Feykir - 05.04.2017, Síða 11
½ l vatn (rúmlega)
kjúklingakraftur.
Aðferð: Brytjið niður áleggssneið-
arnar og steikið í olíu á pönnu ásamt
fínt skornum rauðlauk, hvítlauk,
timian, salti, pipar og sólþurrkuðum
tómötum. Bætið síðan við einni dós
af cannellini baunum, látið renna af
þeim áður. Saltið og piprið
kjúklinginn að innan áður en
fyllingin er sett í hann og lokið með
sítrónu eða mandarínu.
Smyrjið olíu á kjúklinginn og
nuddið salti, pipar og paprikudufti
vel inn í húðina, setjið í eldfast mót
ásamt rúmlega hálfum lítra af vatni
og kjúklingakrafti. Ef ekki er pláss
fyrir alla fyllinguna inni í kjúkl-
ingnum set ég hana í minna eldfast
mót (t.d soufflé skálar) og set við hlið
kjúklingsins. Lokið með álpappír eða
loki eldfasta mótsins. Bakið í
klukkutíma við 180°, takið lokið/
álpappírinn af og bakið í hálftíma í
viðbót.
Er úr ofni er komið, takið kjúkl-
inginn úr fatinu og leyfið honum að
hvílast á meðan þið kreistið manda-
rínuna/sítrónuna saman við vökv-
ann í fatinu, hrærið og sigtið.
Fjarlægið fyllinguna og setjið í skál
og bleytið aðeins í henni með
vökvanum, setjið restina af honum í
sósuskál. Oftast höfum við hrísgrjón
og hvítlauksbrauð með þessum rétti.
RÉTTUR 3
Súkkulaði lava bomba
Við erum ekki mikið fyrir eftir-
rétti, en það kemur fyrir að við
gerum franska súkkulaðisprengju.
2 dl sykur
4 egg
1 dl hveiti
200 g smjör
200 g suðusúkkulaði
salt og vanilludropar.
Þeytið eggjum og sykri mjög vel
saman, bætið síðan hveitinu varlega
saman við. Smjör og súkkulaði brætt
saman yfir vatnsbaði. Blandið svo
öllu saman ásamt nokkrum vanillu-
dropum og ögn af salti
Setjð í litlar, vel smurðar eldfastar
skálar og bakið við 170° í nokkrar
mínútur (5–9 mín eftir stærð
mótanna), passið að fylla ekki mótin
nema að 3/4. Berið fram með ískúlu
og sterku kaffi.
Sömu uppskrift má nota til þess
að baka eina stóra köku, smyrjið þá
springform og bakið í 30 mínútur.
Látið kólna. Bræðið síðan 150 g
suðusúkkulaði, 70 g smjör, 2 msk
sýróp og matskeið af instant kaffi má
fljóta með ef fólk vill. Hellið yfir
kökuna.
Við skorum á Jennýju Þórkötlu
Magnúsdóttur og Arnar Svansson
sem næstu matgæðinga.
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Hrafn, Karl, Bogi og Reimar.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Vísnagátur Sigurðar Varðar
Kroppar augu úr kindum sá.
Kominn er til ára sinna.
Hjá fiðlaranum finna má.
Festing skónna þinna.
Feykir spyr...
Léstu gabbast
1. apríl eða
gabbaðir þú
einhvern?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Nei, ég passa mig alltaf á 1.
apríl því það er svo auðvelt
að gabba mig.“
Erna Nielsen
Finna skal karlmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Það er einfalt að búa til rjómaís: 4 egg, ½ l rjómi, 8 msk flórsykur, 1-2
tsk vanilla og nokkur saltkorn. Eggin og flórsykurinn er þeytt saman
þangað til blandan verður ljós og létt í sér. Vanillu bætt í ásamt
örlitlu salti. Þá er rjóminn þeyttur sér og öllu blandað varlega saman
í lokin og fryst í vel lokuðu íláti. Ótrúlegt, en kannski satt, þá má ekki
ganga um með rjómaís í vasanum á sunnudögum í New York.
Hakk, kjúlli og lava bomba
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
„Við fluttum í Húnaþing vestra
fyrir nokkrum árum og erum
bæði starfandi tónlistarskóla-
kennarar og tónlistarmenn. Það var mikið gæfuspor að flytja
hingað því hér er gott að vera,“ segir Ólafur en þau hjónin búa á
Hvammstanga.
„Ekki ætlum við að koma með uppskrift að þriggja rétta máltíð
þar sem svoleiðis gerist sjaldan hjá okkur. Frekar ætlum við að deila
með ykkur réttum sem vinsælir eru á okkar heimili.
Matgæðingar vikunnar eru Ólafur Rúnarsson
og Kristín Kristjánsdóttir á Hvammstanga
Tilvitnun vikunnar
Þér er aðeins gefinn smá skammtur af brjálæði.
Ekki glata honum! – Robin Williams
RÉTTUR 1
Eins potts hakk
og pastaréttur
Þessi er gerður í miklu magni, því
gott er að eiga hann í skápnum og
hita upp í flýti þegar fjölskyldu-
meðlimir eru á ferð og flugi.
1 kg hakk
2 rauðlaukar
2 paprikur
1 bakki sveppir
1 dós saxaðir tómatar
2 dósir (litlar) tómatpúrra
1 l sjóðandi vatn
kjöt- og grænmetiskraftur
eftir smekk
400-500 g orzo pasta (í laginu
eins og hrísgrjón og fæst aðeins í
Istanbul market í Ármúla. Það
er í lagi að nota annað pasta,
t.d. makkarónur eða bara
hrísgrjón.)
u.þ.b. 350 ml rjómi.
Aðferð: Kryddið hakkið að vild og
steikið í stórum potti, bætið síðan
söxuðum rauðlauk, papriku og
sveppum út í. Blandið vel saman og
setjið saxaðan tómat og tómatpúrru
saman við, látið malla í svolitla stund.
Bætið síðan við einum lítra af
sjóðandi vatni ásamt kjöt- og
grænmetiskrafti eftir smekk, skellið
síðan orzo pastanu út í. Bætið síðan
við rjóma og látið sjóða eins lengi og
stendur á pastapakkanum. Verið
dugleg að hræra í pottinum. Berið
fram með hvítlauksbrauði og nýrifn-
um parmesan osti.
RÉTTUR 2
Chorizo kjúklingur
Þegar kjúklingur er fylltur, þá
eldast hann jafnar, bringurnar,
sem taka styttri tíma í eldun,
þorna síður. Þennan kjúkling
höfum við margoft gert.
1 kjúklingur
½ bréf chorizo áleggssneiðar
1 rauðlaukur
2 hvítlauksrif, pressuð
timian, salt og pipar
nokkrir sólþurrkaðir tómatar
1 dós cannellini baunir (má nota
kjúklingabaunir ef hinar fást ekki)
sítróna eða mandarína
paprikuduft, salt og pipar
„Nei, ég gabbaði engan og lét
ekki gabba mig.“
Herdís Lilja Káradóttir
„Nei, ég gabbaði engan
núna og var ekki gabbaður,
veit ekki alveg hvert
þetta stefnir.“
Jóhann Ingi Haraldsson
Matgæðingarnir Kristín og Ólafur. MYND ÚR EINKASAFNI
„Nei, gaf mér ekki
tíma í það.“
Hallur Gunnarsson
14/2017 11