Feykir - 05.12.2018, Síða 10
Nemendur Varmahlíðarskóla og Grunnskólans austan Vatna stóðu
fyrir dagskrá í Varmahlíðarskóla um miðjan nóvember, eins og áður
hefur verið sagt frá í Feyki. Tilefnið var að fagna 100 ára fullveldis-
afmæli Íslands og bar hátíðin yfirskriftina Fullveldi – frelsi – lýðræði
– hvað er nú það? Meðal dagskrárliða var málþing þar sem sjö
nemendur elstu bekkjanna fluttu erindi og veltu þar fyrir sér hvað
felist í hugtökum eins og lýðræði og fullveldi en einnig því sem í
framtíðinni er falið.
Feykir fékk góðfúslegt leyfi til að birta erindi krakkanna. Hér fylgja þrjú
þeirra en hin fjögur verða birt í tveimur næstu blöðum. /FE
Erindi flutt á málþingi í Varmahlíð
Fullveldi – frelsi – lýðræði
– hvað er nú það?
Nemendur úr Grunnskólanum austan Vatna sýna frumsaminn leikþátt. MYND: FE
Nú í ár eru 100 ár síðan Ísland varð fullvalda ríki. Með fullvalda ríki fylgir
mikil ábyrgð og margt sem þarf að læra, gera og þróa. Þótt 100 ár séu liðin frá
því að Ísland varð fullvalda ríki erum við ennþá að læra og þróa með okkur
tækni og aðferðir til að stjórna landi og þjóð svo að sem best fari. Og það
verður alltaf þannig, það er nefnilega
endalaust hægt að læra og bæta.
Þegar Íslendingar fengu fullveldi
völdu þeir lýðræðislegt stjórnarfar.
Lýðræðislegt stjórnarfar þýðir að
meirihlutinn ákveður hvert skal
stefna. Á Íslandi er fulltrúalýðræði
en þá kýs almenningur fulltrúa sem
hann treystir til að leiða landið í
þá átt sem þeir telja besta. Þessir
fulltrúar mynda alþingi. Alþingi
setur svo reglur og lög fyrir þjóðina
að fara eftir.
En eins og ég kom inn á áðan þá tekur lýðræði breytingum. Til dæmis
höfðu einungis 9% þjóðarinnar kosningarétt um aldamótin 1900. Það
voru karlmenn sem voru 25 ára eða eldri, bjargálna bændur eða borgarar
í þéttbýli. Svo var það árið 1915, þá fengu konur og vinnumenn 40 ára eða
eldri kosningarétt.
Í dag er kosningaaldur komin niður í 18 ár svo allir, 18 ára eða eldri
með íslenskan ríkisborgararétt, mega kjósa. En því miður fer þeim fækkandi
sem nýta sér kosningarétt sinn og þá aðalega þeim sem eru í hópi yngstu
kjósendanna. Það er náttúrulega ekki alveg nógu gott. Því ef við mætum
ekki á kjörstað þá erum við í raun segja að okkur sé bara alveg sama hvernig
og hverjir stjórna landinu okkar. En ég held að það sé ekki þannig, það hafa
nefnilega allir einhverja skoðun á því hvað er að gerast og hvað ætti að vera
að gerast.
Við eigum sem sagt ekki bara að sitja heima og vona það besta. Nei!! Við
eigum að standa upp og mæta á kjörstað. Skoðanir okkar skipta nefnilega
máli. Við erum ung þjóð á lítilli eyju og við verðum öll að leggja okkur fram
við að öllum líði vel í okkar fallega landi.
Ingiberg Daði Kjartansson 10. bekk Grunnskólanum austan Vatna
Hvað er lýðræði?
Ég skal alveg viðurkenna að ég hef ekki mikið velt fyrir mér fullveldi Íslands
og hvaða þýðingu það hefur fyrir mig. Fullveldi þýðir að ríki er sjálfstætt og
hlaut Ísland fullveldi þann 1. desember 1918. Þá fengu Íslendingar full yfirráð
eigin mála í sínar hendur og einnig var íslenski fáninn dreginn að húni í
fyrsta skipti sem fullgildur þjóðfáni.
Það hlýtur að hafa verið merkur
viðburður í sögu lands og þjóðar að
fá fullveldi og sjálfstæði frá konungi
Danmerkur. Að Ísland gæti stjórnað
sér sjálft og tekið eigin ákvarðanir
um stjórnskipun landsins. Hvernig
ætli Ísland og Íslendingar væru í
dag ef við værum enn undir stjórn
Danmerkur? Væri töluð danska? Eða
danski fáninn notaður?
Fréttir undanfarna mánuði og ár
hafa einskorðast mikið af frásögnum af flóttafólki og mannréttindabrotum
um allan heim og þá hugsa ég um hvað ég sé heppin að hafa fæðst á Íslandi í
sjálfstæðu ríki þar sem ég ræð mér sjálf og þarf ekki að óttast einræðisherra
eða að flýja undan ofbeldi.
Fyrir mér er árið 1918 í eldgamla daga og því erfitt að ímynda sér að
atburðir sem gerðust þá hafi haft áhrif á líf mitt eins og það er í dag.
Margt hefur breyst síðan 1918: húsakostur, skólaganga, kosningaréttur
kvenna, stjórn og stjórnarhættir og margt fleira og finnst mér erfitt að setja
mig í spor þeirra sem lifðu þá, þar sem lífið í dag er svo gjörbreytt frá því sem
var.
Að lokum vil ég þakka fyrir áheyrnina og til hamingju Ísland með
fullveldi og sjálfstæði.
Ingibjörg Rós Jónsdóttir 9. bekk Varmahlíðarskóla
Hvaða þýðingu hefur
fullveldi Íslands fyrir mig?Mér finnst nú þegar að allir séu alltaf með einhverja tækni með sér, síma,
heyrnartól, fartölvu, eða bara hvað sem er.
Hafið þið hugsað út í það hvenær þið voruð síðast ekki með síma,
heyrnartól eða mp3 spilara?
Við í 9. bekk fórum að Laugum í Sælingsdal þar sem öll tæki voru
bönnuð. Ég fann fyrir mun við að
kynnast fólki án þess að vera með
snjalltæki. Við unnum saman að því
að leysa þrautir án nokkurrar tækni.
En ég held að slíkar þrautir gætu
horfið ef við látum tæknina gera allt
eftir 20 ár.
Tækni er ekki alltaf slæm. Við
notum hana t.d. til þess að skrifa
þetta niður, senda tölvupóst, í vinnu
og til þess að hafa hana hjá okkur
ávallt.
Svo ég fór að skoða hvað verður líklega komið í heiminn eftir 20 ár.
Drónar til að senda mat og föt til þín.
Hyperlooprör sem flytja okkur milli borga á örfáum klukkutímum. En
fyrir mér er það ekki mikilvægt að fara frá Mexíkó til Kanada eins hratt og
hægt er, heldur að njóta þess og að vera spenntur.
Sagt er að árið 2025 komi vélmenni sem getur hugsað eins og maður.
En framtíðin eftir 20 ár verður ekki eins hræðileg og sumir halda. Við
munum nota náttúrulega orku meira og gera hlutina betur. En kannski verður
ekki allt sem við gerum betra.
Gæti verið að við munum minnka mannleg samskipti?
Ég fór nýlega út að borða með ættingjum og það voru tveir sem voru
byrjaðir að senda sms á milli sín. Þetta fékk mig til að hugsa að þetta ætti ekki
að vera svona. Því þetta voru ekki lengur mannleg samskipti, heldur rafræn.
Ég spurði þrjá ættingja hvað þeir héldu að myndi gerast eftir 20 ár. Þeir voru
sammála um að fólk muni vilja prófa að búa aftur í sveit. Eins og kunnugt er
býr meirihluti mannkyns nú í stórborgum.
Ég vil þakka fyrir að fá að koma hingað og þakka fyrir mig.
Orri Freyr Tryggvason 9. bekk Varmahlíðarskóla
Hvernig verður tækni eftir 20 ár?
10 46/2018