Feykir - 25.04.2018, Blaðsíða 7
á eftir fyrirlestri séra Lárusar,
er var um þegnskylduvinnuna.
Átti hún ágæta formælendur, svo
sem Jónas lækni, séra Hálfdan,
sýslumann, Pétur á Hraunum,
Sigurgeir Daníelsson og fleiri.
Meðal andmælendanna voru
þeir Pétur Sighvatsson, Sigurður á
Veðramóti, séra Arnór í Hvammi
og Margeir á Ögmundarstöðum.
Af 17 ræðumönnum, voru 10
með en 7 móti og töluðu margir
oft.“
Í fjórða lagi verða náin kynni
héraðsbúa, er þeir hafa svo
langa dvöl saman á mörgum
samkomum og skemmtunum
og þess á milli margvíslega
samfundi á gistingastöðum.
Þar hreyfa einstakir menn
áhugamálum sínum og þar getur
orðið undirbúinn framgangur
nauðsynjamála héraðsins.
Gildi stórra samkvæma
liggur oftast að miklu í
kynningu fólksins, jafnvel þótt
fátt gerist þar annað, en að
fundum manna beri saman.
Alþingi Íslendinga til forna
var slík menningarstofnun
vegna samfunda höfðingja og
almennings víðsvegar að af
landinu. „--auðigur þóttumk, er
ek annan fann, maðr es manns
gaman“. - Mál skýrast best, hugur
skilst gerst og samúð getur vaxið
upp á milli fjarstaddra manna,
þegar rætt er orði til orðs og
undir fjögur augu. Við slík
náin kynni falla niður margir
fordómar og andúð hjaðnar, en
skilningur og velvild glæðist,
þar sem áður var deyfð, kuldi
eða þverúð ókunnleikans.
Íslendingar þurfa fleiri
þess háttar samkvæmi. Þeir
þurfa fjölmennar samkomur
og langvarandi námskeið,
sýningar, héraðshátíðir og
sæluvikur að hætti Skagfirðinga.
Við þurfum meiri samkynni,
meiri hugblöndun og meiri
samræður um málefni þjóð-
arinnar. Dagur hefir hér
vakið máls um „Sæluviku
Skagfirðinga“, af því að hann
telur hana harla merkilegan og
eftirbreytnisverðan héraðshátt.
Önnur héruð landsins eiga að
taka hann upp. Hvenær sem
héruðin eignast góða menn,
myndu slík almenn mót verða
eins og opin leið að hugum
fólksins. Þau mót hlytu að verða
að menningarstofnun í hverju
héraði.
„Sæluvika“ er vel valið heiti.
Allmjög þykir mönnum bresta
á sælu í lífinu. Heldur þykir lífið
í íslenskum sveitum daprast.
Mestu skiptir jafnan að vel
sé hagnýtt það, sem von er á.
Mannfundir geta átt mikinn
þátt í að auka birtu í lífinu og
svipta af hugum manna viðjum
vana og hversdagsdeyfðar.
Minningar frá þvílíkum
leiðamótum almennings geta
orðið sterkar, örvandi og
sælar. Nafnval Skagfirðinga
er ekki út i hött. Að baki þess
liggja merkileg lífssannindi.
Öll héruð landsins þurfa að
eignast slíkar „Sæluvikur“ á
vetrum og „sæludaga“ á vorin
á héraðsmótum undir berum
himni.
(Dagur.)
Þrátt fyrir að nærri öld sé
síðan meðfylgjandi grein var
rituð er hægt að sjá að ýmislegt
þar samsvarar til Sæluviku
nútímans. Sannleikskornið
úr Hávamálum á enn við því
sannleikurinn er sá að maður er
manns gaman.
Í ár er boðið upp fjölbreytta
dagskrá í Sæluviku en setning
hennar fer fram í Safnahúsi
Skagfirðinga nk. sunnudag, 29.
apríl. Vikan hefur iðulega teygt
sig í sitt í hvora áttina því ýmis
atriði hafa verið sett á í vikunni
fyrir setningu sem og í vikunni
á eftir.
Leikhópur Leikfélags Sauðárkróks. Frá vinstri: Inga Dóra Ingimarsdóttir, Ingrid Jónsdóttir leikstjóri, Thelma Björk Gunnarsdóttir,
Haukur Skúlason. Guðbrandur J. Guðbrandsson, Elva Björk Guðmundsdóttir og Saga Sjöfn Ragnarsdóttir. MYND: PF
Meðal efnis sem nú verður boðið upp á
í Sæluviku er:
• Ljósmyndasýning Gunnhildar Gísla-
dóttur, Tíma-mót, í Safnahúsinu en þar
mælir hún sér mót við starfsbræður sína
frá fyrri tíð.
• Myndlistarsýningin Litbrigði Samfélags í
Gúttó. Sýningin er samsýning listamanna
í Skagafirði sem eru í Myndlistarfélaginu
Sólon og er nú haldin 10. árið í röð í
Sæluviku.
• Einar Kárason, rithöf-
undur og sögumaður
segir Grettissögu í
Kakalaskálanum.
• Leikfélag Sauðárkróks
sýnir gamanleikinn
Einn koss enn og ég segi
ekki orð við Jónatan.
• S t r e n g j a t ó n l e i k a r
Tónadans fara fram í
Félagsheimilinu Ljós-
heimum en þar eru á
ferðinni ungir strengja-
leikarar með vortón-
leika sína.
• Ísmaðurinn 2018 verður haldinn á
skíðasvæðinu í Tindastóli sem er ögrandi
áskorun fyrir hressa fjallagarpa.
• Börn fyrir börn – Dans og tónlistarveisla
fyrir allan aldur í Félagsheimilinu
Ljósheimum.
• Brottflutti Króksarinn, Ásta Júlía
Hreinsdóttir sýnir olíumálverk í neðri
sal KK Restaurant. Sýninguna kallar hún
Ævintýri á gönguför.
• Tónleikar með Óskari Péturssyni í
Miðgarði sem verður þó ekki einn á ferð
því bræður hans frá Álftagerði og Diddú
mæta með honum.
• Grænumýrarfjör verður á sínum stað en
þá er öllum velkomið að líta í fjárhúsin
í Grænumýri og skoða kiðlinga og lömb
og aldrei að vita nema heimasæturnar
taki lagið.
• Kirkjukvöld í Sauðárkrókskirkju hefur
skapað sér fastan sess á mánudegi í
Sæluviku. Að þessu sinni verður Guðni
Ágústsson ræðumaður kvöldsins.
• Kvæðamannafélagið Gná fær til sín
góða gesti í Melsgili kl. 20. Ragnheiður
Ólafsdóttir kynnir og kveður.
• Þann 1. maí verður hátíðarsamkoma
stéttarfélaganna í húsakynnum Fjöl-
brautaskóla Norðurlands vestra.
• Vortónleikar Tónlistarskóla Skagafjarðar
verða haldnir víða í héraðinu.
• Eftir rúmlega þriggja ára vinnu við
gerð Faldbúninga og fleiri þjóðbún-
inga er komið að uppskeru og mun
útskriftarathöfn verða haldin í
Hóladómkirkju kl. 17:00.
Athöfnin er öllum opin
og eru gestir hvattir til að
mæta í þjóðbúningum. Eftir
útskrift býður félagsskapurinn
Pilsaþytur upp á kaffi og með
því í Auðunarstofu.
• Í lok vikunnar er svo
atvinnulífssýning í Íþróttahús-
inu á Sauðárkróki. Henni er
ætlað að varpa ljósi á þann
fjölbreytileika sem er í þjón-
ustu, mannlífi og menningu
í Skagafirði. Þá verða haldnar
málstofur um fjölbreytt
málefni við sama tilefni.
• Segja má að Karlakórinn Heimir slái svo
botninn í Sæluvikuna með afmælishátíð
í Menningarhúsinu Miðgarði laugardag-
inn 5. maí en Heimir varð 90 ára þann
28. desember sl.
• Ljóst er að af nógu er að taka. Eins
og áður segir verður Sæluvikan sett
næsta sunnudag en þar verður flutt
ávarp, afhending Samfélagsverðlauna
Skagafjarðar 2018, tónlistaratriði og
úrslit í Vísnakeppni kynnt.
• Ef allt fer að óskum verður mikil gleði
í sveitarfélaginu, annað hvort næsta
laugardag eða þriðjudaginn 1. maí,
en eins og varla hefur farið fram hjá
nokkrum manni leikur Tindastóll til
úrslita í Domino´s deildinni í körfubolta
gegn ríkjandi Íslandsmeisturum KR.
Vonandi verður bikarnum lyft upp af okkar
mönnum og Sæluvikunnar 2018 minnst um
ókomin ár sem vikunnar þegar Tindastóll
varð Íslandsmeistari.
Gleðilega hátíð!
Sæluvika Skagfirðinga hefst næsta sunnudag
Viðburðir í Sæluviku 2018
Séu ísalög á héraðinu og veður góð, getur orðið svipmikil för fólksins
í löngum sleðalestum eða á góðhestum Skagafjarðar. Þá gerist mikil
glaðværð í héraði og hugarhrif fólksins.
16/2018 7