Feykir - 25.04.2018, Blaðsíða 1
16
TBL
25. apríl 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–7
BLS. 10
Myndlistarsýningin Ævintýri
á gönguför í Sæluviku
Fyrsta
einkasýning
Ástu Júlíu
BLS. 8
Sæluvika Skagfirðinga hefst
á sunnudaginn
„Íslendingar þurfa
fleiri þess háttar
samkvæmi“
Ráðstefna á Hólum í tilefni
afmælis fullveldis Íslands
Auður skólans
ærinn og framtíðin
björt
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Þú hringir í síma 540 2700
Forseti Íslands, hr. Guðni Th.
Jóhannesson, heiðraði Skagfirðinga
með nærveru sinni í Síkinu á fyrsta
leik Tindastóls og KR í úrslitarimmu
Domino's deildar í körfubolta. Séra
Hjálmar Jónsson, sem nú þjónar
Skagfirðingum í fjarveru Sigríðar
Gunnarsdóttur, var fenginn til að
vera forsetanum til halds og trausts
í troðfullu húsi en heimildir herma
að um 900 miðar hafi verið seldir
og því hafi fjöldinn farið nokkuð yfir
þúsund manns með börnum,
boðsgestum og starfsfólki.
Hjálmar segir að Guðni hafi ákveðið
að mæta á leik úti á landi og fá að
upplifa og sjá með eigin augum hve
körfuboltinn skiptir miklu máli fyrir
samfélagið í Skagafirðinum. Hjálmar
segist hafa upplýst forsetann að um
25% íbúanna hafi verið samankomin í
íþróttahúsinu þá stundina. Því miður
fékk Guðni ekki að sjá hve magnaðir
Stólarnir eru því KR kom öllum á óvart
og vann leikinn.
En af hverju skyldi Hjálmar hafa verið
fenginn í verkið? „Björn Hansen [hjá
körfuknattleiksdeild Tindastóls]
hringdi í mig og spurði hvort ég væri til
í þetta. Hefur líklega talið minni hættu
á að ég æsti mig og yrði orðljótur. En
þetta var skemmtileg tilbreyting frá
Dómkirkjunni þar sem ég hef oft tekið
á móti forsetum lýðveldisins.“
Fyrir leik gæddi Guðni og fylgdar-
lið sér á pizzu en pizzuát forsetans vakti
heimsathygli fyrir einhverjum miss-
erum þegar Guðni vildi banna ananas á
þær. Ekki er Feyki kunnugt um uppá-
haldspizzuna en Hjálmar segir að synir
Guðna og vinur þeirra, sem voru með í
för, hefðu helst viljað flatböku og var
hún fengin frá Hard Wok. Hjálmar
segir að Guðni hafi laumað því að
honum að hann ætti einhvern tímann
að yrkja um þessa ananas-vitleysu.
Hjálmar var þegar búinn að því og var
vísan lesin upp í hljóðkerfi hússins.
Sagði hann sér hafa heyrst að Guðni
hafi tautað fyrir munni sér:
Laga myndi lífsins bras
og létta hverja neyð
ef ég fengi ananas
ofan á mína sneið.
Hjálmar var ánægður með forsetann og
segir það gaman hvað hann tikki með
fólkinu í landinu og sé forseti fólksins.
/PF
Hr. Guðni Th. Jóhannesson heiðraði körfuboltann í Skagafirði
Forsetinn mætti á leik í Síkinu
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, varð vitni að samheldni og stórkostlegum áhuga Skagfirðinga á körfuboltanum er hann mætti í Síkið sl. föstudag.
Ef vel er að gáð sést Guðni með röndótt bindi við Tindastólsfánann lengst til vinstri á myndinni. MYND: HJALTI ÁRNA