Feykir - 26.09.2018, Qupperneq 1
36
TBL
26. september 2018
38. árgangur : Stofnað 1981
Frétta- og dægurmálablað
á Norðurlandi vestra
BLS. 6–8
BLS. 10
Hólmfríður Dóra
Sigurðardóttir er með
ýmislegt á prjónunum
Málaralistin
heillar alltaf
BLS. 9
Árna Gunnarssyni fellur
sjaldnast verk úr hendi
Menning, tunga og
tímagöng til 1918
Inga Birna Friðjónsdóttir svarar
Tón-lystinni að þessu sinni
Elska þungan bassa
og gott beat með
óvæntum twistum
Við þjónustum bílinn þinn!
Hesteyri 2 Sauðárkróki Sími 455 4570
Verkstæðið okkar annast viðgerðir fyrir einstaklinga
og fyrirtæki. Menntaðir og hæfir tölvuviðgerða-
menn með áralanga reynslu.
Nýttu þér
netverslun
Skoðaðu vöruúrvalið
á lya.is
Á fundi byggðarráðs Húnaþings
vestra sem haldinn var á mánudag
var samþykkt bókun þar sem
ákvörðun VÍS um að loka útibúi
fyrirtækisins á Hvammstanga var
harðlega mótmælt. Í bókuninni
segir að aðgerðir sem þessar bitni
verulega á íbúum landsbyggðar-
innar sem sífellt þurfi að sækja
þjónustu um lengri veg en engin
þjónusta frá VÍS verði aðgengileg
á atvinnusvæði íbúa Húnaþings
vestra eftir lokun útibúsins.
Ennfremur segir: „Ljósleiðaravæðingu
landsins er meðal annars ætlað að gera
fólki kleift að stunda vinnu sína hvar á
landi sem er. Þrátt fyrir þessa mikilvægu
tæknibyltingu virðist gæta þess misskiln-
ings hjá stjórnendum stórfyrirtækja að
hennar helsta hlutverk sé að safna sem
flestu starfsfólki undir sama þak og þá
helst á dýrasta stað í höfuðborg landsins,
frekar en að gera fólki allstaðar að af
landinu kleift að sinna viðkomandi
störfum. Erfitt er að sjá að þessi þróun sé
viðskiptavinum í vil, enda hefur hvergi
komið fram að þessi þróun verði til að
lækka iðgjöld þeirra. Byggðarráð hvetur
stjórn VÍS til að endurskoða þessa
ákvörðun með það að markmiði að
viðhalda góðri þjónustu við landsbyggð-
irnar.“
Er sveitarstjóra Húnaþings vestra falið
að segja upp samningum við VÍS fyrir 1.
júlí 2019 og jafnframt að leita tilboða í
tryggingar hjá þeim tryggingarfélögum
sem treysta sér til að þjónusta samfélagið
með viðunandi hætti.
Í Viðskiptablaðinu á mánudaginn
kemur fram að Landsamband íslenskra
verzlunarmanna harmar ákvörðun Vá-
tryggingafélags Íslands um að loka átta
þjónustuskrifstofum sínum á lands-
byggðinni og gerir athugasemdir við að
þessar aðgerðir fyrirtækisins skuli fyrst
og fremst bitna á landsbyggðinni eins
og segir í yfirlýsingu frá sambandinu.
Félagið gerir því kröfu um að þessi
ákvörðun verði endurskoðuð, því annars
megi gera ráð fyrir að margir muni leita
annað með viðskipti sín. /FE
Húnaþing vestra
Byggðarráð mótmælir lokun
á þjónustuskrifstofu VÍS
Óvenju margir borgarísjakar í ár
Höll í hafi
Holræsa- og stífluþjónusta
Bjóðum alhliða lagnahreinsun
og lagnamyndun
Leitið nánari upplýsinga í síma 452 2958.
Sími 452 2958 | Oddagata 18 | 545 Skagaströnd | gamar.is | vilhelm@gamar.is
Þessi glæsilegi ísjaki hefur fangað auga þeirra sem átt hafa leið um Fljótin
undanfarna daga en hann hefur dólað í um vikutíma utan við Reykjarhól á
Bökkum. Halldór á Molastöðum tók þessa mynd á drónann sinn um helgina en
þá var jakinn staddur út af Miklavatni og er bærinn Slétta hér í forgrunni. Jakinn,
sej nú mun vera kominn langt á haf út, er einn margra borgarísjaka sem sést
hafa undan Norðurlandinu í allt sumar, mest þó á Húnaflóa. Haraldur Eiríksson,
veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, segir nýlega í samtali við Mbl.is að vænta
megi borgarísjaka á þessum árstíma en líklega megi þó segja að þeir séu óvenju
margir í ár. MYND: HALLDÓR GUNNAR HÁLFDANSSON.
Hér er laust pláss!
Hafðu samband í síma 455 7171
og tryggðu þér frábæran stað
til að minna á þig eða fyrirtækið þitt
– Feykir er sprækur sem lækur!