Feykir - 05.04.2017, Síða 5
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Körfuboltakappinn, Viðar
Ágústsson, hefur farið mikinn
í vetur með liði Tindastóls í
Dominos deildinni í körfubolta.
Er hann talinn einn af bestu
varnarmönnum deildarinnar
en einnig hefur hann mjakast
upp skortöfluna. Hann var
í landsliði Íslands sem tók
þátt í Evrópumóti undir 20
ára í körfubolta í Grikklandi
sl. sumar og stóð sig með
mikilli prýði. Viðar er Króksari
af árgangi 1996, sonur
Guðbjargar Ragnarsdóttur og
Ágústs Andréssonar. Hann er
íþróttagarpur Feykis þessa
vikuna.
Íþróttagrein: -Körfubolti.
Íþróttafélag: -Tindastóll.
Helstu íþróttaafrek: -Þegar við
fengum silfur á Evrópumóti undir
20 ára í körfubolta í Grikklandi.
Skemmtilegasta augnablikið:
-Þegar við unnum Grikkland í
undanúrslitum á Evrópumótinu
fyrir framan fulla höll af Grikkjum.
Neyðarlegasta atvikið: -Þegar ég
tapa á móti Helgunum í skotkeppni
á æfingu, sem gerist samt næstum
aldrei.
Einhver sérviska eða hjátrú? -Ég
keppi yfirleitt í sömu sokkunum.
Uppáhalds íþróttamaður? -Krist-
aps Porziņņis leikmaður New York
Knicks í NBA-deildinni.
Ef þú mættir velja þér and-
stæðing, hver myndi það vera og
í hvaða grein mynduð þið spreyta
ykkur? -Usain Bolt í 200 m.
Hvernig myndir þú lýsa þeirri
rimmu? -Þetta yrði æsispennandi,
ég myndi líklega taka hann í
startinu en svo færi það eftir dags-
forminu hver myndi hafa hlaupið.
Helsta afrek fyrir utan íþrótt-
irnar? -Kláraði stúdentinn.
Lífsmottó: -Play hard or go home.
Helsta fyrirmynd í lífinu: -For-
eldrar mínir, af því að þau eru
dugleg og láta ekkert stoppa sig.
Hvað er verið að gera þessa
dagana? -Vinna í Reiðhöllinni
Svaðastöðum og klára tímabilið
með unglingaflokknum.
Hvað er framundan? -Sumarið og
undirbúa mig fyrir næsta tímabil.
Viðar Ágústsson / körfubolti
Keppir yfirleitt í
sömu sokkunum
( ÍÞRÓTTAGARPURINN ) palli@nyprent.is
Eflaust er þarna þristur á leiðinni.
Metnaður í
Fjölbraut
Körfuboltaakademía
FNV
Fyrir skömmu var samningur
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra og körfuboltadeildar
U.M.F.Tindastóls um íþrótta-
akademíu í körfubolta
endurnýjaður með undir-
skrift skólameistara,
Ingileifar Oddsdóttur og
Stefáns Jónssonar,
formanns körfuboltadeild-
arinnar. Akademían hefur
verið starfrækt í fimm ár
eða frá árinu 2012 þegar
Bárður Eyþórsson var
þjálfari Tindastóls.
Ljóst er að mikið íþrótta-
líf verður tengt skólanum
því fyrr í mánuðinum
undirrituðu skólameistari
og formaður knattspyrnu-
deildar Umf. Tindastóls
samning um íþróttaak-
ademíu í knattspyrnu.
Samningur sá stendur í
beinu sambandi við gervi-
grasvöll sem verður tekinn í
notkun næsta haust. /PF
Aftari röð frá vinstri: Arnór Freyr Fjólmundsson, Viktor Darri Magnússon, Þorgrímur
Svavar Runólfsson, Tsvetan Tsvetanov Michevski, Andri Björn Andrason og Magnús
Elí Jónsson. Fremri röð frá vinstri: Sveinn Kristinn Jóhannsson, Haukur Rafn Sig-
urðsson og Ása María Sigurðardóttir. Mynd Einar Örn Hreinsson.
Júdó
Góð ferð norðlenskra
júdókappa á Íslandsmót
Ungir júdókappar frá
Blönduósi og Sauðárkróki
gerðu góða ferð á Íslandsmót
yngri flokka sem fram fór í
Laugabóli, æfingaaðstöðu
Ármanns, í Reykjavík sl.
laugardag. Mótið er fyrir
ellefu til tuttugu ára og
er keppt í þyngdar- og
aldursflokkum.
Tindastóll átti níu kepp-
endur á mótinu og var árangur
hópsins góður og unnust alls
eitt silfur og þrjú brons.
Þorgrímur Svavar Runólfsson
varð í öðru sæti í Dr. U15+90,
Tsvetan Tsvetanov Michevski
varð þriðji í Dr. U18-90, Viktor
Darri Magnússon varð þriðji í
Dr. U15-60 og Ása María
Sigurðardóttir varð þriðja í St.
U15-52. Aðrir keppendur
stóðu sig líka vel og í heildina
unnust margir góðir sigrar og
eiga allir keppendur skilið gott
hrós fyrir að hafa sýnt metnað,
hugrekki og háttvísi. /PF
Þrír júdókappar úr
Pardus á verðlaunapalli
Félagar í Júdófélaginu Pardus á
Blönduósi gerðu einnig góða
ferð á Íslandsmótið í júdó en
þar átti Pardus þrjá fulltrúa á
verðlaunapalli. Viktor Már
Heiðarsson varð í öðru sæti í
73 kg flokki undir 18 ára,
Daníel Logi Heiðarsson varð í
öðru sæti í 66 kg flokki undir
18 ára og Benedikt Þór
Magnússon varð í öðru sæti í
undir 15 ára. Þá keppti Viktor
Már einnig í undir 21 árs og
varð þar í þriðja sæti. /HÚNI.IS
Haraldur
skákmeistari
Norðlendinga
Skákþing
Norðlendinga
Skákþing Norðlendinga
2017 var haldið 24.–26.
mars á Sauðárkróki og lauk
með sigri Ingvars Þórs
Jóhannessonar, sem hlaut
sex vinninga af sjö
mögulegum. Í öðru sæti,
og jafnframt Skákmeistari
Norðlendinga, varð Haraldur
Haraldsson á Akureyri með
fimm vinninga og hærri að
stigum en Stefán Bergsson
sem varð þriðji.
Í fjórða og fimmta sæti
með 4½ urðu Róbert Lager-
mann og Loftur Baldvins-
son en fjóra vinninga hlutu
þeir Leó Örn Jóhannsson,
Sigurður Eiríksson Akureyri
og Jón Arnljótsson Skaga-
firði, aðrir minna.
Tuttugu keppendur tóku
þátt, fjórir heimamenn, sjö
komu frá Akureyri, einn úr
Þingeyjarsýslu og átta gestir
að sunnan. Þaðan kom
einnig dómari mótsins,
Ingibjörg Edda Birgisdóttir,
en hún á ættir að rekja í
Skagafjörðinn, eins og segir
á heimasíðu Skákklúbbs
Sauðárkróks. /PF
Systkinin hraustu, Inga Sara, Jón Örn og Ester María. MYND: BJARKI MÁR ÁRNASON
Skagfirskur sigur í Skólahreysti
Þrjú systkin í Skólahreysti
Varmahlíðarskóli tryggði
sér sigur í Norðurlandsriðli í
Skólahreysti sem fram fór á
Akureyri í síðustu viku með 49
stig og Grunnskólinn austan
Vatna hampaði öðru sæti með
48 stig.
Í þriðja sæti varð Dalvíkur-
skóli, Húnavallaskóli lenti í
sjötta sæti, Árskóli í því átt-
unda og Höfðaskóli varð í
tíunda sæti.
Athygli vakti að þrír fjórðu
liðsins frá Hofsósi var skipað
þremur systkinum, þeim Ingu
Söru og tvíburunum Ester
Maríu og Jóni Erni í 10. bekk.
Þau eru börn þeirra Kristínar
Bjarnadóttur og Eiríks Frí-
manns Arnarsonar. Inga Sara,
sem er í 9. bekk, gerði sér lítið
fyrir og gerði 50 armbeygjur
sem gulltryggði henni fyrsta
sætið í þeirri grein og einnig
náði hún þriðja sæti í hreysti-
greipinni. /FE
Knattspyrnudeild Tindastóls
Mohammad snýr aftur
Markmaðurinn geðþekki, Brentton Mohammad, sem stóð í
marki Tindastóls síðastliðið sumar, hefur skrifað undir samn-
ing við Stólana og verður í markinu í 2. deildinni í sumar.
Tindastólsmenn hafa verið iðnir við að festa leikmenn með
samningum nú í vetur og þá hafa bæði karla- og kvennalið
félagsins verið á fullu stími í Lengjubikar KSÍ. Strákarnir hafa
spilað fjóra leiki; unnið einn, gert tvö jafntefli en töpuðu nú um
helgina í hörkuleik gegn Njarðvíkingum þar sem Kenneth Hogg
fékk að líta rauða spjaldið. Þá hafa stelpurnar unnið tvo leiki en
tapað einum í sínum riðli Lengjubikarsins. /ÓAB
14/2017 5