Feykir - 07.06.2017, Side 15
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson SVÖR VIÐ VÍSNAGÁTU: Heimir, Gestur, Reynir og Skapti.
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Feykir spyr...
Hvert er
uppáhalds
sjómannalagið
þitt?
Spurt á Facebook
UMSJÓN palli@feykir.is
„Ef lagið sem mér dettur
í hug flokkast sem
sjómannalag þá er það
Sigurður er sjómaður með
Utangarðsmönnum.“
Arnar Magnús Róbertsson
Finna skal karlmannsnafn
úr hverri línu.
Svör neðst á síðunni.
Ótrúlegt en kannski satt...
Ýmis heimilistæki eða búsáhöld sem okkur finnast bráðnauðsynleg
þróuðust á 19. öldinni og er ryksugan þar á meðal samkvæmt
Vísindavefnum. Hún er nú til á flestum heimilum og hefur í rauninni
lítið breyst í gegnum árin þó einhverjar betrumbætur hafi átt
sér stað og eflaust eiga þær eftir að tala við okkur í framtíðinni.
Ótrúlegt, en kannski satt, þá er bannað að lána nágranna sínum
ryksugu í Denver í BNA.
Tilvitnun vikunnar
Peningar tala ekki, þeir bölva. – Bob Dylan
„Ég var hugsi yfir þessu, er
meira í rokkinu. En líklega
er það Á sjó með Þorvaldi
Halldórssyni.“
Gunnsteinn Björnsson
„Að sjálfsögðu er það
Ship-O-Hoj... og svo næst
Sjómannavalsinn.
Já, gamla guggan
alveg meðetta.“
Gróa Guðmunda Haraldsdóttir
(Gógó)
„Stolt siglir fleyið mitt,
án nokkurs vafa.“
Ásdís Hrund Ármannsdóttir
Kvennaboltinn
Slógu Fylki út úr bikarnum
Stelpurnar í Tindastól gerðu
sér lítið fyrir og unnu Fylki í
16 liða úrslitum Borgunar-
bikarsins sl. föstudagskvöld
með tveimur mörkum gegn
einu.
Ragnheiður Erla Garðars-
dóttir skoraði fyrsta mark
leiksins úr víti á 27. mínútu
leiksins sem fyrrum leikmaður
Tindastóls, Jesse Shugg, fiskaði.
Ekki liðu margar sekúndur frá
því að Fylkisstúlkur fögnuðu
marki sínu að Stólarnir tóku
miðju, brunuðu upp völlinn og
Madison Cannon jafnaði metin
í 1–1 en þannig var staðan í
hálfleik.
Stólastelpur sýndu mikinn
karakter og hræddust ekki liðið
sem spilar í efstu deild
Íslandsmótsins og gerðu út um
leikinn á 57. mínútu þegar Eva
Banton kom boltanum í mark
Fylkis og þannig urðu lokatölur
leiksins.
Tap gegn Selfossi
Á mánudaginn þurftu Stóla-
stelpur svo að beygja sig í duftið
fyrir Selfossi í 1. deildinni en þá
töpuðu þær 4-1. Strax á 5.
mínútu kom fyrsta mark
gestanna þegar Erna Guðjóns-
dóttir skoraði og Magdalena
Anna Reimus jók muninn
korteri seinna í 2-0 sem voru
hálfleikstölur. Emily Key
minnkaði muninn fyrir heima-
menn en lengra komust okkar
stúlkur ekki en Selfossstúlkur
bættu við tveimur mörkum,
Kristrún Rut Antonsdóttir á
59. mínútu og Eva Lind Elías-
dóttir í uppbótartíma.
Arnar Skúli Atlason þjálfari
Stólarnir fagna eftir glæsimark Madison Cannon MYND: SKJÁSKOT AF TINDASTÓLL TV
ÍÞRÓTTAFRÉTTIR Fleiri íþróttafréttir á Feykir.isF
Stóla var ánægður með frammi-
stöðu stelpnanna í bikarleikn-
um. „Við trúðum á verkefnið og
lögðum okkur fram í 90
mínútur og uppskárum eftir
því. Í dag [mánudag]vorum við
með í 20 mínútur og það er bara
ekki nóg til að vinna fót-
boltaleiki svo einfalt er það,“
segir Arnar Skúli og bendir á að
margar í liðinu séu mjög ungar.
Hann segir að það vanti meiri
stöðuleika í liðið en það muni
koma með fleiri leikjum og
meiri æfingum. /PF
2. deild karla í knattspyrnu : Tindastóll–Magni 1–2
Lukku-Láki í liði með Magna
Það er löngu ljóst að
sanngirni og knattspyrna
fara ekki alltaf saman. Á
laugardag máttu Stólarnir
horfast í augu við þriðja
tapið í röð í 2. deildinni og
að þessu sinni var um að
ræða rán og það um
hábjartan dag en lokatölur
1–2 fyrir Grenvíkinga gegn
lánlausum Stólum.
Gestirnir, sem voru í efsta
sæti 2. deildar fyrir leikinn,
fóru þó betur af stað á meðan
heimamenn virkuðu spenntir
og áttu margar mislukkaðar
sendingar fyrsta stundar-
fjórðunginn. Það endaði líka
með því að gestirnir náðu að
refsa en það gerði Kristinn
Þór Rósbergsson sem óð upp
vinstri kantinn eftir smá-
útsölu og hann setti boltann í
fjærhornið hjá Brentton.
Stólarnir náðu að koma sér
betur inn í leikinn eftir þetta
og Kenneth Hogg jafnaði á
25. mínútu eftir fallegt spil í
gegnum vörn Magna. Fram
að hléi voru það Stólarnir
sem ógnuðu meira en leik-
urinn í jafnvægi. Staðan 1–1 í
hálfleik.
Lið Tindastóls var betri
aðilinn í síðari hálfleik og
hefði átt að komast yfir í
leiknum. Það stefndi þó allt í
að liðin skiptu stigunum á
milli sín en í uppbótartíma
varð þjálfari Tindastóls,
Stephen Walmsley, fyrir því
óláni að detta kylliflatur
þegar boltinn kom til hans í
öftustu vörn og engin hætta
á ferðum. Lukku-Láki þeirra
Magnamanna reyndist vera
Pétur Heiðar Kristjánsson
sem náði boltanum og skaut
að marki. Brentton réði ekki
við skotið og Magnar fögn-
uðu af krafti sigri sínum.
/ÓAB
22/2017 15
Vísnagáta
Halur gekk með hörpu sína.
Hann er stundum velkominn.
Bisar hann við byrði mína.
Bættu því á sóphausinn.