Feykir - 05.04.2017, Page 8
Að þessu sinni er það
Ingimar Oddsson (1968)
sem svarar Tón-lystinni
en hann er nú búsettur
á Akranesi. Ingimar var
á sínum tíma einn af
meðlimum stuðsveitarinnar
Jójó frá Skagaströnd sem
sló rækilega í gegn með
Stæltum strákum árið 1988
og sigraði Músíktilraunir
sama ár.
Ingimar er sannkallaður fjöl-
listamaður; tónlistarmaður, rit-
höfundur, leikari og myndlistar-
maður auk þess að vera
(sennilega) eini gufupönkari
(Steampunk) landsins. Á
Wikipedíu segir: -Ingimar hefur
sungið í söngleikjum, meðal
annars með Íslensku óperunni.
Hann samdi leikverkið Lindindin
rokkópera og setti það upp í
Íslensku óperunni árið 1995.
Árin 1995-1998 var hann
formaður leikfélagsins Theater.
Ingimar hefur sungið með
hljómsveitunum Reykjavíkur
quintet, Lærisveinar Fagins
og Jó-jó frá Skagaströnd. Árið
2009 gaf Ingimar út diskinn
Out of the Mist, sem inniheldur
frumsamda raftónlist, Raven-
black kom út árið 2015 og
einnig hafa komið út átta
lög á safnplötum sem hann
hefur samið eða sungið. Hann
hefur líka unnið að tónlist fyrir
tölvuleiki.
Þá er gaman að segja frá því
að Ingimar er að setja upp
Dularfullu búðina á Akranesi
en það er fjöllistahús í
gufupönk stíl sem stendur til að
opna í maí – þar verður margt
sem mun gleðja augu og eyru.
Hvaða lag varstu að hlusta
á? Einhvern jazz.
Uppáhalds tónlistartímabil?
Charleston og íslensku gull-
árin með Hauki Morthens og
Alfred Clausen í fararbroddi.
Hvaða tónlist fær þig til að
sperra eyrun þessa dagana?
Electro swing.
Hvers konar tónlist var
hlustað á á þínu heimili?
Steampunk, Electro swing,
klassík og jazz.
Hver var fyrsta platan/
diskurinn/kasettan/niður-
halið sem þú keyptir þér?
Picture Book með Simply
Red.
Hvaða græjur varstu þá
með? Engar.
Hver var fyrsta lagið sem
þú manst eftir að hafa fílað
í botn? Union of the Snake
með Duran Duran.
Hvaða lag getur eyðilagt fyrir
þér daginn? Happy New Year
með ABBA.
Þú heldur dúndurpartí í
kvöld, hvað læturðu hljóma í
græjunum til að koma öllum
í stuð? Electro Swing.
Þú vaknar í rólegheitum
á sunnudagsmorgni, hvað
viltu helst heyra? Fuglasöng
og öldugjálfur … og kannski
klassíska eða rómantíska
strengjatónlist.
Þú átt þess kost að fara
hvert sem er í heiminum og
skella þér á tónleika. Hvert
færirðu, á hvaða tónleika og
hvern tækirðu með þér? Ég
færi til Bayeruth og hlustaði á
Niflungahringinn eftir Wagner.
Ég tæki líklega konuna með.
Hvað músík var helst
blastað í bílnum þegar þú
varst nýkominn með bílpróf?
Rammstein … ég tók bílpróf
svo seint.
Hvaða tónlistarmaður hefur
þig dreymt um að vera?
Richard Wagner.
Hver er að þínu mati besta
plata sem gefin hefur verið
út? Svarta platan með
Metallica.
Sex vinsælustu lögin á Play-
listanum þínum? Líklega
lögin úr kvikmyndinni Amelie
eftir Yann Tiersen.
- - - - -
Ef einhverjir hafa áhuga á að
kynna sér gufupönkið betur
og geta ekki beðið eftir að
Dularfulla búðin opni, þá
er hægt að kíkja á spjall við
Ingimar á síðunni Pjatt.is þar
sem gufupönkið er útskýrt og
hægt að skoða myndir sem
tengjast þessum forvitnilega
lífsstíl.
Ingimar Oddsson / listamaður
Vill heyra fuglasöng og öldugjálfur á sunnudagsmorgni
( TÓN-LYSTIN ) oli@feykir.is
Ort um Trump og vorið
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga
Vísnakeppni Safnahúss Skagfirðinga verður á
sínum stað sem endranær í Sæluviku enda
hefur hún notið mikilla vinsælda allt frá árinu
1976 er hún var haldin í fyrsta sinn. Reglurnar
eru einfaldar; annars vegar botna vísnavinir
fyrirfram gefna fyrriparta og eða semja vísu um
ákveðið málefni. Ekki er nauðsynlegt að botna
allt og einnig er í lagi að senda bara inn vísu.
Að þessu sinni fengu fyrripartasmiðirnir
fyrirmæli um að hugsa vestur um haf og hafa
Dónald Trump í huga og voru þeir á
öndverðum meiði um það
hvort maðurinn væri til
óþurftar fyrir heiminn eða
misskilinn snillingur. Hins
vegar skyldu þeir setja saman
fyrripart sem gæfi góð fyrirheit
um vorið sem vonandi verður í
hlutfalli við líðandi vetur að
gæðum. Þá eiga vísnasmiðir að
semja vísu um þátt Skagfirðinga
í raunverulegum eða ímynduðum afrekum
hvers konar. Þá er um að gera að láta
ímyndunaraflið ráða för.
Vitið ekki að vestan hafs
var vitlaus maður kosinn.
Dæmalaust hve Dónald er
dagfarsprúður sómi.
Víst ég yrkja vildi helst
um vor í Skagafirði.
Vorið fyllir vitin mín
vangann strýkur blærinn.
Veitt verða tvenn peningaverðlaun, annars
vegar fyrir bestu afreksvísuna og hins vegar
fyrir besta botninn. Ekki er skilyrði að allir
fyrripartar séu botnaðir og
einnig er leyfilegt að senda
einungis vísu.
Vísur og botnar verða að
hafa borist Safnahúsi Skagfirð-
inga, Faxatorgi 550 Sauðárkróki
í síðasta lagi miðvikudaginn 26.
apríl nk. Nauðsynlegt er að
vísurnar séu merktar dunefni,
en rétt nafn og símanúmer fylgi
með í lokuðu umslagi. Einnig er hægt að senda
vísur og botna í tölvupósti á netfangið
bokasafn@skagafjordur.is og verður þá við-
komandi höfundi gefið dulnefni áður en
vísunar fara til dómnefndar.
Úrslit verða tilkynnt sunnudaginn 30. apríl
við setningu Sæluviku Skagfirðinga, í Safna-
húsinu á Sauðárkróki klukkan 13:00. /PF
Við læstar dyr
Rúnar Kristjánsson
Svo margur hefur orðið við læstar dyr að liggja
í lífi sínu öllu og hvergi elsku mætt.
Aldrei, aldrei fengið eitt andartak að þiggja
þá ást sem best í mótlætinu huggað fær og grætt.
Svo margur læstur úti frá lífsins bestu gæðum
er lamaður og sleginn og fær ei notið sín.
Liggur bara í kulda sem rekur yl úr æðum
og aldrei fær þar vistir sem blessuð sólin skín.
Slíkt ranglæti í engu er unnt að sjá og veita
því áfram þögult fylgi með augu sálarblind.
Þeir menn sem illum hlutum í hagstjórn sinni beita
þeir hljóta þó að vita að það er blóðug synd.
Þá ræður bara hatur og reiði í öllum málum
sem ristir djúpt í hjartað og tekur fyrir völ.
Og þannig oft er haldið því helvíti að sálum
sem heldur uppi stöðu sem gerir líf að kvöl.
Opnum, opnum dyrnar, svo enginn þurfi að líða,
allir verða að geta í kærleikanum mæst.
Tökum höndum saman um lífsins veröld víða
svo verði aldrei framar á þjáða dyrum læst!
Ingimar klæddur að hætti gufupönkara. MYND: ÚR EINKASAFNI
8 14/2017