Feykir - 18.07.2018, Blaðsíða 8
Bjarmanes var byggt árið 1912
og hefur í gegnum tíðina gegnt
margvíslegu hlutverki, m.a.
sem samkomuhús, skóli og
lögreglustöð. Húsið stendur
rétt við fjöruborðið og þaðan
er einstakt útsýni til allra átta.
Blaðamaður renndi við á
Skagaströnd á dögunum og
spjallaði við hjónin Liyu Yirga
Behaga sem er frá Eþíópíu og
Skagstrendinginn Guðjón Ebba
Guðjónsson.
Liya og Ebbi tóku við rekstri
veitingasölunnar í Bjarmanesi
fyrir rúmu ári síðan en þá
hafði sveitarfélagið auglýst
reksturinn á Bjarmanesi,
Félagsheimilinu Fellsborg og
tjaldsvæðinu á Skagaströnd til
leigu í einum pakka. Áður var
Bjarmanes rekið sem kaffihús
en nú er þar boðið upp á
venjulegan heimilismat, súpu
og rétt dagsins, alla virka daga
og auk þess er hægt að gæða sér
á kaffi og kökum. Í Bjarmanesi
er opið frá klukkan 11:30-18:00
alla virka daga og um helgar
milli klukkan 14 og 18. Á
laugardagskvöldum er svo opið
frá klukkan 11-01 og lengur ef
stemningin býður upp á það.
Fjölbreyttur
matseðill í Fellsborg
Fellsborg er félagsheimili
Skagstrendinga. Þar hafa
þau hjón rekið matsölustað í
UMFJÖLLUN
Fríða Eyjólfsdóttir
Ferðamenn sem leið eiga um Norðurland láta það gjarnan
ógert að líta við á Skagaströnd. Það er þó ekki langur krókur,
hvort sem um er að ræða vegalengdina frá þjóðvegi 1 á
Blönduósi eða spottann frá afleggjaranum á Þverárfjalls-
veginum sem er ekki nema u.þ.b. 13 kílómetrar. Skagaströnd
er lítill en fallegur bær sem hefur upp á ýmislegt að bjóða
fyrir ferðamenn. Þar er meðal annars rekin veitingasala í litlu
og afskaplega fallegu gömlu húsi sem ber nafnið Bjarmanes.
Litið við hjá ferðaþjónustuaðilum:
Bjarmanes
Krúttlegt veitingahús
á sjávarbakkanum
bæjarbúum. Ebbi segir að í
vetur hafi verið algengt að um
20-25% af íbúum staðarins
borðaði hjá þeim hádegismat.
Auk þessara tveggja staða
reka þau Liya og Ebbi tjald-
svæðið sem er staðsett efst í
þorpinu. Þar er öll aðstaða til
fyrirmyndar í þjónustuhúsi
með salernisaðstöðu, sturtum
og þvottaaðstöðu. Tjaldsvæðið
er opið frá 15. maí til 15. sept.
Þau hjón segjast vera
ánægð með hvernig til hefur
tekist með reksturinn hjá
þeim og hafa bæjarbúar tekið
öllu því sem þau hafa bryddað
upp á mjög vel. Þau hafa
tekið að sér ýmsar veislur, s.s.
erfidrykkjur, fermingarveislur
og afmæli og í vetur buðu
þau upp á ýmsar nýjungar
auk fastra liða í starfsemi
félagsheimilisins. Má þar
nefna súshi-kvöld, konukvöld,
spila- og handavinnukvöld í
Bjarmanesi og að sjálfsögðu
eþíópískt kvöld en eins og
fyrr segir er Liya frá Eþíópíu.
Það hljómar óneitanlega
sem spennandi kostur fyrir
litla hópa að taka sig til og
fara á eþíópískt kvöld til
Skagastrandar en að sögn Liyu
og Ebba er maturinn í Eþíópíu
á allan hátt frábrugðinn
því sem Íslendingar eiga að
venjast, t.d. er hann borinn
fram á súrdeigspönnukökum
og snæddur án þess að notuð
séu hnífapör.
Ebbi og Liya segjast vera
bjartsýn á framhaldið og
ætla að halda ótrauð áfram
að byggja starfsemina upp
en hvernig hlutirnir þróist
verði að taka mið af því hver
eftirspurnin verði.
Félagsheimili Skagstrendinga, Fellsborg, sem Liya og Ebbi annast rekstur á.
Ebbi og Liya á Bjarmanesi.
MYNDIR: FE
sumar þar sem boðið er upp
á ýmsa rétti á matseðli, s.s.
pítsur, hamborgara, samlokur,
steikur og fiskrétti. Þau segjast
ekki bjóða upp á marga rétti
í hverjum flokki en reyni að
vera með eitthvað sem hentar
öllum. Matseldin er í höndum
Liyu en Ebbi segist vera ágætis
uppvaskari. Í Fellsborg er opið
frá klukkan 18-22 alla daga yfir
sumarið. Á veturna reka þau
mötuneyti fyrir grunnskólann í
Fellsborg, auk þess að elda fyrir
leikskólann, en opið er fyrir
almenning í Bjarmanesi og er
veitingastaðurinn vel sóttur af
Veitingahúsið Bjarmanes stendur aðeins örfá skref frá fjöruborði Húnaflóans.
Eldur í Húnaþingi
Ásgeir lokar
Eldi í Húnaþingi
Listahátíðin Eldur í Húnaþingi
fram fer dagana 25. – 29. júlí
nk. Feykir hafði samband
við Gretu Clough, en hún
er listrænn stjórnandi
hátíðarinnar og með henni
starfar fjöldi sjálfboðaliða
á öllum aldri. „Markmið
hátíðarinnar er að fagna þessu
frábæra samfélagi með öllu
sem það þýðir fyrir íbúana,
hér í Húnaþingi vestra –
samfélagi sem fer stækkandi
og fjölbreytnin eykst. Ég
hef reynt að koma því til
skila í gegnum dagskrána hjá
okkur, að horfa til upphafs
hátíðarinnar sem hófst sem
unglista – og menningarhátíð,“
segir Greta.
,,Þetta skapar góða blöndu
af hugmyndum og brennandi
áhuga,“ segir Greta. ,,Við
höfum reynt að finna leiðir til
þess að fjölga viðburðum fyrir
mismunandi aldurshópa t.d.
viðburði eingöngu fyrir börn
og svo verða einnig lokaðir
tónleikar á heilbrigðisstofnun-
inni fyrir þá sem ekki eiga
heimangengt á hátíðina. Við
fengum einnig til liðs við okkur
unglinganna en þeir hafa
skipulagt sinn eigin viðburð –
leynilegt unglinga „rave“.
Fylgjast þarf með á Facebook-
síðu Elds í Húnaþingi eða á
Snapchat til að vita hvar
viðburðurinn fer fram og hver
mun spila. Ég er mjög spennt
fyrir þessari hljómsveit. Þetta
verður frábær viðburður. Unga
fólkið hefur staðið sig mjög
vel,“ segir Greta.
Vegleg dagskrá
Dagskráin er mjög vegleg en
m.a. koma fram Moses High-
tower, Paparnir, Ylja, og hinir
margverðlaunuðu búksláttar-
menn Body Rhythm Factory
ásamt leikverkinu Tatter-
damalion – báðir þessir erlendu
atburðir eru fjölskylduvænir.
Hinn árvissi atburður þar sem
heimamenn koma fram, Mello
Musika, er á sínum stað á
fimmtudagskvöldi. Sverrir
Bergmann og Halldór Gunnar
spila í Borgarvirki á föstu-
dagskvöldi. Sápurennibraut,
brunaslöngufótbolti, og fjöl-
skyldudagurinn eru líka í boði í
ár. Ásgeir Trausti lokar svo
hátíðinni með tónleikum í
Ásbyrgi á Laugabakka á
sunnudagskvöldinu. /LAM
Skagafjörður
Listaflóð á Vígaslóð
Sýningu á handverki Ásbjargar
frá Kúskerpi, sem sett var upp
um síðustu helgi í Kakalaskála
á Kringlumýri í Skagafirði í
tilefni menningarhátíðarinnar
Listaflóð á vígaslóð, verður
framhaldið um næstu helgi.
Ásbjörg Elsa Jóhannsdóttir
er fædd á Sauðárkróki en ólst
upp á Kúskerpi í Blönduhlíð.
Fyrir 24 árum varð Ásbjörg
fyrir áfalli og hafði lengi vel
aðeins mátt í hægri hendi en lét
ekki deigan síga þrátt fyrir það.
Tók þá kortagerðin við,
málning og fleira. Sýningin í
Kakalaskála ber handverki
listakonunnar fagurt vitni og er
vert að hvetja sem flesta til að
gera sér ferð og skoða fjöl-
breytta og listilega vel gerða
hluti.
Hægt er að fylgjast með
atburðum menningarhátíðar-
innar á Facebooksíðunni
Listaflóð á vígaslóð. /PF
8 28/2018
Smellt'á okkur einum...
Feykir.is