Bæjarbót - 05.01.1990, Side 8
8 Baejarbót, óháð fréttablað
Janúar 1990
Hverjir skyldu verma stólana á bæjar-
stjórnarfundum næstu fjögur árin?
Dr. Páll Skúlason heimspekingur:
Hvað er góður
stjómmálamaður?
Þar sem nú styttist óðum í sveitarstjórnakosningar ogflokkamir
þegar famir að huga að vali frambjóðenda sinna, er ekki úr vegi að
leiða hugann að því hvernig manngerðir við viljum að veljist til
stjórnunarstarfa. Til að ráðskast með bœði vald og almannafé. Þessi
grein Páls Skúlasonar, prófessors við Háskóla íslands, birtist í bók
hans Pœlingum, sem hann gaf út fyrir síðustu jól. Hún er snjöll
úttekt fræðimanns á stjórnmálamönnum almennt, eða öllu heldur
þeim dygðum sem þeir þurfa að vera prýddirl
Að veðurfarinu undanskildu hefur fátt verið eins mikið á milli
tannanna á fólki í vetur og blessaðir stjómmálamennimir. Það
verður að segjast eins og er að þeir em oftast harðir undir tönn.
Líklega verða þeir samt áfram eitt helsta umræðufóður manna.
Ég vil leggja mitt af mörkum til þessarar umræðu með því að
velta fyrir mér hvaða kostum góður stjómmálamaður þurfi að
vera búinn. Mér sýnast að minnsta kosti sex dygðir þurfi að
prýða slíkan mann.
1. Góður stjómmálamaður veit hvað er að gerast í þjóð-
félaginu og hvað fólk er að hugsa. Hann veit þetta jafnvel án
þess að gera sér sjálfur grein fyrir því og án þess að geta rakið
ástæðumar fyrir því. Hann er glöggur á þjóðféíagið líkt og
margir vom veðurglöggir löngu áður en veðurfréttir komu til
sögunnar. Góður stjómmálamaður ræktar með sér þessa til-
fmningu fyrir veðrabrigðum þjóðfélagsins og næmi á hugar-
ástand almennings.
2. Góður stjómmálamaður kann að tala til fólks og gera því
grein fyrir hvað skiptir máli og hvað ekki á hverjum tíma og
við ríkjandi aðstæður. Hann veit hvað fólk langar til að heyra,
en hann segir því það sem það verður að heyra til að átta sig á
þeim staðreyndum og möguleikum sem fyrir hendi em. Hann
flytur mál sitt á skýran og rökvísan hátt svo að fólk geti sjálft
greint kjama málsins og lagt mat á það sem í húfi er.
3. Góður stjómmálamaður er trúverðugur. Hann vekur traust
og hann sýnir traust. Hann beitir sér af heilindum jafnt í
„smámálum“ sem „stórmálum“, því að hann veit að almanna-
heill veltur á því að öllum málum sé sinnt af alúð. Hann hlustar
af athygli á það sem aðrir hafa að segja og kann að setja sig í
spor annarra. Hann ræktar því með sér réttsýni, sanngimi og
tillitssemi. Verði honum á í messunni og geri hann sig sekan
um ranglæti gerir hann allt til að bæta ráð sitt.
4. Góður stjómmálamaður er skjótráður og bregst sam-
stundis við þegar almannaheill er ógnað. Hann þjálfar með sér
hæfileikann til að hugsa hratt, skipulega og markvisst og gætir
þess að láta aðra fylgjast stöðugt með sér til að forðast hugsan-
leg afglöp.
5. Góður stjómmálamaður er mannglöggur og kann að leita
sér ráða hjá þeim sem kunna best fyrir sér í þeim málum sem
hann þarf að sinna. Hann gerir sér grein fyrir eigin tak-
mörkunum, því sem hann veit og kann og því sem hann kann
ekki skil á. Hann viðurkennir mistök sín og er viðbúinn því að
taka afleiðingum gerða sinna. Hann lærir sífellt af reynslunni
sem hann segir öðmm frá og ræðir við aðra um. Hann lærir líka
af mistökum og reynslu annarra.
6. Góður stjómmálamaður gerir skýran greinarmun á
sjálfum sér og þeirri valdastöðu sem honum er trúað fyrir.
Stöðunni fylgir ábyrgð, hún leggur honum skyldur á herðar sem
hann tekur á sig óháð eiginhagsmunum sínum, persónulegum
löngunum og einstaklingsbundnum vilja. Hann tekur því
ákvarðanir með hliðsjón af því sem samræmist skyldum stöð-
unnar sem hann gegnir, en horfir fram hjá því sem er eingöngu
til góðs fyrir hann sjálfan eða vini hans.
Hér hafið þið, lesendur góðir, uppskrift að góðum stjóm-
málamanni. Vafalaust má krydda hann með ýmsu; til að mynda
virðast margir gefnir fyrir skemmtilegheit, fyndni og fagurt
útlit í sjónvarpi. Sumir falla líka í þá gryfju að halda að
vinsældir og gæði stjómmálamanna haldist í hendur. Þetta er
hliðstætt því að rugla saman bragðgóðum mat og hollum. Þetta
tvennt fer til allrar hamingju stundum saman, en það þarf ekki
að gera það.
Vonandi er þessi lýsing í nokkru samræmi við heilbrigða
skynsemi, en hvort hún dugar íslenskum stjómmálamönnum
sem mælikvarði á eigið ágæti skal ósagt látið. Það er vanda-
samt að beita mælikvarða af þessu tagi, ekki síst á sjálfan sig.
Hér rekumst við á sjálfsblekkinguna sem lætur okkur vaða í
villu og svíma og kemur í staðinn fyrir heilbrigt sjálfstraust.
Þeir eru
á réttri
BRAUT!
Áleið
til
okkar!
BRAUT
Gos
Léttöl
Samlokur
Snakk
Sælgæti
Dagblöð
Myndbönd
Hljómplötur
SÍMINNER
68722
Áskriftargjöld 1990
Bæjarbót minnir áskrifendur á að greiða
áskriftargjöld ársins 1990 sem fyrst, með
áður sendum gíróseðli eða greiðslukorti.
Þeir sem ekki greiða fyrir 25. febrúar
falla af sendingarlistanum.