Feykir - 07.06.2017, Blaðsíða 12
„Jafn barnslega spenntir fyrir þessu
og við vorum þegar við vorum að byrja“
Nú í maí kom út þriðja
skífa félaganna og
Króksaranna, Arnars
Freys Frostasonar og
Helga Sæmundar
Guðmundssonar, í Úlfur
Úlfur. Gripurinn ber
nafnið Hefnið okkar, sem
hljómar nú eins og
endirinn á einhverju, en
þeir kappar hafa ekkert
gefið upp varðandi
framhaldið. Þeir verða
hins vegar á fullu í
tónleikahaldi á næstunni,
bæði hér á Fróni og í
Evrópu í haust. Feykir
náði í skottið á Helga
Sæmundi sem svaraði
nokkrum spurningum.
Arnar og Helgi hafa átt
miklum vinsældum að
fagna síðustu þrjú árin
eða frá því að önnur
skífan þeirra, Tvær
plánetur, kom út. Þeir
höfðu áður sent frá sér
Föstudaginn langa árið
2011 sem innihélt lög á
borð við Á meðan ég var
ungur, Ég er farinn og Út.
Fyrsta skífan kom út áður
en íslenska rappvorið
gekk í garð og má segja að
aðdáendur Úlfur Úlfur
hafi verið ansi spenntir
fyrir nýju efni árin á eftir.
Lögin Sofðu vel og
Tarantúlur sáu til þess að
halda nafni þeirra á lofti
þangað til Tvær plánetur
kom út í sumarbyrjun
2015. Eftirleikurinn var
ævintýri líkastur, hvert
lagið af öðru sló í gegn og
allir hrópandi -Bara ég
motherfucker!- með
Arnari og Helga.
Brennum allt, 100.000 og
Úrið mitt er stopp pt.2 og
20ogeitthvað slógu í gegn
svo einhver lög séu nefnd.
Snilldar rapp sem fann
sér farveg í miklu breiðari
hópi en vænta mátti.
Úlfur Úlfur hafa mætt á
Drangey Music Festival
síðustu sumur. Í fyrra
skiptið, sumarið 2015, var
Tvær plánetur nýkomin
út og skyndilega voru allir
móttækilegir fyrir
íslensku rappi. Úlfur
Úlfur bættust við
dagskrána á síðustu
stundu og strákarnir
eiginlega hálf hissa á
athyglinni að því er
virtist. Sumarið eftir voru
þeir orðnir slípaðir og
flottir og hreinlega áttu
brekkuna. Eldri
áhorfendur dilluðu sér
kátir í takt við tónlistina
og þeir yngri nánast með
allt rappið á hreinu.
Motherfuckers!
Rappsenan er orðin allt
um lykjandi í íslenskri
tónlist í dag og Úlfur
Úlfur halda rappinu enn
hátt á lofti á Hefnið okkar.
Meðal laga sem eiga eftir
að hljóma í sumar eru
Geimvera, Bróðir, Barn
og Engar hendur. Feykir
henti nokkrum
spurningum á Helga
Sæmund í tilefni af útgáfu
nýju skífunnar.
Eru félagarnir í Úlfur
Úlfur ánægðir með
Hefnið okkar? -Við erum
afskaplega ánægðir með
Hefnið okkar. Bæði ferlið
sem fór í að búa hana til
og útkomuna sjálfa.
Hvernig verður nýjum
diski fylgt eftir? -Plötunni
verður fylgt eftir með því
að spila út um allt. Bæði
ætlum við á tónleika-
ferðalag um allt Ísland í
júlí og svo um alla Evrópu
í september. Auk þessara
túra verðum við hér og
þar flestar helgar fram á
haust.
Eru einhver plön um
framhald? -Halda áfram
að eldast, þroskast, vera
vinir og dreifa
boðskapnum.
Hvað er áhugaverðast
við tónlistarsenuna þessi
misserin? -Mér finnst það
áhugaverðast hvað senan
er að stækka og dafna á
hverjum degi. Það hefur
komið á sjónarsviðið
margt frábært tónlistar-
fólk undanfarin 1-2 ár
sem hikar ekki við það að
prófa eitthvað nýtt sound
til að sjá hvað virkar.
Eftir velgengni síðustu
ára, hvað stendur upp
úr? -Ef ég ætti að nefna
eitthvað eitt móment sem
stendur upp úr er það
ábyggilega að labba upp á
svið á útgáfutónleikunum
okkar eftir Tvær Plánetur.
Það var gott móment.
Annars er það sem
stendur upp úr eiginlega
bara milljón móment sem
við höfum átt yfir
síðastliðin ár – á
tónleikum, skilaboð sem
við höfum fengið, í
stúdíóinu og hvar sem er.
Þetta er allt búið að vera
geðveikt.
Hvað hefur komið mest á
óvart? Við sjálfir höfum
komið okkur mest á
óvart. Að vera ennþá að
og ennþá jafn barnslega
spenntir fyrir þessu og
við vorum þegar við
vorum að byrja.
Feykir þakkar Helga fyrir
spjallið og óskar þeim
félögum til hamingju
með hörku skífu.
Úlfur Úlfur senda frá sér nýja skífu – Hefnið okkar
UMFJÖLLUN
Óli Arnar Brynjarsson
Úlfur Úlfur á Drangey Music Festival sumarið 2016.
MYND: ÓAB
12 22/2017