Feykir - 07.06.2017, Page 11
Fyrir góðan dag
Við óskum sjómönnum til hamingju með daginn
Ártorgi 1 550 Sauðárkrókur & 455 4500 www.ks.is
N
Ý
PR
EN
T
eh
f
við neitt og tankurinn tæmdist í
niðurfallið á örskotsstundu, þeim
gömlu til mikillar gleði eða hitt þó
heldur.
Hvaða teiknimyndapersóna höfðar
mest til þín? Andrés Önd.
Hvaða fræga manneskja mundir
þú helst vilja vera? Væri fínt að
vera Mourinho í nokkra daga og fá
að prófa að stýra alvöru liði.
Hver er uppáhalds bókin þín og/
eða rithöfundur? Les of sjaldan. En
þegar ég les er það helst um jólin
og þá Útkallsbækurnar hans Óttars.
Orð eða frasi sem þú notar of
mikið? Er bissí, hringi eftir smá...
(þetta smá geta verið nokkrir dagar/
vikur).
Hver var mikilvægasta persóna
síðustu 100 ára að þínu mati?
Mamma og pabbi. Annars væri ég
ekki hér.
Ef þú gætir farið til baka í tímann,
hvert færirðu? Ég færi aftur til 28.
apríl árið 1990 en þá er mér sagt
að Liverpool hafi síðast orðið enskur
meistari þ.e. fyrir 27 árum síðan. Er
ekki að kaupa það og væri því til í
að sjá þennan merkisatburð með
eigin augum.
Hver væri titillinn á ævisögu þinni?
Ætli að það væri ekki viðeigandi að
það yrði „Heyri í þér eftir smá...“
Framlenging:
Ef þú gætir hoppað upp í flugvél og
réðir hvert hún færi, þá færirðu...
til Flórída í gott frí með fjölskylduna.
Nefndu eitthvað þrennt sem
þér finnst þú mega til að gera
áður en þú gefur upp öndina:
Eignast sumarbústað, labba á
Hvannadalshnjúk, fá tækifæri til að
sinna afa hlutverkinu.
22/2017 11
Hvernig nemandi varstu? Ég held
að ég hafi verið algjör fyrirmyndar-
nemandi þó ég segi sjálfur frá. Aldrei
vesen á mér eftir því sem ég best
veit.
Hvað er eftirminnilegast frá ferm-
ingardeginum? Græni ullarjakkinn
sem ég klæddist sem var aðaltískan
í þá daga. Fáir myndu láta sjá sig í
þessum jökkum í dag.
Hvað ætlaðir þú að verða þegar
þú yrðir stór? Atvinnumaður í knatt-
spyrnu. Gekk því miður ekki eftir, veit
ekki alveg hvað klikkaði.
Hvað var uppáhalds leikfangið þitt
þegar þú varst krakki? Fótboltinn
minn.
Besti ilmurinn? Matarilmurinn úr
eldhúsinu hennar Hildu.
Hvað varstu að hlusta á þegar þú
fékkst bílprófið? Allt með Sálinni
og Stebba Hilmars. Eina sem ég
hlustaði á í þá daga.
Hvaða lag er líklegast að þú takir
í Kareókí? Vængjalaus með Sálinni.
Þeir sem þekkja mig vita af hverju.
Hverju missirðu helst ekki af í
sjónvarpinu? Horfi mjög lítið á
sjónvarp. Missi samt helst aldrei af
fyrstu 2-3 mínútum á öllum þáttum/
myndum en eftir það er ég yfirleitt
sofnaður.
Besta bíómyndin? Titanic. Fyrsta
stefnumótið mitt og Hildu sem fram
fór í Blönduósbíói. Yndislegur tími.
Hvaða íþróttamanni hefurðu
mestar mætur á? Hér áður var
það Michael Jordan sem ég fylgdist
( RABB-A-BABB ) oli@feykir.is
NAFN: Eysteinn Pétur Lárusson.
ÁRGANGUR: Hin magnaði árgangur 1978.
FJÖLSKYLDUHAGIR: Giftur Brynhildi Olgu Haraldsdóttur og eigum
við strákana Rúnar Inga (14), Harald Björgvin (11) og Lárus
Orra (7). Þá má ekki gleyma Blika, páfagauknum á heimilinu.
BÚSETA: Kópavogur.
HVERRA MANNA ERTU OG HVAR UPP ALINN: Ég er sonur Lárusar Jóns-
sonar og Sigrúnar Zophoníasdóttur sem búsett eru á Blöndu-
ósi. Sjálfur er ég uppalinn á Blönduósi og bjó þar til 20 ára
aldurs.
STARF / NÁM: Starfa í dag sem framkvæmdastjóri hjá Breiða-
blik. Er menntaður kennari og stunda í dag meistaranám á
Bifröst í forystu og stjórnun samhliða vinnu.
HVAÐ ER Í DEIGLUNNI: Njóta sumarsins, utanlandsferð, fylgja
strákunum mínum eftir á knattspyrnumótum hér heima
og erlendis, skipuleggja Húnavökuhátíðina á Blönduósi og
flutningar.
Eysteinn
vel með og var hann magnaður
íþróttamaður. Í dag segi ég Gylfi
Sigurðsson. Ótrúlegur íþróttamaður
sem hefur náð langt með dugnaði
og eljusemi.
Hvað gerir þú betur en allir aðrir á
þínu heimili? Snooza á morgnana,
klikkar aldrei, frúnni til mikillar gleði.
Hvert er snilldarverkið þitt í eld-
húsinu? Geislavirkar pylsur – fljótlegt
og þægilegt og klikkar aldrei. Pylsa
vafin í eldhúsbréf, sett inn í örbylgju-
ofn í 27 sek og maturinn klár.
Hættulegasta helgarnammið?
Bland í poka úr Hagkaup.
Hvernig er eggið best? Spælt
báðum megin.
Hvað fer mest í taugarnar á þér
í fari þínu? Að taka of mikið af
verkefnum að mér og segja of
sjaldan nei.
Hvað fer mest í taugarnar á þér í
fari annarra? Óheiðarleiki
Uppáhalds málsháttur eða tilvitn-
un? Lokaðu aldrei dyrum á eftir þér,
þú veist aldrei hvenær þú gætir þurft
að hafa þær opnar seinna meir.
Hver er elsta minningin sem
þú átt? Þær eru margar góðar
sem koma í hugann úr sveitinni í
Vatnsdalnum. Sérstaklega er minnis-
stætt þegar ég og Jón Guðmann,
frændi minn, fórum tveir ungir að
árum að sækja mjólk fyrir ömmu
og afa úr mjólkurtanknum og
töldum það lítið mál. Í stað þess að
skrúfa frá krananum losuðum við
alla hespuna og réðum ekki neitt