Bæjarbót - 05.01.1990, Side 5
Janúar 1990
Bæjarbót, óháð fréttablað 5
# Ef þú berð umhyggju fyrir einhverjum sem á við áfengis-
vandamál að stríða, getur Al-Anon leiðin hjálpað þér.
• Al-Anon fjölskyldudeildirnar eru félagsskapur ættingja og
vina alkóhólista, sem samhæfa reynslu sína, styrk og vonir
svo þau megi leysa sameiginleg vandamál sín. Við trúum að
alkóhólismi sé fjölskyldusjúkdómur og að breytt viðhorf geti
stuðlað að heilbrigði.
Al-Anon fundir í Grindavík að Víkurbraut 34 (Lágafelli:
Mánud. kl. 20 — Byrjendafundir.
Mánud. kl. 21 — Almennir fundir
Al-Anon fundir í Keflavík að Klapparstíg 7
Mánud. kl. 20 — Byrjendafundir.
Mánud. kl. 21 — Almennir fundir.
Miðvikud. kl. 21 — Sporafundir
Laugard. kl. 16 — Pontufundir.
Laugard. kl. 14 — Al-Ateen*
Laugard. kl. 11 — U.B.A.**
Þriðjud. kl. 21 — U.B.A.**
Á
* Al-Ateen: 13-19 ára unglingar.
** Uppkomin börn alkóhólista.
A
Verslum heima!
— Það tryggir okkur þjónustu
Linda Dögg Hólm
Unglingur mánaðarins að þessu sinni er
Linda Dögg Hólm, 15 ára nemandi í Grunn-
skóla Grindavíkur. Hún bjó í Reykjavík til
11 ára aldurs, en flutti þá til Grindavíkur.
Þrjú síðustu sumur hefur hún stundað land-
búnaðarstörf í þremur sýslum og segist taka
sveitina og Grindavík fram yfir Reykjavík.
Helstu áhugamál: Góð tónlist, að skemmta mér. Hestar og
önnur dýr. Á bæði hund og kött heima.
Fyndnasta æskuminningin: Þegar ég málaði allt klósetther-
bergið heima brúnt ásamt vinkonu minni.
Vandræðalegasta staðan sem ég hef lent í: Þegar ég tók feil á
konu sem ég hélt að væri mamma. Þetta var úti á götu í
Reykjavík.
Uppáhaldsleikföng um 7 ára aldur: Bangsinn minn, sem varð
fyrir þeim örlögum að bróðir minn skar hann í tætlur.
Ertu ástfangin?: Nei, ekki eins og er, en hef verið það.
Tónlistarsmekkur og uppáhaldshljómsveitir: Bubbi Morthens
er í uppáhaldi hjá mér, en ég hlusta aðallega á þungarokk.
Hugsar þú um stjórnmál?: Nei, þetta er allt sama ruglið!
Uppáhaldsíþróttahetja: Glimumaðurinn Hulk Hogan.
Mitt mesta afrek til þessa: Er ég vann ræðukeppnina í Grunn-
skóla Grindavíkur árið 1989.
Helstu framtíðaráform: Að ná 9. bekk og komast eitthvað
áfram, kannski í hárgreiðslu eða snyrtifræði.
Lestu oft blöð og bækur?: Það kemur fyrir að ég lít í blöðin,
en les sjaldan bækur.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?: Ákveðinn stærðfræðikenn-
ari fer alveg hrikalega í taugarnar á mér!
Hvar viltu búa í framtíðinni?: Auðvitað í Grindavík (heima er
best)!
Uppáhaldsmatur og drykkur: Kjúklingur er besti maturinn,
ætli besti drykkurinn sé ekki kók!
Helstu kostir við Grindavík: Allir þekkja alla
Hvað vildirðu helst hafa hjá þér ef þér skolaði á land á
eyðieyju?: Tannbursta og aðrar nauðsynjar.
Hver er maður ársins 1989 í Grindavík að þínu mati?
Pabbi minn Þorlákur Guðmundsson.
Næsta Bæjarbót kemur út
eftir mánuð. Ert þú með?
Kvenfélag Grindavíkur:
Guðveig
lét af for-
mennsku
Aðalfundur Kvenfélags
Grindavíkur var haldinn 8.
janúar sl. Formaðurinn Guð-
veig Sigurðardóttir, gaf ekki
kost á sér áfram, og við tók
Birna Óladóttir.
Kvenfélagið starfar aðal-
lega að líknar og mannúðar-
málum. Þess má geta að fé-
lagið hefur stutt byggingu
Heimilis aldraðra í Grinda-
vík með peningagjöfum,
einnig Krísuvíkursamtökin
og Kvennaathvarfið í
Reykjavík. Þá má geta þess
að Kvenfélagið hefur gefið 3
saumavélar til Grunnskóla
Grindavíkur og var sú síðasta
afhent nú í haust. Sú ný-
breytni verður tekin upp nú
að senda út gíróseðla til fé-
lagskvenna til að auðvelda
innheimtu félagsgjaldanna.
Fráfarandi formanni voru
þökkuð vel unnin störf en
hún hafði verið formaður í
samtals 10 ár. Á árunum
1970-1976 og 1986-1989.
Næsti fundur verður 12.
febrúar og kemur Heiðar
Jónsson á fundinn. Allar
konur eru velkomnar, ekki
aðeins kvenfélagskonur.
Afbrýðisemi
Kona fyrirgefur manni
sjaldan ef hann er afbrýði-
samur og aldrei sé hann það
ekki.
P.J. Toulet
Afbrýðisemin vaknar um
leið og ástin en hverfur ekki
alltaf með henni.
La Rochefocauld
Það er ekki ástin heldur af-
brýðisemin sem vill fyrir
hvern mun vita allt.
Frithiof Brandt
í afbrýðisemi er meiri eig-
ingirni en ást.
La Rochefocauld
Það eru aðeins þær mann-
eskjur sem varast að vekja
afbrýðisemi, sem eiga það
skilið að maður sé afbrýði-
samur þeirra vegna.
La Rochefocauld
Afbrýðisemi stafar ekki af
ótta við að missa, heldur ótta
við að deila með öðrum.
Edward Munch
Afbrýðisemi er bara særð
hégómagirni, segja menn. En
ég efast um að hægt sé að
nota orðið ,,bara“ um þann
djöfullega sársauka sem af-
brýðisemin veldur.
Carl Hammarén
íbúð vantar strax!
Grindavíkurbær vill taka 2ja-3ja herbergja
íbúð á leigu nú í byrjun febrúar um óákveð-
inn tíma.
Upplýsingar á skrifstofum
Grindavíkurbæjar
Ertu með Heimilis-
og Húseigandatryggingu?
FLAKKARINN
Frá námsflokkum
Grindavíkur
Námskeið á vorönn hefjast 3. febr.
Eftirtalin námskeið verða í boði.
Heimilisbókhald:
Áætlunargerð i samráði við Stjórnunarfélag íslands.
Mánudagur 5. febr. 19.00-22.30. Verð: 2.500-4.700 (eftir
þátttakendum).
Myndlist fyrir fullorðna:
Kennari Sigríður Sigurðardóttir. Dagar: Mánudaga kl.
20.00-22.00 í 6 vikur. Verð: 3000,- ATH: Blýantsteikning og
kolteikning.
Myndlist fyrir börn:
Kennari Sigríður Sigurðardóttir. Dagar: Þriðjudaga kl.
17.00-19.00 í 6 vikur. Verð: 3000,- ATH Málun og teikning.
Næringarfræði:
Æskilegar neysluvenjur. Fyrirlesari: Anna Edda Ásgeirsdóttir
næringarfræðingur. Dagur: 3. feb. kl. 14.00-15.30. Verð:
1000,-
Útskurður:
Kennari Matthías Andrésson. Dagar: Mánudaga kl.
19.30- 21.00 í 6 vikur. Verð: 5000,-
Stærðfræði:
Kennari Garðar Vingisson. Dagar: Mánudaga og miðviku-
daga 19.30-21.00 8 vikur. Verð: 5500.- ATH: Undirbúningur
fyrir framhaldsnám. Stuðst við stærðfræðibók handa for-
námi útgefna af Iðnskóla í Reykjavík.
Hvað er gott kynlíf?
Fyrirlesari: Jóna Ingibjörg Jónsdóttir kynfræðingur.
Laugardag 10. feb. kl. 14.00-16.00. Verð: 1000-2000 (eftir
þátttöku).
Spænska:
Kennari Sigurður Hjartarson. Dagar: Mánudaga og miðviku-
daga kl. 20.00-21.30 í 6 vikur. Verð: 4000,-
Siglingafræði:
Kennari Gunnlaugur Dan Ólafsson. Dagar: Óákveðið. 36
stundir. Gefur 30 tonna skipstjóraréttindi. Verð: 6500.-
Fatasaumur:
Kennari. Hafdís Valdimarsdóttir. Dagar: Þriðjudaga kl.
20.00-22.40 í 6 vikur. Verð: 4000,-
Silkimálun:
Kennari Heiða Vignisdóttir. Dagar: Þriðjudaga kl.
19.30- 22.00 í 6 vikur. Verð: 6000,-
Austurlensk matargerð „Oriental Cooking“:
Leiðbeinendur Panja Chalao og Marissa Schabae. Dagar:
Þriðjudag 6. feb. kl. 19.00 og fram eftir kvöldi. Hámark 15
þátttakendur. Verð: 1000-1500 (eftir þátttöku).
Allar nánari upplýsingar og innritun hjá Magnúsi í síma 68443
á kvöldin og í skólanum í síma 68020 í hádeginu. Innritun
lýkur 2. febrúar.