Feykir - 07.06.2017, Side 7
Mandarínendurnar á Húsavík. MYNDIR: HÖSKULDUR B. ERLINGSSON
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn
Eyrarvegi 21 Sauðárkróki Sími 455 6600 www.vorumidlun.is
Útibúin á Norðurlandi vestra www.lyfja.is
www.skeljungur.is
Skagastrandarhöfn | Sími: 455 2700 www.skagastrond.is
Góð aflameðferð er grunnur gæða – Blæðing og kæling
www.fmis.is
Þverbraut 1 Blönduósi & 452 4932 | Klapparstíg 4 Hvammstanga & 451 2730
Borgarmýri 1 Sauðárkróki Sími 455 6500
Hesteyri 1 550 Sauðárkróki Sími 455 4500
VÉLAVERKSTÆÐI
Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5433 www.stettarfelag.is
Hesteyri 1 Sauðárkrókur Sími 453 5923 dogun@dogun.is
Sæmundargötu 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5481
ningshraði þessara véla var ekki
mikill.
Í stýrishúsi var svipaður
búnaður og í öðrum bátum á
þessum tíma. Stjórnbúnaður
fyrir vél og skrúfu, áttaviti
(kompás) og svo að sjálfsögðu
stýri sem var svokallað keðju-
stýri; (keðja í rörum milli
stýrishjóls og stýrisás) og
dýptarmælir var af gerð Kelvin
Huges neistamælir.
Við kaupin á bátnum tók við
skipstjórn Finnbogi Halldórs-
son sem hafði verið skipstjóri á
Sæmundi SK 1 (sjá 14. tölublað
Feykis 2017), sem var í eigu
sama fyrirtækis. Stýrimaður var
Högni Einarsson úr Austur-
Skaftafellssýslu, fyrsti vélstjóri
var Grétar Guðjónsson frá
Reykjavík og annar vélstjóri
Karl Finnbogason frá Siglufirði.
Einnig mun Kristófer Eggerts-
son á Sauðárkróki hafa verið
skipstjóri á Eiríki um tíma.
Meðan báturinn er í eigu ÚS,
(fyrri), var hann gerður út til
síldveiða á sumrin og togveiða í
annan tíma en tildrög þess að
báturinn var keyptur til
Sauðárkróks voru þau að hann
var gangmeira, stærra og
burðarmeira skip en Sæmundur.
Eitthvað mun vélin í bátnum
hafa verið að stríða þeim
varðandi bilanir enda ekki mikil
aðstaða til viðhalds og viðgerða
á Sauðárkróki á þessum tíma.
Árið 1952 er báturinn svo seldur
til Akraness, Haraldi Böðvars-
syni. Þar fékk hann nafnið
Reynir AK 98. Eftir komuna til
Akraness var hann gerður út
sem síldarbátur að sumrinu en á
línu og net á vetrarvertíðinni,
einnig var róið með línu á
haustin. Árið 1955 er svo sett í
hann ný vél, June-Muktel 240-
270 hestöfl. Eftir að báturinn
kom til Akraness voru margir
kunnir aflamenn með hann og
má þar nefna Helga Íbsen, Viðar
Karlsson, Jón á Gneistavöllum
Sigurðsson og Kristján Ragn-
arsson, síðar skipstjóra á
Sauðárkróki.
Það má segja að endalok
þessara tveggja báta sem voru í
eigu Útgerðarfélags Skagfirð-
inga hafi verið með svipuðum
hætti. Sæmundur sökk 16. mars
1964 en Eiríkur brann og sökk á
Selvogsbanka 20. júní 1968. Níu
manna áhöfn var bjargað.
/Steinar Skarphéðinsson
Híf opp!
Ein saga til...
Í gamla daga tíðkaðist það að krakkar gengju í hús á Sauðárkróki
og seldu Sjómannadagsblaðið á sjómannadaginn. Þeirra á meðal
var Hjalti Jósefs. Hann bankaði meðal annars upp á hjá Sveini
blinda Ingimundarsyni í Græna húsinu og bar upp erindið,
kurteisin uppmáluð.
„Ég get nú ekki lesið þetta,“ sagði Sveinn.
Hjalti gaf sig ekki og kom með krók á móti bragði að hann hélt:
„En þú getur þá alltaf skoðað myndirnar.“
22/2017 7