Feykir - 25.04.2018, Page 10
Sæluvika 2018 : Ævintýri á gönguför
Fyrsta einkasýning Ástu Júlíu
Í neðri sal KK Restaurant
opnar brottflutti Króksarinn
Ásta Júlía Hreinsdóttir
myndlistasýningu sem hún
kallar Ævintýri á gönguför.
Myndirnar eru ýmist úr
hugarheimi hennar eða
málaðar eftir ljósmyndum
sem hún hefur tekið á
ferðum sínum um landið.
Feykir hafði samband við
Ástu Júlíu og spurði hana
út í sýninguna.
Þetta er fyrsta einkasýning
Ástu Júlíu en áður hefur hún
tekið þátt í samsýningum, m.a.
nemendasýningum og sýningu
Arionbanka í strætóskýlum í
Reykjavík. Hún segir aðspurð
um tilurð sýningarinnar að
Selma Hjörvarsdóttir, eigandi Ásta Júlía við eina mynda sinna. MYND Í EINKAEIGN
KK Restaurants, hafi í fyrra-
sumar boðið henni að halda
sýningu á veitingastaðnum.
„Ég var ekki alveg viss og
þurfti aðeins að hugsa mig um,
Síðla vetrar ákvað ég svo að
taka skrefið og hafði samband
við Selmu og við ákváðum
sýningartíma.“
Ásta Júlía segist hafa byrjað
að mála með olíu í Mynd-
listaskólanum á Akureyri en
eftir það voru litirnir að mestu
ónotaðir í um það bil tíu ár.
„Þegar ég svo tók þá fram að
nýju var ekki aftur snúið,“
segir hún.
Ásta Júlía er fædd og
uppalin á Króknum og segir
hún að sem barn og unglingur
hafi hún alltaf verið með
blýant og liti á lofti. Hún sótti
hin ýmsu námskeið í Mynd-
listaskólanum á Akureyri á
árunum 1980-83, m.a hjá
Helga Vilberg og Guðmundi
Ármanni Sigurjónssyni en
einnig hefur hún sótt ýmis
námskeið í myndsköpun í
gegnum árin og á árunum
2006 og 2007 stundaði hún
nám í myndmenntakennara-
deild KÍ, m.a. hjá Ásrúnu
Tryggvadóttur og Jóni Reyk-
dal. Undanfarin ár hefur hún
stundað nám við Myndlista-
skóla Kópavogs, m.a. hjá Svan-
borgu Magnúsdóttur, Birgi
Rafni Friðrikssyni og Söru
Vilberg.
Myndirnar eru allar olía á
striga og ýmist málaðar eftir
humyndum úr kolli Ástu Júlíu
eða eftir ljósmyndum sem hún
hefur tekið á ferðum sínum
um landið með tveimur
undantekningum en tvær
myndir eru málaðar eftir
ljósmyndum Aðalsteins Guð-
mundssonar.
UMFJÖLLUN
Páll Friðriksson
Kvenfrumkvöðlar hittast á Sauðárkróki
Vel sótt ráðstefna og
fjölbreytt dagskrá
Ráðstefna undir yfirskriftinni
Efling kvenfrumkvöðla á
landsbyggðinni var haldin í
Fjölbrautaskóla Norðurlands
vestra á Sauðárkróki 18. apríl
sl. Var þar um að ræða
endapunkt Evrópuverkefnis
sem ber heitið FREE (Female
Rural Enterprise Empower-
ment) og hafði það að
markmiði að styðja við bakið
á frumkvöðlakonum á lands-
byggðinni. Verkefnið var
samstarfsverefni sex aðila frá
fimm löndum. Ásdís Guð-
mundsdóttir hjá Vinnumála-
stofnun stýrði verkefninu en
Byggðastofnun var samstarfs-
aðili á Íslandi. Um 60 manns
sátu ráðstefnuna.
Í upphafi ráðstefnunnar kynntu
nokkrar konur á Norðurlandi
vestra þau fyrirtæki eða
verkefni sem þær eru í forsvari
fyrir og kenndi þar ýmissa
grasa, allt frá brúðuleikhúsi til
bætiefnaframleiðslu. Að lok-
inni kynningu á verkefninu var
þátttakendum boðið að velja
milli þriggja örvinnustofa þar
sem viðfangsefnin voru stefnu-
mótun, markaðssetning á net-
inu og hönnunarhugsun í
fyrirtækjarekstri. Ráðstefn-
unni lauk svo með því að
fjölmiðlakonan Sirrý Arnar-
dóttir flutti stórskemmtilegan
og lærdómsríkan fyrirlestur
þar sem inntakið var að brýna
konur til að koma fram af
sjálföryggi og láta ljós sitt skína.
Frá einni örvinnustofunni. MYND: FE
Ein þeirra sem erindi fluttu á
ráðstefnunni var Lilja Gunn-
laugsdóttir, eigandi Skraut-
mens, og sagði hún frá tengsla-
neti fyrir frumkvöðlakonur á
Norðurlandi vestra sem var
hluti FREE verkefnisins. Feykir
bað Lilju að segja lesendum
örlíðið frá verkefninu.
Lilja segir að í stuttu máli
sagt hafi markmið FREE verk-
efnisins verið að efla frum-
kvöðlakonur á landsbyggðinni
með fræðslu og hvatningu.
Fræðslan felst meðal annars í
námsefni á netinu sem nær yfir
flest alla þá þætti sem þarf að
hafa í huga þegar verið er að
reka fyrirtæki. Námsefnið er
frítt og aðgengilegt á íslensku
á heimasíðunni www.
ruralwomeninbusiness .eu.
Einnig voru haldnir netfundir á
Skype þar sem konur hittust í
svokölluðum hæfnihringjum
og fengu þar tækifæri til að
ræða saman um verkefni og
vandamál sem þær stóðu
frammi fyrir og tengdust þeirra
fyrirtækjarekstri. „Þetta var
frábær vettvangur til að
kynnast öðrum konum í
svipuðum sporum. Ég veit til
þess að SSNV hefur lýst áhuga á
því að halda áfram að halda
utan um þessa hæfnihringi
núna þegar FREE verkefninu er
formlega lokið,“ segir Lilja.
„Þriðji parturinn af verk-
efninu og sá sem ég kom hvað
mest að er tengslanet á svæðinu.
Það voru stofnuð þrjú
tengslanet, á Vestfjörðum,
Austurlandi og Norðurlandi
vestra en það er netið sem ég
var þátttakandi í. Tengslanet
snýst aðallega um það að
hittast, kynnast öðru fólki þar
sem maður getur leitað sér
aðstoðar þegar þörf er á og
verið til staðar þegar maður
hefur tök á. Fundirnir sem við
héldum voru mjög lifandi og
skemmtilegir þar sem við
kynntumst, fórum yfir hvaða
verkefni hver og ein er að kljást
við en við erum á mjög
mismunandi stað hvað það
varðar, allt frá því að bera
hugmynd í maganum yfir í að
vera búnar að reka fyrirtæki í
nokkur ár. Það frábæra er að
við höfum allar eitthvað fram
að færa, með mismunandi
reynslu og hugmyndir.“
Lilja segir verkefnið hafa
gefið sér mikið, hún sé
sjálfsöruggari, eigi auðveldara
með að leita til fólks og það
besta sé að hún hafi kynnst
mörgu fólki sem hún hefði
kannski ekki annars gert. „Því
vonast ég eftir því að við náum
að halda tengslanetinu á
svæðinu lifandi því ég trúi því
að gott tengslanet styrki og
hvetji fólk til dáða. Allar þær
sem hafa áhuga á að vera með í
tengslanetinu geta annað hvort
fundið Facebook-grúbbuna
okkar, Frumkvöðlakonur á
landsbyggðinni, Norðurland
vestra, eða sent mér línu á
liljag83@gmail.com.“
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
Lilja Gunnlaugsdóttir eigandi Skrautmens. Hún framleiðir m.a. óróa og selur í umbúðum
sem hún hannar úr gömlum Feyki. MYND: FE
10 16/2018