Feykir - 07.06.2017, Page 16
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
22
TBL
7. júní 2017 37. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Sigurpáll Árnason, fyrrum
verslunarmaður og garðyrkju-
bóndi í Lundi í Varmahlíð, fagnaði
100 ára afmæli þann 25. maí sl.
Sigurpáll fæddist og ólst upp í
Ketu í Hegranesi. Hann var einn af
fyrstu nemendum Garðyrkju-
skólans í Hveragerði þar sem hann
stundaði nám árið 1939 og var
fyrsti gaðyrkjubóndinn í Skaga-
firði. Hann byggði gróðrarstöð að
Gamla Lundi í Varmahlíð þar sem
hann ræktaði grænmeti og sumar-
blóm ásamt konu sinni, Hildi
Kristjánsdóttur. Á árunum 1958 til
1984 ráku þau hjónin verslunina
Lund sem staðsett var í samnefndu
húsi sem þau byggðu sér, rétt við
þjóðveginn sem liggur í gegnum
Varmahlíð.
Sigurpáll er við ágæta heilsu.
Hann les mikið, helst ævisögur og
viðtalsbækur. Þá hefur hann
mikinn áhuga á að spila bridge og
segist gera það eins oft og hægt er
en hann fær gjarna gamla spila-
félaga í heimsókn til sín á Hrafnistu
í Boðaþingi þar sem hann býr nú
Sigurpáll Árnason í Lundi 100 ára
Les og spilar bridge
Sigurpáll á 100 ára afmælinu. MYND: ÚR EINKASAFNI
Sláttur víða hafinn
Góð tíð á Norðurlandi
FISK Seafood óskar starfsfólki sínu,
sjómönnum öllum og aðstandendum þeirra
til hamingju með sjómannadaginn.
www.fisk.is
Til hamingju sjómenn
Háeyri 1
550 Sauðárkrókur
Sími: 455 4400
Þú færð
MÚMÍN bollana
hjá okkur!
Við óskum
sjómönnum
til hamingju með daginn
Sími 444 7000 www.arionbanki.is
Borgarmýri 1 550 Sauðárkróki Sími 453 5170
Skagfirðingabraut 6 550 Sauðárkróki
Sími 453 8888 www.velaval.is
Sími 410 4000 www.landsbankinn.is
Fótaaðgerða- og
snyrtistofan
TÁIN
NUDD og
og unir hag sínum vel. „Það er
gott að vera í Boðaþingi,“ segir
hann.
Sigurpáll starfaði í 55 ár með
Karlakórnum Heimi og var að
eigin sögn á kafi í félagsmálum
meðan hann bjó í Skagafirði.
Einnig segist hann hafa stundað
fjallaferðir töluvert og var fyrstur
til að keyra Siglufjarðarskarð á
Willys-jeppa, áður en vegurinn
var opnaður.
Hildur, kona Sigurpáls, lést
árið 2004. Þau hjónin eignuðust
fimm börn og eiga nú 42 afkom-
endur. /FE
Sláttur hófst í Viðvík í Skagafirði þann 30. maí sl. og
hefur Feyki ekki haft fregnir um það að bændur í
firðinum hafi byrjað fyrr þetta sumarið. Í samtali við
Feyki sagði Guðríður Magnúsdóttir að sprettan væri
óvenju góð og hefði sláttur hafist fyrr ef þau hjón hefðu
verið heima.
Guðríður segir að sláttur hefði einnig hafist snemma
á síðasta sumri í Viðvík eða fyrstu dagana í júní. Aldrei
hefði verið byrjað í maí líkt og nú.
Bændur í Skagafirði eru víða farnir að slá og er þar
eingöngu um kúabændur að ræða. Kindur eru enn á
túnum enda ekki leyfilegt að reka á afrétt fyrr en eftir
miðjan júní og þá geta sauðfjárbændur farið að huga
að heyskap hjá sér. /PF