Bæjarbót - 01.10.1987, Qupperneq 9
Bæjarbót, óháð fréttablað 9
Afmælis-
rit Presta-
félags Suð-
urlands
KANARÍEYJAR!
Verðskrá liggur frammi.
Komið er út afmælisrit
Prestafélags Suðurlands í tilefni
af því að þann 7. sept. nk. eru 50
ár liðin frá stofnun félagsins.
í ritinu rekur sr. Guðmundur
Óli Ólafsson sögu félagsins í
stórum dráttum samkvæmt
fundargerðarbókum. Einnig er í
ritinu grein um endurreisn Skál-
holts eftir sr. Hannes Guð-
mundsson en uppbygging Skál-
holtsstaðar hefur verið sérstakt
áhugamál félagsins. Sr. Heimir
Steinsson ritar annál Skálholts-
skóla. Dr. Jakob Jónsson skrif-
ar um prestsstarfið fyrr og nú.
Sr. Arngrímur Jónsson ritar
grein sem nefnist „Litúrgisk
hreyfing á Suðurlandi“ og sr.
Örn Bárður Jónsson um Náðar-
gjafavakninguna. í þætti sem
heitir „Prestkona í hálfa öld,“
segir frú Stefánía Gissurardóttir
frá, en sr. Sigurjón Einarsson
skráði.
Prestafélag Suðurlands var
stofnað á Laugarvatni 7. sept-
ember árið 1937 en þar voru þá
ellefu kennimenn saman komnir
að staðfesta stofnun félagsins og
lög. En í annarri grein félagsins
segir um tilgang þess að hann sé
,,að glæða áhuga félagsmanna á
öllu því er að starfi þeirra lýtur,
auka samvinnu þeirra og gæta
réttar þeirra.“ Eftir því hefur
starf félagsins aðallega verið því
fólgið að efna til funda um mál-
efni krikju og kristni og rætt
hefur verið um margbreytileg
störf presta í söfnuðum Suður-
lands.
Þess má geta að séra Örn
Bárður Jónsson, sóknarprestur
hér í Grindavík, var í ritnefnd og
skrifaði einn kafla bókarinnar.
Sá ber heitið Náðargjafavakn-
ingin og er byggður á kafla úr
lokaritgerð Arnar til embættis-
prófs í guðfræði.
Úr Hagtíðindum:
íbúar sunnan
Straums eru
24,88% af
íbúum
Reykjanes-
kjördæmis
í Hagtíðindum, sem Hagstofa
íslands gefur út, er hægt að
finna tölulegar upplýsingar um
fjölmarga þætti þjóðlífsins.
Þann 1. desember 1986 voru
íbúar Grindavíkur 2.005, 1.064
karlar og 941 kona. í Keflavík
bjuggu þá 7.014 ibúar. í Njarð-
vík voru 2.248. í Höfnum
bjuggu 119. Sandgerðingar voru
1.256. í Garðinum voru 1.064
og á Vatnsleysuströnd bjuggu
þá 628 manns.
Suðurnesjamenn voru því
14.334. Þar af 7.390 karlmenn,
en konur voru 6.944.
Alls bjuggu 57.610 manns í
Reykjaneskjördæmi öllu þann
1. des. sl. íbúar sunnan Straums
eru því 24,88% af ibúum kjör-
dæmisins.
Verðin eru hagstæðari en þig grunar!
FLAKKARINN
SÍMI68060
I ■ Einkareikningur er
I KSm 1 féfcfcareffcningur m&Ö
I | háum vöxtum sem
gefur kost á heimild til yfír-
dráttar og láni, auk greiðslu-
þjónustu.
Einkareikningur
er framtíðar-
reikningur.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
/X