Feykir - 05.04.2017, Blaðsíða 2
Tímabundið leyfi samþykkt
Matarvagn við Glaumbæjarsafn
Á Facebooksíðu Byggðasafns Skagfirðinga segir
að matarvagn í Glaumbæ sé sannarlega ekki
efstur á óskalista starfsmanna safnsins. „Allt
sem tefur fyrir umferð á alltof litlu bílastæði gerir
erfitt ástand verra og með fullri virðingu fyrir
matarvögnum að þá bæta þeir ekki minjagildi
þjóðargersema á borð við gamla bæinn í
Glaumbæ.“ Tilefni þessara skrifa er að skipulags-
og byggingarnefnd Svf. Skagafjarðar samþykkti
að veita tímabundið stöðuleyfi, frá 1. maí til 1.
október 2017, fyrir söluvagni við hlið salernis-
húss sem er á staðnum.
Þrátt fyrir að í umsögn Guðmundar L.
Hafsteinssonar fh. Þjóðminjasafns Íslands komi
fram að Þjóðminjasafnið hafni því að setja niður
matarvagn við umrætt svæði telur skipulags og
byggingarnefnd óhætt að gera þessa tilraun á
meðan unnið er í deiliskipulagi en sú vinna er
þegar í gangi.
Fulltrúi Vg og óháðra, Hildur Þóra Magnús-
dóttir, óskaði bókað að hún greiði atkvæði gegn
umsókninni enda gangi hún þvert á umsögn
Þjóðminjasafns Íslands, sem telur að matarvagn
á svæðinu samræmist ekki þeirri ásýnd og
upplifun sem lagt er upp með að skapa í Byggða-
safninu í Glaumbæ.
Í viðtali við Akureyrarblaðið segir Helgi
Freyr Margeirsson, sá sem sækir um leyfið, að
hann hafi rætt þessa hugmynd við safnstjóra
Byggðasafns Skagfirðinga sem hvatti hann til að
sækja um leyfið í upphafi. „Ég hefði ekki farið af
stað með þessa hugmynd annars. Þetta er
einfaldlega söluvagn sem selur kaffi og tilbúnar
veitingar. Vagninn verður ekki staðsettur á lóð
byggðasafnsins. Hann er langt frá öllum
fornminjum auk þess sem allt við vagninn og
staðsetningu hans er að fullu afturkræft,“ segir
Helgi Freyr. /PF
„Til langs tíma litið er ekki ákjósanlegt að ríkið fari með
meirihlutaeign í viðskiptabönkum. Því er mikilvægt að
minnka hlut ríkisins í varfærnum skrefum og víðtækri sátt.
Áhersla verði lögð á opið og gagnsætt ferli þar sem gætt
verður að sem mestri dreifingu eignarhalds. Í því augna-
miði verði stefnt að því að almenningur geti fengið tiltek-
inn eignarhlut afhentan endur-
gjaldslaust.“ Þennan texta er
hægt að finna í stjórnarsáttmála
Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og
Bjartrar framtíðar.
Einhverra hluta vegna (lesist: af
augljósum ástæðum) ber fólk
ekki mikið traust til bankastofn-
ana í dag. Margir hafa það á
tilfinningunni að bankarnir séu
einungis gróðabissness eigenda
sinna og minnast þess þegar
þeir fóru heldur nærri sólinni á uppgangstímum fyrir hrun.
Bankar þurfa að hagnast eins og önnur fyrirtæki á réttlátan
og sómasamlegan hátt og eigendur að fá arð sem er í takti
við eðlileg viðhorf almennings. Bankar í einkaeigu hneigjast
til þess að hámarka arðinn fyrir eigendur en hugsa minna
um samfélagsþáttinn, nærumhverfið og þá einstaklinga
sem eiga í viðskiptum við þá (nema auðvitað til að græða á
þeim).
Að mínu mati er ekkert sem kallar á það að íslenska
ríkið selji hluti sína í bönkunum. Í rauninni finnst mér það
nauðsynlegt að ríkið eigi a.m.k. einn viðskiptabanka sem
hugsar um annað en hámarks gróða, væri jafnvel viðmið
annarra banka hvað ímynd varðar. Gæti verið í líkingu við
sparisjóðina sálugu. Hver vildi ekki hafa eins og einn
sparisjóð í sveitarfélaginu sínu? Spyr sá sem saknar gamalla
tíma!
Að almenningur geti fengið tiltekinn eignarhlut afhent-
an endurgjaldslaust ef hlutur ríkisins verður seldur er
fallegt yfirvarp yfir einkavæðingu. Áður en langt um líður
verður fámennur hópur búinn að kaupa til sín flesta hlutina
og sama gamla sagan endurtekur sig.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Framtíð bankakerfisins
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Hamingjusamir að loknum tónleikum
Heimir í Hörpunni
Þann 25. mars sl. var haldin
hátíðardagskrá í Eldborgarsal
Hörpu sem tileinkuð var
íslensku Vesturförunum og
afkomendum þeirra. Hátíðin var
liður í verkefni sem Vesturfara-
setrið á Hofsósi og Karlakórinn
Heimir í Skagafirði standa að
og nefnist Kveðja frá Íslandi.
Gísli Árnason, formaður
kórsins, segir það vera mat
Heimisfélaga að tónleikarnir
hafi tekist mjög vel í alla staði.
Nánast fullt hús og mikil
stemming meðal áheyrenda
enda dagskráin létt og fjöl-
breytt. „Eins og oft áður stigu
nokkrir félagar okkar fram úr
röðinni í nokkrum laganna
eins og gengur, þeirra á meðal
þeir Birgir Björnsson og Óskar
Pétursson, sem sungu einsöng
auk þess sem sópransöngkonan
Þóra Einarsdóttir söng með
okkur í nokkrum lögum og
gerði það listavel. Með okkur,
og sér, söng einnig Hljómfél-
agið, ungur kór skipaður ungu
söngfólki, undir stjórn Fjólu
Kristínar Nikulásdóttur.
Hljómfagur kór, sem setti svip
sinn á stundina eins og vera
bar,“ segir Gísli og bætir við að
strengjasveit á vegum þeirra
Sigurgeirs Agnarssonar og
Berglindar Stefánsdóttur hafi
leikið undir ásamt Tom
Higgersson og setti annan brag
á tónleikana að mati Heimis-
manna.
Kynnar kórsins, þeir Atli
Gunnar og Gunnar Sandholt,
sáu svo um að kitla hláturtaugar
gesta og kórmanna á milli laga,
eins og þeim einum er lagið.
Gísli segir á engan hallað þó
hlutar söngstjóra Heimis, Stef-
áns R. Gíslasonar, sé sérstaklega
getið í þessu samhengi. Hann
hafi náð að laða fram það besta
er býr í kórnum og á hve
stærstan þátt í velgengni hans
og tónlistarlegum metnaði.
„Það verður ekki annað sagt
en að Heimismenn hafi verið
afar hamingjusamir að loknum
þessum tónleikum. Frábærar
viðtökur og létt yfir fólki,“
segir Gísli ánægður með
suðurferðina. /PF
Nú fjölgar þeim bátum sem landa í höfnunum og þar koma grásleppubátarnir sterkir inn. Á
Skagaströnd bárust tæp 482 tonn á land í síðustu viku og rúmlega 300 tonn á Sauðárkróki.
Til Hofsóss bárust 2,8 tonn en engu var landað á Hvammstanga. Heildartalan er þá 785.176
kíló á Norðurlandi vestra í vikunni. /FE
Aflatölur 26. mars – 1. apríl 2017 á Norðurlandi vestra
Tæp 800 tonn á land í síðustu viku
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
SAUÐÁRKRÓKUR
Dagur SK 17 Rækjuvarpa 1.956
Fannar SK 11 Grásleppunet 10.184
Hafey SK 10 Grásleppunet 6.955
Kaldi SK 121 Grásleppunet 2.654
Klakkur SK 5 Botnvarpa 111.138
Málmey SK 1 Botnvarpa 149.742
Már SK 90 Grásleppunet 13.139
Óskar SK 13 Grásleppunet 4.788
Alls á Sauðárkróki 300.556
HOFSÓS
Geisli SK 66 Lína 1.048
Leiftur SK 136 Grásleppunet 1.804
Alls á Hofsósi 2.852
SKAGASTRÖND
Alda HU 112 Landb. lína 9.486
Arnar HU Botnvarpa 417.078
Auður Grásleppunet 5.130
Bergur Sterki HU 17 Grálsleppunet 7.917
Blær HU 77 Landb. lína 775
Fengsæll HU 56 Grásleppunet 4.688
Hafdís HU 85 Grásleppunet 4.794
Hafrún HU 12 Dragnót 6.391
Húni HU 62 Handfæri 2.604
Jenný HU 40 Grásleppunet 85
Kambur HU 24 Grásleppunet 7.208
Már HU 545 Grásleppunet 2.943
Ólafur Magnúss. HU 54 Þorskfiskinet 8.221
Sæfari HU 212 Landb. lína 3.843
Sæunn HU 30 Handfæri 605
Alls á Skagaströnd 481.768
Kjördæmismót í skólaskák
Elvar Már Valsson sigraði
Sl. mánudag fór fram Kjördæmismót í skólaskák á
Norðurlandi í Húsi frítímans á Sauðárkróki. Keppendur voru
fimm, tveir í eldri flokki og þrír í yngri flokki.
Elvar Már Valsson í Húnavallaskóla varð sigurvegari með
fjóra vinninga af fjórum mögulegum og í öðru sæti varð Ester
María Eiríksdóttir í Grunnskólanum austan Vatna með þrjá
vinninga en hún varð jafnframt efst í eldri flokki. Unnu þau sér
þátttökurétt á Landsmóti í skólaskák. Í þriðja sæti varð Auður
Ragna Þorbjarnardóttir, Grunnskólanum austan Vatna, með tvo
vinninga. /FE
2 14/2017