Feykir - 05.04.2017, Side 10
„Það hafa allir gott af að fara
út fyrir þægindarammann“
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir er Sauðkrækingur og býr þar
ásamt konu sinni og tveimur dætrum. Hún er menntuð sem
íþróttafræðingur frá Laugarvatni og hefur alla tíð starfað við
þjálfun og kennslu en ákvað sl. haust að venda sínu kvæði í
kross og sótti um starf hjá Steinull.
Nafn: Dúfa Dröfn Ásbjörns-
dóttir.
Aldur: 34 ára.
Starf: Starfsmaður í Steinullar-
verksmiðjunni.
Stutt lýsing á starfinu: Ég vinn
fjölbreytt störf innan verk-
smiðjunnar. Oftast er ég pökk-
unarmaður sem sér um að
pakka, raða og ganga frá
steinullinni. Suma daga er ég
línumaður, þá reyni ég að passa
að allt gangi vel fyrir sig og rétt
stærð, lögun og fjöldi pakka sé
framleitt. Sparidaga fæ ég að
vera í stjórnherbergi, þar sem
passað er að rétt tegund og
þyngd sé framleitt.
Hvað ert þú búin að vera lengi
í þessu starfi? Ég byrjaði i lok
ágúst 2016.
Hvers vegna fékkst þú áhuga
á þessu starfi? Aðallega lang-
aði mig að breyta til, sá tækifæri
á að fá fjölskylduvænni vinnu
en þá sem ég hef verið í. Ég
ákvað því bara að stökkva á það
og sækja um og sé sko ekki eftir
því að hafa tekið sénsinn á að
prófa eitthvað nýtt.
Hver telur þú að sé ástæðan
fyrir því að starfið er almennt
talið „karlastarf“? Ég hef það
mest á tilfinningunni að það sé
vegna þess að þetta er
verksmiðja og að venjan sé að
það séu karlar sem vinni í
verksmiðjum. Margir halda
kannski að þetta sé mjög
líkamlega erfið vinna sem
konur hafa kannski ekki trú á
að þær geti unnið. En í fæstum
tilfellum er þetta líkamlega
erfitt, þó svo að auðvitað komi
svoleiðis tímar þá er það ekkert
sem konur geta ekki gert. Svo er
það kannski það að konur séu
feimnar við að sækja um á
vinnustað þar sem nánast
eingöngu karlmenn vinna.
Var eitthvað sem kom þér
sérstaklega á óvart við starfið?
Já og nei, Það kom mér
eiginlega mest á óvart hvað
þetta er fjölbreytt, ég er alltaf að
læra eitthvað nýtt. Einnig kom
það mér skemmtilega á óvart
hvað það er gaman að vinna
með svona fjölbreyttum hópi
karlmanna. Það eru allir tilbúnir
að hjálpa manni ef það er
eitthvað sem maður þarf hjálp
við eða kenna manni á eitthvað
sem maður kann ekki á. Þannig
er ég alltaf að læra eitthvað nýtt á
hverjum degi og það elska ég.
Er eitthvað við þetta starf sem
gerir það að verkum að konur
eigi erfitt með að vinna það?
Nei, ég hef alla vega ekki rekið
mig á þann hlut ennþá og held
ég komi ekki til með að gera það,
þetta er starf sem konur, jafnt
sem karlar, geta sinnt.
Þekkir þú/veist þú um margar
konur sem vinna þetta starf?
Nei, ég er alla vega eina konan
sem vinn þessa vinnu í verk-
smiðjunni.
Var erfitt að byrja í starfi þar
sem meirihluti vinnufélaga var
af öðru kyni? Nei, það var ekkert
mál, þetta eru allt svo frábærir
karlar/strákar sem ég vinn með.
Þeir tóku mér mjög vel strax frá
upphafi. Mér fannst það bara
viss kostur að fá tækifæri til að
prófa að vinna á vinnustað þar
sem það eru nánast eingöngu
karlmenn að vinna.
Finnst þér þú hafa mætt
fordómum á vinnustað eða
annars staðar vegna þess að
þú ert kvenmaður? Nei, ég hef
ekki mætt neinum fordómum í
vinnunni vegna þess að ég er
kona, karlarnir/strákarnir taka
mér bara eins og ég er. Gerum
við mikið grín að því að ég hafi
sömu áhugamál og þeir, það
leiðist þeim ekki. Nei, engir
fordómar, bara mikið um grín
og hlátur. Maður má heldur
ekki taka sjálfan sig of alvarlega.
Nokkur orð að lokum: Ég mæli
með því fyrir allar konur að
vera óhræddar við að prófa
eittthvað nýtt. Ekki festast í
sama hjólfarinu. Þó maður sé
að prófa eitthvað sem maður er
ekki búinn að mennta sig í.
Menntunin fer ekkert frá
okkur. Hún bíður róleg á
meðan verið er að prófa
eitthvað nýtt, fara út fyrir
þægindarammann og ögra
sjálfum sér. Það hafa allir gott af
því, bæði konur og karlar.
Dúfa tekur lyftarann til kostanna. MYND: FE
( #kvennastarf ) frida@feykir.is
Dúfa Dröfn Ásbjörnsdóttir starfsmaður hjá Steinullarverksmiðjunni á Sauðárkróki
Fermingin mín
Halldóra Árný Halldórsdóttir
Veislan í Héðinsminni
Halldóra Árný Halldórsdóttir á Úlfsstöðum í
Blönduhlíð verður fermd þann 4. júní á Silfra-
stöðum af sr. Döllu Þórðardóttur. Foreldrar
hennar eru Kolbrún Erla Grétarsdóttir og
Halldór Jóhann Einarsson.
Hvers vegna valdir þú að
fermast? -Til þess að staðfesta
skírn mína.
Hefur þú velt trúmálum
mikið fyrir þér? -Ég er ekkert
rosalega mikið að spá í það.
Hvernig hefur fermingar-
undirbúningnum verið
hátt-að? -Ég er alla vega
búin að ákveða allt, er búin
að kaupa smá af skrauti.
Svo erum við að senda
út boðskort, kaupa kerti,
servíettur og sálmabók.
Síðan förum við bráðum að kaupa
fermingarfötin og þetta er bara mjög skemmtilegt og gaman.
Hvar verður veislan haldin? -Í Héðinsminni.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Nei, er samt búin að ákveða
í hvaða búð þau verða keypt, sem er Kjólar og Konfekt.
Hver er óska fermingargjöfin? -Alveg soldið mikið, mig langar
alla vega í krossara eða fjórhjól, fartölvu, sjónvarp og peninga.
Hafþór Örn Laursen Ólason
Las Barnabiblíuna
þegar hann var yngri
Hafþór Örn Laursen Ólason á Blönduósi verður
fermdur í Blönduóskirkju þann 29. apríl af sr.
Sveinbirni R. Einarssyni. Foreldrar hans eru Auður
Ingibjörg Hafþórsdóttir og Óli Guðlaugur Laursen.
Hvers vegna valdir þú að
fermast? -Til að staðfesta trú
mína.
Hefur þú velt trúmálum mikið
fyrir þér? -Ekkert mjög mikið,
en las Barnabiblíuna nokkrum
sinnum þegar ég var yngri.
Hvernig hefur fermingar-
undirbúningnum verið hátt-
að? -Ég hef farið í nokkrar
messur og mætt til prestsins
en mamma og pabbi hafa séð
um rest.
Hvar verður veislan haldin? -Í
sal Harmonikkufélagsins á Blönduósi.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já, það verður
kökuboð.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já, með erfiðleikum.
Hver er óska fermingargjöfin? -Tölva og peningur, annars hef
ég ekkert verið að spá mikið í það.
Sara María Ómarsdóttir
Hefur lært heilmikið um
trúmál í gegnum tíðina
Sara María Ómarsdóttir í Varmahlíð verður fermd
þann 4. júní í Glaumbæ af sr. Gísla Gunnarssyni.
Foreldrar hennar eru Guðbjörg Steinunn Sigfúsdóttir
og Ómar Bragason.
Hvers vegna valdir þú að fermast?
-Vegna þess að ég vil staðfesta
skírnina og trú mína á guð.
Hefur þú velt trúmálum mikið
fyrir þér? -Ég hef lært heilmikið
um trúmál í gegnum tíðina, fyrst í
sunnudagaskólanum, svo í TTT og svo
núna í fermingarfræðslunni.
Hvernig hefur fermingarundirbúningn-
um verið háttað? -Við erum lítið farin að
undirbúa en þó er búið að velja daginn
sem er hvítasunnudagur og panta sal.
Hvar verður veislan haldin? -Hún verður
haldin á Löngumýri.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já að mestu leyti.
Óli kokkur ætlar að elda matinn fyrir okkur, en það verður líklega
lambalæri og kjúklingur. Svo verða kökur á eftir.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Ég er ekki búin að kaupa mér
fermingarföt en ég er með hugmyndir um hvað mig langar í.
Hver er óska fermingargjöfin? Ég er ekki með neina ákveðna ósk
um fermingargjöf.
10 14/2017