Feykir - 07.06.2017, Side 14
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn
Skarðseyri 5 550 Sauðárkróki Sími 455 3000 www.steinull.is
Broddi og Christine matreiða
Broddborgarar og
fleira góðmeti
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN frida@feykir.is
Það eru þau Broddi Reyr
Hansen og Christine Hellwig
sem leika listir sínar við
Svo er það fyllingin: Hún er gerð
með þeim hætti að það sem er til
í ísskápnum, svo sem sveppir,
paprika og laukur er steikt á pönnu
og kryddað eftir smekk, ef þið
hafið enga hugmynd þá skal nota
salt og pipar. Fyllið holuna með
steikta grænmetinu, á toppinn er
settur bragðmikill ostur, jafnvel
nokkrar gerðir, við mælum með
gráðosti. Þessu þrjúhundruð
gramma flykki er síðan komið fyrir
á tveim álbökkum og flutt yfir á
grillið. Drekkið innihald flösk-
unnar sem þið opnuðuð í upphafi
og látið þetta grillast.
Að lokum er hamborgarinn
fluttur yfir á hamborgarabrauðið,
farið varlega, þetta er vandasamt og
hægt að klúðra öllu. Ekki gleyma
að athuga hvort lystugar sósur eru
til í eldhúsinu, til dæmis passar
BBQ alltaf vel á svona borgara.
Njótið herlegheitanna.
Skoðið myndirnar hér fyrir
neðan til að átta ykkur á ferlinu.
RÉTTUR 1
Einfaldur fiskréttur
á miðvikudegi
Þótt gaman sé að grilla kjöt þá
er fiskur líka afbragðs matur og
ekki sakar að hann er hollur.
Hér er hugmynd að einföldum
fiskirétti sem mun slá í gegn
hjá fjölskyldunni!
1 kg fiskur, t.d. ýsuflök
1 saxaður laukur
2 paprikur
1 askja sveppir
4 gulrætur
½ dós ananaskurl
1 dós beikon smurostur
2 dl rjómi
1 msk smjörlíki
karrí, súpukraftur, sítrónupipar
og fiskikrydd.
Aðferð: Saxið allt grænmetið og
steikið í smjörlíki. Bætið síðan
beikonosti, rjóma og ananaskurli út
í. Látið ostinn bráðna og kryddið
með súpukrafti og karrí. Raðið
fiskflökum í eldfast mót og kryddið
með sítrónupipar og fiskikryddi.
Jólamynd af fjölskyldunni. MYND ÚR EINKASAFNI
RÉTTUR 3
Risa pönnukökur
(crepes) á laugardegi
Stundum langar okkur í
eitthvað einfalt og gott sem allir
geta borðað, þessi einfaldi
franski skyndibiti er tilvalinn
helgarmatur. Bakaðar eru
stórar pönnukökur (crepes),
fylling gerð í potti og borin fram
með. Hægt er að rúlla eða
brjóta saman kökuna með
fyllingu í. Gera má síðustu
pönnukökuna að eftirrétti með
því að setja eitthvað sætt á
borðið eins og til dæmis Nutella!
Deig:
500 g hveiti
3 msk smjör
4 egg
mjólk til að gera deigið
vatnskennt
Aðferð: Setjið hveiti í skál, blandið
mjólk út í þangað til komið er
kekkjalaust þykkt deig. Að því
loknu skal hella bræddu smjöri
saman við. Bætið við einu eggi í
einu. Notið meiri mjólk til að gera
deigið vatnskennt eða þar til
drýpur af sleifinni. Hrærið þessu
vel saman þangað til allir kögglar
hverfa og látið standa í 30 mínútur.
Síðan eru bakaðar pönnukökur á
stærstu pönnu heimilisins, notið
þau verkfæri sem hendi eru næst.
Til að fá hugmynd um hvernig
þetta er bakað er hægt að skoða
myndbandið https://goo.gl/FSRKJJ
Æfingin skapar meistarann!
Fylling:
1 pakkning brauðskinka
1 fínsaxaður laukur
1 lítil dós Ora gulrætur og
grænar baunir
gott karrí (ekki nota gamla
útrunna dótið)
grænmetissúpukraftur
smá hveiti, smjör, vatn og mjólk
Aðferð: Saxið lauk smátt og skerið
skinku í bita og steikið hvoru
tveggja í smjöri og karrí, látið malla
smá. Setjið eina matskeið af hveiti
út í og látið hitna. Vatni er bætt út í
pottinn og búin til þykk sósa. Ora
gulrætur og grænar baunir sett
saman við. Kryddið með súpukrafti
og karrí eftir smekk. Setja má smá
mjólk útí sósuna í lokin.
Verði ykkur að góðu!
Okkur langar að skora á Bjarna
Kristófer Kristjánsson á Hólum.
matreiðsluna að þessu sinni. Þau búa á Hólum og hefur Broddi
búið þar frá árinu 1998 en Christine frá 2004. Broddi er
líffræðingur að mennt en starfar sem kerfisstjóri við Háskólann
á Hólum, í frítíma sínum hefur hann m.a. stundað bjórgerð fyrir
þyrsta íbúa á Hólum. Christine er grunn- og leikskólakennari og
starfar sem deildarstjóri við leikskólann Tröllaborg á Hólum,
hennar áhugamál er meðal annars að æfa og syngja í Skagfirska
Kammerkórnum. Saman eiga þau tvö börn, Janus Æsi og Ylfu
Marie. Þau gefa okkur uppskriftir að einföldum fiskrétti,
Broddborgurum sem eru tilvaldir í föstudagsmatinn og risa
pönnukökum sem henta vel á laugardegi að þeirra sögn.
Hellið grænmetissósublöndunni
yfir fiskinn og setjið á 200°C í hálf-
tíma. Borið fram með hrísgrjónum
eða bankabyggi og fersku salati.
RÉTTUR 2
Broddborgari
á föstudegi
Aðferð: Gott er að byrja helgina
með matarmiklum hamborgara á
föstudegi. Opnið eina flösku af
góðum bjór og hafið tilbúna til að
grípa í ef hlutirnir fara ekki alveg
eftir áætlun. Einnig er nauðsynlegt
að hafa eina dós af bjór á hliðar-
línunni. Hnoðaðar eru 300 gramma
bollur úr íslensku nautahakki, fínt
er að krydda hakkið með salti og
pipar. Búin er til hola í hakkbolluna
með því að troða dósinni gætilega
inn í miðjuna, ekki fara í gegn samt.
Ef þetta tekst, þá er gott að halda
upp á lok þessa skrefs með því að
drekka innihald dósarinnar. Til að
kjötbollan lifi af steikingu þarf að
klæða hamborgarann með beikoni,
vefjið nokkrum beikonsneiðum
utan um kjötið.
Broddborgarar í bígerð. MYNDIR: GUÐMUNDUR BJÖRN EYÞÓRSSON
Háeyri 1 Sauðárkróki
Sími 455 4471
Sauðárkróki
Sími 453 5861
Eyrarvegi 20 550 Sauðárkróki Sími 455 4500 www.ks.is
14 22/2017