Feykir - 05.12.2018, Síða 9
Kremið:
260 g vegan smjörlíki (t.d.
Earth Balance), kalt
150 g malaður hrásykur
½ tsk instant kaffiduft
25 g kakóduft
AÐFERÐ: Malið hrásykurinn fínt
í matvinnsluvél/blandara/krydd-
kvörn til að fá svipaða áferð og
flórsykur. Gott að skella instant
kaffiduftinu með í lokin, þá malast
það fínna í leiðinni.
Best er að taka vegan smjörið
beint úr kælinum og skera í bita.
Setjið kalt smjör, malaðan sykur og
kaffiduft og kakóduft í hrærivél og
þeytið með þeytara. (Hægt að nota
matvinnsluvél ef þið eigið ekki
hrærivél).
Setjið kremið í ílát og geymið
í kæli eða frysti. (Gott að setja í
frystinn svo það kólni hratt ef þið
ætlið að útbúa sörurnar strax).
Botninn:
2 b möndlumjöl
½ b hlynsíróp
2 msk brúnt möndlusmjör frá
Himneskt
½ tsk vanilla
smá sjávarsalt
AÐFERÐ: Hrærið allt hráefnið
saman í hrærivél með hrærispaða
þar til allt hefur blandast saman,
í u.þ.b. 2-3 mínútur. Gott að rúlla
deigið í pulsur og skera svo pass-
lega bita til að setja á ofnplötu. Gott
er að hafa botnana frekar þunna.
Bakið botnana í forhituðum
ofni við 180°C í u.þ.b. 6 mínútur.
Í rauninni er aðallega verið að
„loka“ deiginu með bakstrinum,
við viljum ekki baka botnana of
lengi svo þeir verði ekki stökkir.
Fylgist vel með til að ofbaka ekki,
botnarnir eiga ekki að brúnast.
Leyfið botnunum að kólna á
kæligrind og setjið svo í viskastykki
og inn í kæli til að þeir séu kaldir
þegar kalt kremið er sett á og
kökurnar hjúpaðar í súkkulaði.
Hjúpurinn:
300 g dökkt súkkulaði, lífrænt.
AÐFERÐ: Nú eru botnarnir að
kólna í kælinum og kremið orðið
kalt. Snjallt að setja tóman disk inn
í kæli til að raða kökunum á á eftir.
Brjótið u.þ.b. ¾ af súkkulaðinu
niður í bita og bræðið í skál yfir
vatnsbaði. Saxið restina smátt og
geymið aðeins. Þegar súkkulaðið í
skálinni er bráðnað, takið skálina
úr vatnsbaðinu og hrærið saxaða
súkkulaðinu út í. Hrærið nú vel
í með gaffli svo það komi smá
loft í súkkulaðið á meðan það
er að kólna smá, það hjálpar
súkkulaðinu að temprast aðeins og
gefur fallegri gljáa á hjúpinn. Nú er
súkkulaðið tilbúið.
Smyrjið nú köldu kremi með
teskeið á kalda botnana og dýfið
toppnum ofan í súkkulaðið. Raðið
kökunum á disk (gott að hafa
diskinn kaldan) og setjið í kæli til
að stífna.
Kökurnar geymast best í kæli
og eru fullkomnar að njóta beint úr
kælinum. Eða frysti ef á að geyma
þær lengi (okkar hurfu mjög hratt
svo það reyndist óþarft). /PF
Vegan Sörur
Veganjól, valkostur grænkera
Í jólablaði Feykis voru uppskriftir
frá Sollu og Hildi sem halda úti
matarbloggi á www.himneskt.
is og Mæðgurnar á Facebook.
Áhersla er lögð á lífrænt ræktað
hráefni og vegan matargerð. Vegna
plássleysis komst Söruuppskriftin
ekki í jólablaðið og birtist því í þessu
blaði. Njótið vel!
Vegan Sörur
Ég hef ákveðið að
troða mér inn í
áskorendapennann sem
brottfluttur Blönduósingur
og Húnvetningur sem á
einnig rætur til Hofsós.
Með þessu bréfakorni
langar mig að senda
nokkurs konar sendibréf
til heimahaga minna á
Norðvesturhorni landsins.
Það eru vissulega
áskoranir sem mæta
minni gömlu heimabyggð
á Blönduósi og einnig
byggðinni þar sem ég
dvaldi oft sumarlangt
sem barn, Hófsósi.
Atvinnulífið á Blönduósi
hefur verið í vörn um
áraraðir og fólki fækkað
jafnvel þótt gamli
Engihlíðahreppur hafi
sameinast Blönduósbæ
fyrir nokkru síðan. Í fyrsta
skipti í langan tíma eru
nú afar jákvæðar fréttir
að ,,heiman“. Mikil
uppbygging hefur átt sér
stað, m.a. með tilkomu
yfirstandandi bygginga
á gagnaverum og þá
eru hafnar nýbyggingar
á íbúðarhúsnæði og
fleiri væntanlegar í fyrsta
sinn í áratugi a.m.k.
að einhverju marki. Þá
eru fyrirtæki í sókn á
svæðinu t.d. Vilko og
ferðaþjónustan er á
uppleið. Heimamenn
eru fullir bjartsýni og
sjálfstrausts og er það
vel.
Það gleður hjarta
brottflutts heimamanns
að heyra góðar fréttir
af svæðinu. Hamra ber
járnið þá heitt er. Það
er jákvætt að gagnaver
komi á svæðið en
gagnaver eru hverful
gæði og alls óvíst um
líftíma þeirra. Gagnaver
er góð byrjun en það þarf
mun meiri fjölbreytni í
atvinnulífið á Blönduósi
og nágrenni og helst
þarf að fjölga störfum
háskólamenntaðra, og
stuðla að nýsköpun,
m.a. í ferðaþjónustu.
Þá hefur frumvinnsla
verið héraðinu mikilvæg
um áraraðir, ekki
síst á Skagaströnd
og hana þarf að efla
á svæðinu. Héraðið
Austur-Húnavatnssýsla
er því miður, og eftir
sem áður, í nokkurri
vörn. Það er von mín og
trú að forsvarsmönnum
sveitarfélaga á
svæðinu beri gæfa
til að sameinast í eitt
sveitarfélag sem verði
sterk eining til hagsbóta
fyrir héraðið allt og íbúa
þess. Héraðið hefur
gríðarlega möguleika til
sóknar en forsenda þess
er að mínu mati meiri
samheldni og samvinna
allra í staðinn fyrir fjórar
litlar og veikbyggðari
einingar. Sameinað
hérað hefur vissulega
sterkari rödd út á við
sem er forsenda sóknar
og styrkingar innviða
héraðsins. Sameining
þarf að stuðla að því að
Skagaströnd snúi einnig
vörn í sókn sem og sveitir
héraðsins. Allir verða
þá glaðir og öll dýrin
í skóginum (Austur-
Húnavatnssýslu) vinir.
Ég vona að sveitarfélagið
Skagafjörður sjái tækifæri
í því að efla byggðina á
Hofsósi. Það eru einungis
þrír byggðakjarnar í
Skagafirði og það er að
mínu mati samfélagsleg
ábyrgð forsvarsmanna
sveitarfélasins að gera sitt
besta til að sjá til þess að
á einu þeirra, Hofsósi, þar
sem fólki hefur fækkað í
áranna rás, sé blómlegt
mannlíf með heilbrigðu
atvinnulífi. Þar hefur
einstaklingsframtak gert
kraftaverk fyrir svæðið,
m.a. í ferðaþjónustu en
betur má ef duga skal. Ég
á bágt með að trúa öðru
en hægt sé að gera betur
í því að efla atvinnulíf á
Hofsósi sem til langs tíma
gerir ekkert annað en
efla héraðið í heild sinni.
Það eru ekki eingöngu
fyrirtæki sem hafa
samfélagslega ábyrgð.
- - - - -
Ekki var ljóst þegar
Feykir fór í prentun hvern
Guðmundur skorar á.
ÁSKORENDAPENNINN
Guðmundur St. Ragnarsson Brottfluttur Norðvestlendingur
Kærar kveðjur ,,heim“
UMSJÓN
Páll Friðriksson
Guðmundur St. Ragnarsson. MYND AÐSEND
Rúnar Kristjánsson
Jólastef
Jólin koma indæl enn,
Efla von og hugga.
Senda yl um alla menn,
Útiloka skugga.
Skín með krafti um kærleikshöf
Konungsstjarnan sanna.
Réttir andans æðstu gjöf
Inn í hjörtu manna.
Stillt með táknin trúarvís
Traust á hendur báðar.
Upp með sigur róðu rís
Ríki Drottins náðar!
46/2018 9