Bæjarbót - 05.01.1990, Síða 6
6 Bæjarbót, óháð fréttablað
Janúar 1990
Hvað segja
stjörnumar um
Grindavík?
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
cr
CTCTCTCTCT\
Öllum er hollt að þekkja sín einkenni og þarfir, sína kosti og
galla. Þetta gildir jafnt fyrir einstaklinga og jafnvel heilu bœj-
arfélögin. Ein leið, í leit að þeirri þekkingu, er að leita til
stjarnanna, skoða afstöðu þeirra og draga ályktanir. Þetta eru
umdeild vísindi, sem, þegar öllu er á botninn hvolft, reynast
ekki síðri en önnur. Einn af mörgum áhugamönnum um
stjörnuspeki er 15 ára Grindvíkingur, Gunnar Björn Bjömsson.
Að beiðni blaðsins dró hann upp stjörnukort Grindavíkurbæj-
ar og las út úr því nokkur atriði um bœinn almennt. Þetta er
ekki nákvœm úttekt og alls ekki spá fyrir framtíðina, heldur
aðeins nokkur atriði sem snerta núverandi stöðu bœjarins og
þeirra sem hann byggja.
crcTcrcrcrcTCTí
■a
■a
•a
■xc
O)
■a
Ol
“C3
■a
■a
■a
■a
■a
•a
■a
-a
•a
■a
■a
■a
■a
•a
■a
■a
■a
■a
Aðlögunarhæfir
vinnuþjarkar
Það sem er dæmigert fyrir
Grindvíkinga og reyndar alla ís-
lendinga er að þeir leggja mikla
áherslu á alla velferð. Sam-
kvæmt stjörnukortinu eru
Grindvíkingar áberandi miklir
vinnuþjarkar, sem hafa tölu-
verðan áhuga á menningu og
listum. Samt er bærinn að
margra mati frekar menningar-
snauður. Sé það rétt, veldur því
ekki áhugaleysi, heldur tíma-
skortur, vegna þess að í bænum
er vinna og atvinnuvegirnir
númer eitt, tvö og þrjú. Allir
vita að íslendingar lifa á fiski, en
Grindvíkingar eru áberandi
duglegir fiskimenn og það sést
best á Sól í Fiskamerkinu í 4.
húsi stjörnukortsins. Sólin teng-
ist einnig því sem ræður þ.e.
bæjarstjórninni. Fiskurinn er
merki sem getur aðlagast öllu.
Þvi er bæjarstjórnin samansett
af öllum flokkum í bænum, þótt
sumir ráði þar meiru en aðrir.
íbúar og almennings-
viðhorf
Tunglið táknar fólkið sjálft og
almenningsviðhorf til mála.
Grindavík hefur rísandi Tungl í
Sporðdrekanum. Rísandi stend-
ur fyrir framkomu og stíl.
Framkoma fólksins endurspegl-
ar almenningsviðhorfið. Sporð-
drekinn er fastur fyrir, kröfu-
harður og gefst ekki auðveldlega
upp! Fótboltinn fór í 2. deild og
margt fleira styður þessa kenn-
ingu! Sporðdrekinn er líka mjög
næmur á allt sem miður fer.
Þess vegna er almenningur
sennilega næmari á það en sjálf
bæjarstjórnin! Sporðdrekinn
lætur alls engan troða á sér.
Gott dæmi um það var þegar
myndin „Fiskur undir steini“
var sýnd. Þá urðu Grindvíking-
ar æfir af reiði, enda engin
furða! Það er því Sporðdrekinn
sem færir bæjarbúum þann
metnað sem þeir hafa. Einn
helsti galli Sporðdrekans er
óþarfa öfgar. Við þurfum að
hugsa út í það!
Hugsjónir og blekkingar
í stjörnukorti Grindavíkur er
Tunglið í samstöðu afstöðu við
Neptúnus. Það þýðir að fólkið í
bænum leitar í þætti sem til-
heyra öðru en gráum hversdags-
leikanum. Flvar það er ná-
kvæmlega getur verið mjög ein-
staklingsbundið. Algengustu
nöfn (starfsheiti) Neptúnusar-
fólksins eru: listamaður, guð-
fræðingur, læknir og margt
fleira. Jafnvel róni! Neptúnus-
arorkan hjá okkur Grindvíking-
um er ekki sérlega sterk, en
Neptúnus er pláneta hafsins og
hann er rækilega tengdur við
Tunglið þ.e. fólkið sjálft. Nept-
únus stjórnar einnig ímyndunar-
aflinu og öllum blekkingum.
Þessa orku þurfum við að
þekkja mjög vel til að koma í
veg fyrir vímuefnaneyslu og aðr-
ar blekkingar sem víða eru vax-
andi vandamál.
Samgöngur, miðlun
og menntun
Merkúr táknar samgöngur,
upplýsingaflæði, verslun,
menntun, talað og skrifað mál.
Grindavík hefur Merkúr í Fiska-
merkinu. Eins og áður hefur
komið fram er Fiskurinn aðlög-
unarhæfur og þess vegna þekkja
hér allir alla! Hjá okkur nýtur
Merkúr sín vel í 3. húsi (sem er
m.a. hús miðlunar, skóla og
fjölmiðla). Nýtum okkur það
vel!
Menningarlíf og fegurð
Venus er táknrænn fyrir menn-
ingu, listir og ýmsar fínni hliðar
tilverunnar og endurspeglar ým-
is áhugamál bæjarbúa. Sam-
kvæmt stjörnukortinu hafa
Grindvíkingar almennt áhuga á
félagsmálum t.d. íþróttum og
hópsamvinnu (Vatnsberi). Einn-
ig fréttum og mörgu öðru sem
tilheyrir 3. húsi (sjá hér að fram-
an). Venus er ekki sterkur á
stjörnukorti Grindvíkinga og
áhugamálin komast því ekki
nægilega í framkvæmd. Ef til
vill er það þess vegna sem skort-
ur er á klúbbum og félagsstarf-
semi í bænum (að minnsta kosti
að mati margra unglinga!).
Vinna og samkeppni
Mars táknar ákveðni, vilja og
verkamannastéttina, ásamt
fleiru. í korti Grindavíkur kem-
ur þar fram eitthvert eirðarleysi
og dreifðir eiginleikar. Til dæm-
is í sambandi við atvinnu og at-
vinnumöguleika. Fólk vill alltaf
vera að prófa eitthvað nýtt. í
kortinu er Mars í Tvíburamerk-
inu. Eiginleikarnir eru margir,
en það er sem margir eigi erfitt
með að einbeita sér að einhverju
einu. Vilji hafa mörg járn í eld-
inum í einu!
Miðhiminn
Að lokum er það Miðhiminn,
sem einnig skiptir máli. Hann
táknar það sem bærinn og bæj-
arbúar vilja tileinka sér. I Mið-
himni korts Grindavíkur eru
það einkum peningar og verald-
leg gæði (Meyjan)!
Gríndavík
gegn
Njarðvík á
sunnudag-
inn á Stöð 2
Spurningaleikurinn Bæirnir
bítast verður á Stöð 2 á
sunnudagskvöld. Grindavík
keppir við Njarðvík. Okkar
mönnum, Frímanni Ólafs-
syni, Ólafi Þ. Jóhannssyni og
Jóni P. Halldórssyni gekk vel
og vel þess virði að fylgjast
með þeim í sjónvarpinu.
SMÁTT!
Herbergi óskast!
Sjómann vantar herbergi til
leigu í vetur. Reglusemi
heitið.
Upplýsingar í síma 68517
(Kjartan eða Björg)
Tapað-fundið
Dökkgrár, teinóttur karl-
mannsjakki tapaðist eftir
dansleik í Festi á annan í jól-
um. Sennilega tekin í mis-
gripum í húsi.
Vinsamlegast hringið í síma
68157.