einum lítra af sjóðandi vatni ásamt kjöt- og grænmetiskrafti eftir smekk, skellið síðan orzo pastanu út í. Bætið síðan við rjóma og látið sjóða eins lengi og stendur á pastapakkanum. Verið dugleg að hræra í pottinum. Berið fram með hvítlauksbrauði og nýrifn- um parmesan osti. RÉTTUR 2 Chorizo kjúklingur Þegar kjúklingur er fylltur, þá eldast hann jafnar, bringurnar, sem taka styttri tíma í eldun, þorna síður. Þennan kjúkling höfum við margoft gert. 1 kjúklingur ½ bréf chorizo áleggssneiðar 1 rauðlaukur 2 hvítlauksrif, pressuð timian, salt og pipar nokkrir sólþurrkaðir tómatar 1 dós cannellini baunir (má nota kjúklingabaunir ef hinar fást ekki) sítróna eða mandarína paprikuduft, salt og pipar „Nei, ég gabbaði engan og lét ekki gabba mig.“ Herdís Lilja Káradóttir „Nei, ég gabbaði engan núna og var ekki gabbaður, veit ekki alveg hvert þetta stefnir.“ Jóhann Ingi Haraldsson Matgæðingarnir Kristín og Ólafur. MYND ÚR EINKASAFNI „Nei, gaf mér ekki tíma í það.“ Hallur Gunnarsson 14/2017 11

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.