Feykir - 07.06.2017, Blaðsíða 2
Um helgina opnuðu tvær sýningar á Sauðárkróki, annars
vegar Lundasýningin Puffin and friends sem segir frá
hlýnun hafsins og tilfærslu á lífríki sjávar m.t.t. þeirra fugla
og fiska sem lifa í því og hins vegar Kona á skjön sem fjallar
um ævi og störf skáldkonunnar Guðrúnar Árnadóttur frá
Lundi. Þessar sýningar eru
kærkomin viðbót á annars
fábrotið sýningar- og safna-
hald á Sauðárkróki (í jákvæðri
merkingu).
Mér hefur lengi fundist lítið
vera gert á Sauðárkróki til að
krækja í ferðamanninn sem
leið á um staðinn. Frumkvæði
hefur vantað og því hefur
staðan verið þessi. Kannski
blundar enn í Króksurum að
ferðamaðurinn er líklega bara
annars staðar. Það var alla vega í mínum ungdómi, áður
en Þverárfjallsvegurinn kom, að túristarúturnar fóru ekki
lengra en að Glaumbæ og snéru þá við á leið sinni eftir
hringveginum. Ef maður sá ferðamann á Króknum góndi
maður á hann eins og viðundur væri á ferð. Seinna fóru að
koma rútur og ferðamennirnir hópuðust inn á hótelið sem
hvert sumar er rekið í heimavist Fjölbrautaskólans. Þeir
komu um kvöldmatarleytið, fengu sér að borða og gengu svo
um bæinn í flokkum og kíktu í glugga verslana sem allar
voru lokaðar, það voru bara sjoppur sem voru opnar fram á
kvöld. En nú er öldin önnur. Ferðamönnum hefur fjölgað um
allt land og Sauðárkrókur er viðkomustaður æ fleiri þeirra.
Mig langar með þessum pistli til að hvetja framsækið fólk
á Sauðárkróki til að hugsa eins og ferðamannaveiðari. Það er
fjöldi fólks sem heimsækir staðinn og enn er hægt að bæta
við þjónustuna. Látið hugann reika og framkvæmið. Ekki
bíða eftir að einhver annar geri það, þá gerist ekkert.
Páll Friðriksson, ritstjóri
LEIÐARI
Vannýttir möguleikar
Útgefandi: Nýprent ehf., Borgarflöt 1, Sauðárkróki
Póstfang Feykis: Borgarflöt 1, 550 Sauðárkrókur
Ritstjóri & ábyrgðarmaður:
Páll Friðriksson, palli@feykir.is & 861 9842
Blaðamenn:
Fríða Eyjólfsdóttir, frida@feykir.is & 867 9744,
Óli Arnar Brynjarsson, oli@feykir.is
Áskriftarverð: 530 kr. hvert tölublað með vsk. Lausasöluverð: 650 kr. með vsk.
Áskrift og dreifing: Nýprent ehf. Sími 455 7171. Umbrot og prentun: Nýprent ehf.
Óháð fréttablað á Norðurlandi vestra - alltaf á miðvikudögum
Fyrsta tímabili strandveiða er nú lokið og varð heildaraflinn á svæði B (frá Ströndum að
Grýtubakkahreppi) 416,4 tonn. Er það 105,6 tonnum undir leyfilegu hámarki og bætist sá
afli við heimildir næsta tímabils. Í síðustu viku var tæpum 75 tonnum landað á Skagaströnd,
735 kílóum á Hofsósi og á Sauðárkróki var tæpum 758 tonnum landað, þar af voru um 470
tonn af rækju sem flutningaskipið Silver Fjord flutti frá Tromsö í Noregi. /FE
Aflatölur 28. maí – 3. júní 2017 á Norðurlandi vestra
Fyrsta tímabili strandveiða er lokið
SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG SKIP/BÁTUR VEIÐARFÆRI KG
Stella GK 23 Landbeitt lína 4.760
Svalur HU 124 Handfæri 212
Sæunn HU 30 Handfæri 785
Víðir EA 423 Handfæri 324
Alls á Skagaströnd 74.906
SAUÐÁRKRÓKUR
Helga Guðmundsd. SK 23 Handfæri 335
Kristín SK 77 Handfæri 313
Klakkur SK 5 Botnvarpa 115.506
Maró SK 33 Handfæri 219
Málmey SK 1 Botnvarpa 170.786
Silver Fjord 3FWE9PA 999 Botnvarpa 469.679
Tara SK 25 Handfæri 358
Vinur SK 22 Handfæri 653
Alls á Sauðárkróki 757.849
HOFSÓS
Leiftur SK 136 Handfæri 735
Alls á Hofsósi 735
SKAGASTRÖND
Auður HU 94 Handfæri 831
Bjartur í Vík HU 11 Handfæri 258
Blíðfari HU 52 Handfæri 384
Bogga í Vík HU 6 Handfæri 800
Dagrún HU 121 Grásleppunet 241
Dísa HU 91 Handfæri 247
Dóra HU 225 Handfæri 761
Fjölnir GK 157 Lína 59.694
Geiri HU 69 Handfæri 389
Gyðjan HU 44 Handfæri 707
Hafdís HU 85 Handfæri 639
Húni HU 62 Handfæri 480
Jenný HU 40 Handfæri 119
Kambur HU 24 Handfæri 469
Kópur HU 118 Handfæri 282
Lukka EA 777 Handfæri 482
Maggi Jóns HU 70 Handfæri 505
Már HU 545 Handfæri 85
Ólafur Magnússon HU 54 Grásleppunet 1.313
Óskráður ZZ o Grásleppunet 139
Lundasýning opnaði um helgina
Puffin and friends í Aðalgötunni á Sauðárkróki
Puffin and friends nefnist
sýning sem opnaði sl. laugar-
dag á Aðalgötu 24 á Sauðár-
króki en grunnhugmyndin að
henni er hlýnun hafsins og
tilfærsla á lífríki sjávar m.t.t.
þeirra fugla og fiska sem
lifa í því.
Aðalviðfangsefni safnsins
er lundinn en aðrir sjófuglar,
og þau spendýr sem hafa
Skagafjörð sem búsvæði, fá sitt
pláss í sýningunni. Má þar
nefna þær hvalategundir sem
sjást reglulega á firðinum sem
og seli, bæði út- og landsel.
Þá verður til sýnis hvítabjörn-
inn sem felldur var í Fljótum
árið 1988 og hefur verið
Heimili fyrir fatlað fólk á Blönduósi
Nýr forstöðumaður ráðinn
Ari Jóhann Sigurðsson hóf,
þann 1. júní, störf sem
forstöðumaður á heimili fyrir
fatlað fólk á Blönduósi. Ari
hefur starfað sem forstöðu-
maður á meðferðarheimilinu
Háholti undanfarin ár en eins
og fram hefur komið er það
nú að hætta starfsemi sinni.
Í upphafi árs 2016 var
samþykktur samningur um
sameiginlegt þjónustusvæði á
Norðurlandi vestra um þjón-
ustu við fatlað fólk. Á þjónustu-
svæðinu er Sveitarfélagið
Skagafjörður leiðandi sveitar-
félag og veitir fötluðu fólki, sem
á lögheimili í aðildarsveitar-
félögunum þjónustu. Þjónusta
innan svæðisins er veitt á
jafnræðisgrundvelli og byggja
ákvarðanir um veitingu hennar
á mati á þjónustuþörf. Sömu
viðmið gilda um þjónustustig á
svæðinu öllu. Aðildarsveitar-
félögin eru Akrahreppur,
Blönduósbær, Húnavatns-
hreppur, Húnaþing vestra,
Skagabyggð, Sveitarfélagið
Skagafjörður og Sveitarfélagið
Skagaströnd, að því er segir á
heimasíðu Svf. Skagafjarðar. /FE
vistaður í Náttúrugripasafninu
í Varmahlíð. Þá geta gestir
brugðið á sig sýndargleraugum
og m.a. ferðast út í Drangey
með hjálp tækninnar og 360°
myndatöku. /PF
Aðstandendur Lundasýningarinnar. Árni Rúnar Hrólfsson, Árni Gunnarsson, Magnús
Barðdal og Guðbrandur Ægir Ásbjörnsson MYND: PF
Samþykkjum aldrei loftlínu!
Áhugafólk um ásýnd Skagafjarðar
Á opnum fundi áhugafólks um
ásýnd Skagafjarðar, sem
haldinn var í Varmahlíð sl.
laugardag, kom skýrt fram að
landeigendur í Skagafirði munu
ekki samþykkja lagningu
loftlína um lönd sín. Í
tilkynningu frá skipuleggjendum
kemur fram að sveitarfélagið
Skagafjörður vinni nú að
breytingu á aðalskipulagi
Skagafjarðar þar sem til
stendur að setja stóriðjuloftlínur
inn á skipulag, þrátt fyrir að
Landsnet hafi nú tekið
Blöndulínu 3 út af
framkvæmdaáætlun og ætli að
vinna umhverfismat fyrir línuna
upp á nýtt.
„Fundurinn var vel sóttur,
nema af fulltrúum stjórnmála-
flokka í sveitarstjórn Skaga-
fjarðar en einungis fulltrúi
Vinstri Grænna og óháðra þáði
boð um setu í pallborði á
fundinum,“ segir í tilkynningu.
Inn á fundinn barst eftirfarandi
ályktun frá hópi landeigenda í
Skagafirði:
Samþykkjum aldrei loftlínu!
Landeigendur á línuleið
Blöndulínu 3 ítreka enn og aftur
að þeir munu aldrei samþykkja
lagningu loftlínu um lönd sín.
Landeigendur hvetja sveitar-
stjórn Skagafjarðar til að láta af
þeim fyrirætlunum að setja
stóriðjuloftlínur inn á aðal-
skipulag. Það er augljós tíma-
skekkja í ljósi þess að Landsnet
hefur tekið Blöndulínu 3 út af
framkvæmdaáætlun og ætlar að
vinna umverfismat fyrir línuna
upp á nýtt, eins og Umhverfis-
ráðuneytið og Skipulagsstofnun
hafa þrýst á um. Í nýju um-
hverfismati verða jarðstrengir
metnir sem valkostur og allar
ákvarðanir um línuleiðir teknar
til endurskoðunar.
/PF
2 22/2017