Bæjarbót - 05.01.1990, Qupperneq 4
4 Bæjarbót, óháð fréttablað
Janúar 1990
Nýaf-
greiðsla
trygginga og
sjúkrasam-
lags!
Um áramótin tók ríkið við
greiðslum sjúkrasamlagsins
og þar með var mikill kross
tekinn frá bæjarfélaginu. Nú
á að sækja greiðslurnar úr
sjúkrasamlaginu og fyrir
tannlækningarnar á skrif-
stofu bæjarfógeta inn af lög-
reglustöðinni. Þar leysir
Margrét Gísladóttir hvers
manns vanda með bros á
vör.
Hitaveita
Suðurnesja
mótmælir
fyrirhugaðri
skatt-
lagningu!
Stjórn Hitaveitunnar hefur
fjallað um áform ríkisstjórn-
arinnar um að leggja tekju-
skatt á orkufyrirtæki.
Stjórnin telur:
1. að með skattlagningunni
sé Hitaveitu Suðurnesja refs-
að fyrir að hafa tekjur sem
nægja henni til greiðslu af-
borgana og nauðsynlegra
fjárfestinga, auk eðlilegs við-
halds og reksturs.
2. að með téðri skattlagningu
sé lagður refsiskattur á Hita-
veitu Suðurnesja fyrir hag-
kvæmni, sem fram kemur í
stórri rekstrareiningu, en
samtímis hafa ýmsar veitur
þegið hundruðir milljóna í
styrki.
3. að skattlagning Orkuveitn-
anna hljóti óhjákvæmilega
að þýða hækkað orkuverð
fyrr eða síðar.
Stjórn Hitaveitu Suður-
nesja samþykkti samhljóða
eftirfarandi ályktun á fundi
sínum þann 15. desember sl.:
,,Hitaveita Suðurnesja
mótmælir harðlega fram
komnum hugmyndum um
skattlagningu ríkisins á orku-
fyrirtæki, sem óhjákvæmi-
lega mun leiða til hækkunar
á orkugjaldi til neytenda.
Hitaveitan bendir öðrum
eignaraðilum fyrirtækisins,
þ.e. sveitarfélögum á Suður-
nesjum á, að í gildi eru lög
um Hitaveitu Suðurnesja þar
sem skattleysi fyrirtækisins
er tryggt, og hvetur þau til að
krefjast þess, að við þau
verði staðið“.
Sumir vegir eru
þannig að mætingar
eru mjög varasamar og
framúrakstur kemur
vart til greina.
\
UUMFEROAR
RÁÐ
Nýtt líf í
blokkina
Heiðar-
hraun 32A
Eins og margir vita eignaðist
Byggingasjóður ríkisins
blokkina á uppboði á sl. ári.
Bærinn hefur nú samið um
kaup á henni við Byggingar-
sjóðinn fyrir litlar 14 milljón-
ir og 500.000 kr. Bærinn ætl-
ar að byggja 8 kaupleigu
íbúðir í húsinu og bauð bæj-
arstjórn verkið út skv. alút-
boði en það merkir að verk-
taki gengur frá öllu að innan
og utan, bílastæði og garði.
Samið var nýverið við lægst-
bjóðanda sem var Grindin sf.
Jón Gröndal skrífar:
Af vettvangi
bœjarstjórnar
Leigublla-
hasar í
bænum
Samkvæmt nýjum reglugerð-
um sem litu dagsins ljós 1989
um leigubílaakstur kom i ljós
að ráðuneyti samgöngumála
viðurkenndi ekki að viður-
kennd stöð starfaði í Grinda-
vík. Laufey Dagmar Jóns-
dóttir, Baðsvöllum 17, fór að
aka leigubíl í bænum. Þeir
leigubílstjórar sem fyrir voru
sögðu í einkasamtölum við
marga bæjarfulltrúa að ekk-
ert mál yrði að taka hana inn
á stöðina og óskuðu formlega
eftir viðurkenningu bæjar-
stjórnar á leigubílastöð. Að
þeirri viðurkenningu feng-
inni var fyrsta verk bílstjór-
anna að kæra Laufeyju til
lögreglunnar og töldu nú öll
tormerki á að taka Laufeyju
inn á stöðina. Laufey sótti þá
um viðurkenningu á að hún
ræki eigin fólksbílastöð. Eft-
ir að hafa rætt við sérfræðing
Samgönguráðuneytisins í
þessum málum varð niður-
staða bæjarráðs að leggja til
við bæjarstjórn að hún aftur-
kallaði viðurkeninguna til
gömlu stöðvarinnar og gefi
aksturinn frjálsan sem heim-
ilt er í nýrri reglugerð.
Grinda-
víkurbær
sækir um
Vegna fyrirhugaðs aðal-
skipulags á Svartsengissvæði
er nauðsynlegt að bærinn fái
til afnota 100 ha. skika suður
frá Þorbirni og Lágafelli.
Skipulag Grindavíkur og
Svartsengis tengist á þessum
slóðum. Erindið er til um-
fjöllunar hjá Varnarmála-
nefnd og Skipulagi varnar-
svæða. Vænst er jákvæðra
svara innan tíðar.
Það er og nauðsynlegt að
hindra nýframkvæmdir fyrir
Varnarliðið á umræddu
svæði, en miklar fram-
kvæmdir eru í gangi vestan
við Grindavík.
Vínveitinga-
stöðum
fjölgar!
Fyrir bæjarstjórn og áfengis-
varnarnefnd liggja 2
umsóknir um vínveitinga-
leyfi. 3ja umsóknin er vænt-
anleg á næstuni frá sam-
komuhúsinu Festi.
Þeir sem sótt hafa um eru
Guðjón Jónsson, sem vill fá
fullt vínveitingaleyfi fyrir
stað sem hann og fleiri eru að
opna við Bláa lónið. Þá hefur
hinn nýi veitingamaður í Sjó-
mannastofunni, Sigurgeir
Sigurgeirsson, sótt um að
eignast það vínveitingaleyfi
sem Jón Guðmundsson fékk
úthlutao áður. Þá telur Þor-
steinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri Festar nauð-
synlegt að vínveitingaleyfi
verði veitt til Festar vegna
nýrra aðstæðna og aukinnar
samkeppni. Þá yrði líka hægt
að koma í veg fyrir þann ósið
manna að hafa áfengisbirgð-
ir með sér á dansleiki í hús-
inu. Þessar umsóknir verða
afgreiddar á bæjarstjórnar-
fundi í febrúar.
Oveðurs-
tjónið
borgað!
Nú er ljóst að Viðlagatrygg-
ing (Viðlagasjóður) mun
borga tjónið á mannvirkjum
í og við höfnina. Einnig
borgar hún hreinsun lands og
lóða. Þá eru stjórnvöld að
leggja síðustu hönd á áætlun
um hvernig eigi að fjármagna
stóreflingu sjóvarnagarð-
anna.
Ný fóstra
ráðin á
leikskólann
Bjarney Hlöðversdóttir
(Guðrúnar Sigurðardóttur
og-Sigurðar Seinbjörnssonar
kaupmanns í Málmey) hefur
verið ráðin fóstra við leik-
skólann í heilu starfi frá k
maí nk. Hún hefur að undan-
förnu starfað í Mosfellsbæ,
en vill koma heim og búa í
Grindavík. Starf fóstru er
lögverndað og ganga þær
fyrir um störf á dagvistunar-
stofnunum.
mjmynD
Hafnargötu 90 Sími 11016
Myndatökur við
allra hœfi
Passamyndir
tilbúnar
strax